Samvinnan - 01.02.1977, Blaðsíða 11

Samvinnan - 01.02.1977, Blaðsíða 11
— ■— 1 ■ .. *v Formáli Samband íslenzkra samvinnufélaga hefur nú starfað í 75 ár, — þrjá aldarfjórðunga. í þessu ríti verða raktir þœttir úr sögu Sambandsins og Sambandsfélaganna. Saga Sambandsins er samofin sögu Sambandsfélag- anna, því Sambandið er af þeim stofnað og vinnur í þeirra þjónustu. Frásögnin er með annálssniði að veru- legu leyti, og ætlunin er, að með því fáist allgott yfirlit um starfsemi Sambandsins þessi 75 ár og þróun sam- vinnuhreyfingarínnar, þegar þær upplýsingar um kaupfélögin eru einnig skoðaðar, sem í riti þessu er að finna. /í síðasta aðalfundi Sambandsins var ákveðið að láta semja sögu samvinnuhreyfingarínnar á Islandi, og hefur undirbúningur þess verks nú veríð hafinn. Er þá m. a. haft í huga, að ekki er ýkjalangt þangað til sam- vinnulireyfingin á hundrað ára starfsafmæli, því að upphaf liennar teljum við stofnun Kaupfélags Þing- eyinga árið 1882. Saga Sambandsins verður þá veru- legur þáttur í Samvinnusögunni. Á meðan íslenzka þjóðin bjó við verzlunarfjötra er- lendra, átti hún sér engrar viðreisnar von. Eftir liarða pólitíska viðwreign fékkst verzlunarfrelsi lögfest 185ý. Það kostaði langa og erfiða baráttu, að almenningur á íslandi fengi notfært sér verzlunarfrelsið til hags- bóta og viðreisnar eins og efni áttu að geta staðið til. Kom þar til viðureign við erlent og innlent kaup- mannavald, sem bjó traustlega um sig — oft í hinum gömlu vigjum selstöðuverzlananna. Þessi umbrot stóðu út nítjándu öldina og fram á þá tuttugustu og urðu með margvíslegu móti. Sterkur þáttur í þessu stríði var öflug viðleitni bændanna í landinu til að ná viðskiptunum í eigin hendur eftir fé- lagslegum leiðum. Er af þeirrí viðleitni mikil saga, og má þangað rekja rœtur kaupfélaganna og samvinnu- hreyfingarínnar. Tímamót verða í þessum efnum 1882 með stofnun fyrsta kaupfélagsins, Kaupfélags Þingeyinga. Síðan komu önnur kaupfélög til sögunnar hvert af öðru. Hörð átök urðu, en kaupfélögin héldu velli og sýndu í verki, hvílík nauðsyn var á því, að öflug félagsverzlun almennings liefði tök á að annast viðskipti og meðferð framleiðsluvara, tryggja þannig sannvirði og leysa menn úr þeim verzlunarviðjum, sem búið var við. Eru það engar ýkjur, að með stofnun kaupfélaganna var brotið skarð í þann múr, sem víða lokaði leiðum til bœttra lífskjara og verulegra framfara. Rétt er að gera sér grein fyrír því, að kaupfélögin voru ekki eingöngu viðskiptastofnanir. Samvinnu- lireyfingin var og er félagsmálahreyfing, og stofnun kaupfélaganna olli nálega byltingu í félagslegum efn- um og öllu því sem laut að jafnrétti og almennum mannréttindum. Samtök og samvinna, jafnrétti án tillits til efnahags, voru og eru grundvallarboðorð samvinnulireyfingar- innar, og störf liennar mótast af þeim. Þessi viðliorf samvinnumanna hafa einnig sett sinn svip í œði ríkum mœli á margt utan sjálfrar samvinnuhreyfingarinnar, því frá henni li.ggur látlaus straumur félagshyggju og samliyggju út í atvinnulífið, menningarlífið og þjóð- lífið allt. Þegar fyrsta kaupfélagið hafði starfað í 20 ár og nokkur bœtzt í liópinn, liöfðu menn sannfærzt um nauðsyn þess, að kaupfélögin mynduðu samtök sér til halds og trausts. Sambandið var stofnað að Yztafelli 20. febrúar 1902, á afmælisdegi Kaupfélags Þingeyinga. Uppliaflega var því ætlað fyrst og fremst að vera brjóstvörn kaupfé- laganna í félags- og fræðslumálum, og því hlutverki liefur Sambandið með ýmsu móti leitazt við að sinna alla tíð. Er möjmum jafnan ríkt í huga að sá þáttur falli ekki í skugga stórfelldra umsvifa á sviði viðskipta og fram- leiðslu, sem orðið liafa hlutskipti Sambandsins. Segir það sína sögu, að stjórn Sambandsins þótti viðeigandi, að félags- og fræðslumál samvinnuhreyfingarínnar yrðu aðalmál aðalfundar, einmitt í vor á 75 ára afmœli Sambandsins. Fljótlega kom að því, að Sambandið tæki að sér viðskipti fyrir kaupfélögin, og er sú saga rakin í liöfuð- dráttum í þessu ríti. Hefur starfrœksla þess orðið smátt og smátt œði stórbrotin og margþætt. Þess var að vænta þegar að því er gœtt að liún er fyrst og fremst í þágu Sambandsfélaganna og samvinnufólksins og kaupfélög starfa nú í öllum byggðarlögum landsins. Eru Sambandsfélögin ý9 talsins og félagsmenn nálega JjO þúsund. Samvinnufélögin leitast við að tryggja sannvirði vöru og þjónustu. Það vilja þau gera með því að ann- ast viðslcipti og þjójiustu fyrír félagsmenn sína og aðra landsmenn. Þetta er gert í samkeppni við aðra, sem spreyta sig á þessum sömu verlcefnum. Samvinnu- félögin sœkjast ekki eftir sérréttindum, en vilja búa við jafnrétti. Samvinnufélögin þurfa að koma víða við í viðskiptaþjóðfélagi nútímans. Þess vegna verður starfsemi þeirra fjölþœtt í þágu almennings til sjávar og sveita, framleiðenda og launþega, sem hér á íslandi bera giftu til að standa saman í samvinnustarfinu til mikillar gœfu fyrír alla þjóðina. 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.