Samvinnan - 01.02.1977, Blaðsíða 17
Hinn 20. febrúar 1972 hélt stjóm Kaupfélags Þingeyinga fund í gamla
bænxun á Þverá í Laxárdal þar sem stofnfundur félagsins var haldinn
90 árum áður. Fundarmenn (frá vinstri): Illugi Jónsson Bjargi, Þráinn
Þórarinsson Skútustöðum, Baldvin Baldvinsson Bangá, Finnur Kristj-
ánsson Húsavík, Úlfur Indriðason Héðinshöfða, Jóhann Hermannsson
Húsavík, Skafti Benediktsson Garði, Sigurjón Jóhannesson Húsavik.
Fyrir kaupfélögin var þetta þungt áfall og skyndilegt sem
þau voru að mörgu leyti vanbúin að mæta. Afdrifaríkasti
veikleiki félaganna var sá að þau höfðu lítt getað byggt sig
Upp af eigin fé, en þó veist torvelt að verjast skuldasöfnun
inn á við, og voru þau því mjög háð lánardrottnum sínum,
aðallega Zöllner. Þó hafði Torfi í Ólafsdal tekið upp þá
stefnu 1893 að félögin yrðu að safna sjóðum og losast úr
skuldum, og hafði nokkur árangur náðst í því efni, sérstak-
lega í Verslunarfélagi Dalasýslu og Kaupfélagi Þingeyinga.
Þrátt fyrir allt urðu sauðasöluhömlumar engu félagi að
fjörtjóni, en hagur margra þeirra varð bágur og viðskipti
hiinnkandi. Kom þar til vaxandi samkeppni kaupmanna um
kaup á búsafurðum, en almenn vörusala fylgdi að miklu
leyti afurðakaupunum. Kaupfélögum fjölgaði talsvert á
Þessum árum, en mest vegna þess að Verslunarfélag Dala-
sýslu var að leysast upp í minni kaupfélög. (Á hinn bóginn
hætti Kaupfélag ísfirðinga störfum.)
Þannig áttu íslenskur landbúnaður og samvinnuverslun í
vök að verjast í upphafi tuttugustu aldar, og var einkum við
að glíma vandkvæði á afurðasölu. Þessari vöm tókst sam-
vinnumönnum brátt að snúa í sókn og ber að líta á stofnun
Sambandsins og fyrstu verkefni þess sem skref á þeirri
sóknarbraut.
----------------------:---------------------
Þingmannasambandið 1895
Eftir 1890 var kominn upp áhugi á samstarfi kaup-
félagsmanna um land allt, og raunar höfðu þeir nokk-
urt samband sín á milli, meðal annars fyrir það að
nokkrir þeirra hittust jafnan á Alþingi. Sumarið 1895
sátu á þingi níu framámenn kaupfélaganna. Héldu þeir
með sér fund og stofnuðu Samband íslenskra kaupfé-
laga sem ætlað var að efla tengsl kaupfélaganna og
fræðslustarf, en ekki var ráðgert að það annaðist við-
skipti. Aðilar að sambandinu voru Kaupfélög Þing-
eyinga, Skagfirðinga, ísfirðinga, Stokkseyrar og Pönt-
unarfélag Fljótsdalshéraðs.
Samband þetta varð skammætt, en gaf þó út tvo ár-
ganga af Tímariti kaupfélaganna, 1896 og 97, sem for-
maður sambandsins, Pétur á Gautlöndum, ritstýrði.
Flutti það fróðleik um útlenda og innlenda samvinnu-
verslun og gagnmerkar ritgerðir um markmið og
starfshætti kaupfélagshreyfingarinnar.
..... ... ............ >
13