Samvinnan - 01.02.1977, Blaðsíða 47
Verðfall fiskafurða kom hart niður á Sambandinu, Sam-
bandsfrystihúsunum og sölufyrirtseki Sambandsins í Banda-
ríkjunum.
Hjalti Pálsson tók við framkvæmdastjórn Innflutningsdeild-
ar af Helga Þorsteinssyni, Sigurður Markússon við stjórn
Véladeildar, en Gylfi Guðmundsson við Hamborgarskrif-
stofu.
Sigurður A. Magnússon tók við ritstjórn Samvinnunnar sem
varð tímarit um þjóðfélags- og menningarmál, en blaðið
Hlynur tók við fræðsluhlutverki um samvinnumál.
1968
Sú stefna var mótuð að styðja kaupfélög til að sameinast
þar sem það sýndist henta og óskað var eftir.
Unnið var að samræmdu vöruvali kaupfélagsverslananna í
sparnaðarskyni.
Guðjón B. Ólafsson varð framkvæmdastjóri Sjávarafurða-
deildar í stað Bjarna V. Magnússonar sem tók við Lundúna-
skrifstofunni af Guðjóni. Þá tók Othar Hansson við stjórn
Iceland Products af Sverri H. Magnússyni.
1969
Hramkvæmdir Sambandsins voru auknar á ný eftir þriggja
ára hlé. Ráðist var í byggingu nýrrar loðsútunarverksmiðj u
á Akureyri, einnig hafin endurnýjun annars verksmiðju-
húsnæðis Iðunnar sem skemmst hafði í bruna, og samið um
kaup nýrra véla í Gefjuni og Heklu.
Sambandið færði sér snemma í nyt fljótvirka og nákvæma tækni tölv-
unnar. Segja má, að þá hafi orðið bylting í bókhaldi kaupfélaganna og
Sambandsins.
(> 1 1 ><
Verslun í vörn og sókn
Árið 1966 var svo komið að leyfð álagning á helstu
nauðsynj avörur var ónóg til að standa undir dreifing-
arkostnaði, og hefur svo verið löngum síðan, ekki sist í
dreifbýlinu. Það hefur svo aukið á vanda margra kaup-
félaga, að sérvöruverslun beinist æ meira til Reykja-
víkur.
Kaupfélögin hafa, með styrk Birgðastöðvar og Skipu-
lagsdeildar (áður Tæknideildar) Sambandsins, brugð-
ist við rekstrarvanda smásöluverslunarinnar með sam-
stilltum aðgerðum.
Kaupfélagsverslanir hafa verið endurnýjaðar með
sjálfsafgreiðslu- og jafnvel markaðssniði til að auka
samkeppnishæfni þeirra og draga úr rekstrarkostnaði.
Samstarf er haft um vöruval, verðreikning, bókhald,
búnað verslananna og söluaðgerðir, til að mynda tíma-
bundna verðlækkun á „tilboðsvörum“ (frá 1975).
Með stofnun Birgðastöðvar og Tæknideildar hefst
skeið í sögu Sambandsins og Sambandsfélaganna sem
öðru fremur einkennist af baráttu við rekstrarvanda
verslunarinnar og af sókn til nútímalegra verslunar-
hátta ásamt sterkri viðleitni til að þrýsta niður dreif-
ingarkostnaði.
43