Samvinnan - 01.02.1977, Síða 34
Vöruskemma Sambandsins við Reykjavíkurhöfn, reist 1930. Þar var
geymdur heildsölulager Sambandsins og vörur sem umskipa varð vegna
kaupféiaganna, og ennfremur var þar fóðurblöndun.
1943
Verslunin var enn mjög hagstæð og afurðasala greiðari en
árin áður.
Ríkið tók sjálft að sér áburðasölu og grænmetisverslun sem
Sambandið hafði annast um árabil.
Út kom bók Gísla Guðmundssonar, Samband íslenskra sam-
vinnufélaga 1902—1942.
Fyrirhuguð var margs konar ný starfsemi, meðal annars
þátttaka í stofnun áburðarverksmiðju.
'—-----------------------------------------------
Innflutningshöft
Áratugina 1930—1960 var innflutningsverslunin
lengst af háð leyfum að meira eða minna leyti, stund-
um svo að ófullnægt var eftirspum eftir flestum
flokkum innfluttra neysluvara. Samvinnumönnum
þótti félagsverslun sinni sniðinn þröngur stakkur til
vaxtar og sóknar ef innflutningsréttur hennar óx
ekki með vexti félagsskaparins. Aðalfundur Sam-
bandsins 1940 ályktaði svo um innflutnings- og gjald-
eyrismál:
Aðalfundur Sambands ísl. samvinnufélaga, haldinn
að Laugarvatni 24. júní 1940, skírskotar til þeirra
samþykkta í innflutnings- og gj aldeyrismálum sem
gerðar hafa verið á undanförnum aðalfundum Sam-
bandsms og beinir því til Sambandsstjórnar að bera
enn á ný fram kröfur til ríkisstjórnar og Gjaldeyris-
nefndar um að framkvæmd innflutningshaftanna
verði hagað þannig að samvinnufélögin fái innflutn-
ing á algengum verslunarvörum í hlutfalli við fólks-
fjölda sem félagsmenn hafa á framfæri sínu, til þess
að tryggja — eftir því sem unnt er — að landsmenn
geti haft viðskipti sín við kaupfélög eða kaupmenn
eftir eigin ósk.
í þessu sambandi vill fundurinn benda á að síðan
komvörur voru settar á frílista, hafa Sambandsfélögin
selt að meðaltali allt að helmingi af innflutningi þess-
ara vara til landsins, og ættu félögin því að fá inn-
flutt hlutfallslega svipað magn af haftavörum, eins
og til dæmis byggingavörum, vefnaðarvörum, skó-
fatnaði og búsáhöldum, til þess að félagsmenn neyðist
ekki til að kaupa þær vörur að nokkrum hluta hjá
kaupmönnum...
> "1 —
Afurðasalan
Frá því heildverslun Sambandsins í Reykjavík var
komin á fastan fót um 1920, snerust framkvæmdir
samvinnuhreyfingarinnar meira um afurðasölu en
innflutningsverslun.
Vegna sölutregðu á saltkjöti og síðar einnig salt-
fiski var farið að frysta kjöt og fisk. Kaupfélögin höfðu
forustu um byggingu frystihúsa og fjárfestu mikið í
þeim. Markaðsöflun fyrir freðkjöt var verk Sambands-
ins. Það tók einnig þátt í að koma saltfiskverkuninni
á félagslegan grundvöll og hóf að selja freðfisk; hefur
það síðan átt sívaxandi þátt í útflutningi frystra sj áv-
arafurða.
Mjólkursala til þéttbýlisins var vaxandi tekjulind
bænda í sumum héruðum. Með stofnun fullkominna
mjólkurbúa um 1930 og Mjólkursamsölunnar í Reykja-
vík 1935 var vinnslu og sölu mjólkur komið á sam-
vinnugrundvöll.
Sambandið leitaði á ný markaða fyrir lifandi pen-
ing. Sauðasala var talsverð 1923 og 24 en féll þá niður;
hrossasala mikil 1923 og síðan nokkur fram að stríði.
Ull og gærur seldust misjafnlega og söfnuðust stund-
um birgðir. Sambandið lagði mikla rækt við markaðs-
leit fyrir þessar vörur og tók þær einnig til vinnslu í
verksmiðjum sínum.
1944
Vandkvæði á flutningi og innkaupum drógu úr verslun Sam-
bandsins. Innkaup helstu vara varð að gera í samlögum við
heildsala.
í árslok voru nær 93% af rekstrarfé Sambandsins eigið fé
eða eign sambandsfélaganna.
Starfsemi ársins einkenndist af viðbúnaði að takast á við
ný verkefni að stríðslokum.
Samvinnan var stækkuð um helming.
1945
Friður komst á í Evrópu í maí, en viðskipti komust ekki í
eðlilegt horf á árinu. Sambandið gat fátt ráðist í af fyrir-
huguðum framkvæmdum, en unnið var að undirbúningi,
meðal annars með lóðakaupum í Reykjavík.
Sambandið fékk umboð fyrir nokkrar tegundir bifreiða.
Fræðslustarf var aukið stórlega, fyrirlestrar, kvikmynda-
sýningar og bókaútgáfa.
Sambandið hóf að sjá kaupfélögunum fyrir verkfræðiþjón-
ustu.
Eitt félaganna sem sameinuðust í Kaupfélagi Reykjavíkur og nágrennis
1937, var Kaupfélag Reykjavíkur, stofnað 1931 og hafði sölubúð við
Bankastræti frá 1933.
30