Samvinnan - 01.02.1977, Síða 100
3) Þátttaka samvinnufélaganna í útgerð, vinnslu
og sölu sjávarafurða hefur farið vaxandi á undanförn-
um árum. Á 75 ára afmæli Sambandsins hefur Sjávar-
afurðadeildin mesta umsetningu í krónutölu af deild-
um Sambandsins.
Það er framtíðarverkefni samvinnuhreyfingarinnar
að auka þátttökuna í þessum höfuðatvinnuvegi þjóð-
arinnar. Þessi þátttaka getur orðið með ýmsu móti:
A vegum kaupfélaganna. A vegum Sambandsins og
kaupfélaganna. I sérstökum félögum með þátttöku
samvinnufélaganna og einstaklinga. I sérstökum félög-
um með þátttöku samvinnufélaganna, verkalýðsfélaga
og bæjarfélaga. Það á elcki að útiloka hin ýmsu félags-
form, heldur finna það form er bezt hentar á hverjum
stað. Nauðsynlegt er að samvinnufélögin séu mikils-
ráðandi í slíkum félögum.
4) Til þess að samvinnuhreyfingin geti notið sín,
þarf hún að geta verið sem mest sjálfri sér nóg með
rekstrarfé.
Það er framtíðarverkefni að efla fjárrnálastofnanh'
samvinnuhreyfingarinnar.
5) Hvernig gengur að reka samvinnufélag, byggist
ekki nema að nokkru leyti á félagsforminu. Hitt ræð-
ur mestu, að hæfir menn veljist til forystu og þeir
velji sér gott starfsfólk.
Það er framtíðarverkefni í samvinnuhreyfingunni
að fá sem hœfasta menn til forystu í félögin og Sam-
bandið og að hreyfingin geti laðað að sér sem bezt
starfsfólk. Þetta getur þýtt það, að samvinnuhreyfing-
in þurfi að vera reiðubúin að greiða góðu starfsfólki
gott kaup.
6) Samvinnuhreyfingin hefur nýlega hafið þátttöku
í ferðamannaþjónustu með stofnun ferðaskrifstofu.
Það er framtíðarverkefni í samvinnuhreyfingunni
að skipideggja ferðaþjónustu innanlands. auk þess sem
reynt verði að bjóða sem liagstœðust kjör fyrir utan-
landsferðir. Tekið verði upp samstarf í ferðamálum
við ferðaskrifstofur samvinnufélaga í öðrum löndum.
7) Höfuðþættir í starfsemi samvinnufélaga eru
tveir: Rekstur fyrirtækja og félagsmálastarf.
Ilvað varðar rekstrarþáttinn er það framtíðarverk-
efni að samvinnufélögin beiti nýtízku skipidagi og
tækni eftir því sem frekast verður við komið til þess
að gera reksturinn sem hagstæðastan.
8) Félagsmálaþáttur samvinnufélaganna hefur átt
erfiðara uppdráttar á seinni árum, eftir því sem vel-
megun hefur aukizt. Fátækt og bág kjör voru oft áð-
ur fyrr aflgjafi öflugs félagsmálastarfs, er lífsbaráttan
snerist um brauðstritið fyrst og fremst.
Það er framtíðarverkefni í samvinnuhreyfingunni
að finna nýjar leiðir í frœðslu- og félagsmálum til
þess að vvrkja það mikla afl, sem býr í liinum JjO.OOO
félagsmönnum Sambandskaupfélaganna. Næsti aðal-
fundur Sambandsins mun sérstaklega fjalla um þetta
mál.
9) ísland hefur náð þeim efnahagslega árangri að
vera talið í tölu þeirra þjóða sem búa í velferðarríki,
þrátt fyrir það, að mikið er deilt um skiptingu þjóð-
arauðs. Verðbólgan á stóran þátt í því að misskipta
íslenzkum þjóðarauði. I verðbólguþjóðfélagi á sér stað
mikil tilfærsla eigna. Of'tast verða hinir efnaminni illa
fyrir barðinu á þessari millifærslu.
Það er framtíðarverkefni íslenzku þjóðarinnar að
draga stórlega úr verðbólgunni og minnka tilfærslu í
þjóðfélaginu frá fátœkum til þeirra sem meiri efni
hafa.
Það er frarntíðarverJcefni að eflu samvinnuhreyfing-
una, félagsframtaláð í þjóðfélaginu, en þar verður
fjárfesting í atvmnureJcstri sameign fjöldans.
Framtíðarverkefni í samvinnuhreyfingunni verða
ætíð mörg vegna þess að undiralda hreyfingarinnar
eru framfarir. Hinu skiptir svo mestu, hvemig tekst
að hrinda verkefnum í framkvæmd, láta óskir rætast,
gera þær að veruleika. Það er þetta sem verður mesta
og stærsta framtíðarverlcefnið í íslenzkri samvinnu-
hreyfingu um ókomin ár. Tilvera hreyfingarinnar
byggist á þessu fremur öðru. Hér verður margt að
koma til. Áræðnir en vitrir forystumenn, gott skipulag
í rekstri, áhugasamt og traust starfsfólk og síðast en
ekki sízt styrkur og bakhjarl félagsmanna, ináefnaleg-
ur og viðskiptalegur, og áhugi þeirra fyrir því, að
hverju góðu framtíðarverkefni verði hrundið í fram-
kvæmd.
Megi það verða gæfa samvinnuhreyfingarinnar í
framtíðinni að félagsframtak á sem flestum s\dðum
stuðli að eflingu velferðarþjóðfélags á íslandi.
96