Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1975, Page 12

Samvinnan - 01.12.1975, Page 12
Eilíf listaverk á tínium spillingar að vera ekki færri en 40 styttur af helgum mönnum og spá- mönnum umhverfis líkbörur páfans. Michelangelo fór til Carrara eftir marmara, en þegar hann kom að krefja hans heilagleika um greiðslu flutningskostnað- arins, lét páfinn, sem nú átti i dýrri styrjöld, reka hann á dyr. Michelangelo sendi páfa mergjað skammabréf, en flýði síðan burt úr Páfaríkinu. Páf- inn heimtaði, að Flórenz bann- færði Michelangelo, en nokkrir vitrir og stilltir Flórenzbúar gáfu Michelangelo sendiherra- grið borgarinnar og sendu hann á fund páfa, sem kenndi i brjósti um listamanninn og tók hann með sér til Rómar. Júliusi hafði nú verið talin trú um, að það væri óheilla- vænlegt að láta byggja graf- hýsi í lifanda lífi. Þar að auki voru málarinn Rafael og Bra- mante, yfirsmiður við Péturs- kirkjuna, fullir afbrýði gagn- vart Michelangelo. Þeir töldu Júlíus á að láta Michelangelo mála loftið í einkakapellu páfa, Sistinsku kapellunni. Michel- angelo mótmælti, en árangurs- laust. Páfinn hafði talað. f næstu fjögur ár var Michel- angelo i raun og veru fangi, fyrst páfa, en siðar eigin inn- blásturs. Aldrei hafði neinum lista- manni verið fengið slikt verk- efni. Sistinska kapellan er dimmur, mjór salur og loft- hæðin meiri en breiddin. Loft- hvelfingin er sundurskorin með einskonar þakgluggum, sem mynda erfið horn og ósamstæð- ar boglínur. Allt loftið, 10.000 ferfet, átti að fylla með mynd- um í fresco. Frescomyndir eru málaðar þannig, að litirnir eru leystir upp í vatni — ekki oliu — og síðan er málað á raKa gibshúð. Þegar gibsið þornar, festast litirnir að eilífu á steininn. Málarinn verður að vinna af feikna hraða og miklu öryggi. Michelangelo klifraði upp á vinnupallana, lagðist þar á bakið og byrjaði að mála upp fyrir sig. Gagntekinn af fögn- uði hins skapandi listamanns, gleymdi hann oft að eta og sofa. Hann rak einn aðstoðar- manninn á fætur öðrum og hleypti engum inn nema einum gömlum þjóni. Hann opnaði þó, þegar Júlíus knúði á dyrnar með reyrprikinu og þótt páfinn skildi ekki list, þá skynjaði hann stórfengleik listaverk- anna, þegar hann sá þau. Hann vissi líka, að lífið er stutt: „Hvenær verður þvi lokið?“ þrumaði hann. Loksins æpti hann einn dag: „Því er lokið, skal ég segja þér. Hypjaðu þig niður af pallinum, eða ég læt fleygja þér niður.“ Michelangelo skalf. Einu sinni hafði hann dottið niður á gólf. Hann samþykkti að opna fyrir öllum, listamönnum, tizkusnöp- um og klerkum. Fyrir ofan þá blasti við sköp- unarsagan, syndafallið og syndaflóðið. Guð skiptir heim- inum með bjóðandi hreyfingu. Hann andar á duftið og sjá: Þar stendur Adam, imynd hans. Þeir losa handtakið og maður- inn starir fullur aðdáunar i andlit skapara sins. í skjóli frá handlegg guðs stendur Eva og lítur full lotningar og ótta á guð sinn og herra. Myndir af spámönnum og guðlegum ver- um fylla upp i rúmið milli aðal- myndanna. Það eru 343 aðal- myndir á lofthvelfingunni, sér- hver þeirra frábært listaverk og allar túlka þær þrótt mynd- listarinnar í málaralistinni. Sömu tign, í stíl gamla testa- mentisins, sjáum við í stytt- unni af Móses, hluta af ófull- gerðu grafhýsi Júliusar páfa. Hún fyllir dimmt guðshúsið, þar sem henni hefur verið val- inn staður, birtu og yl. Spá- maðurinn grefur tærnar i fjall- ið Sinai og þrumur og eldingar guðs virðast leika um hann. Hann heldur lögmálstöflunum á lofti og augu hans loga af innra, háleitum eldi. Sagan segir, að þegar Michelangelo lauk við þessa mynd, hafi hann greitt henni siðasta hamars- höggið og sagt: „Hana nú. Talaðu.“ Úr blóðsúthellingum og stöðugum ótta þessara tíma reis frægasta lista verk Michelangelos: Medici-grafhvelfingarnar. • EILÍF LISTAVERK Á TÍMUM SPILLINGAR En þótt Michelangelo ynni að listaverkum, sem geyma ei- lifan sannleika, lifði hann á spilltum tímum. Veraldlegt ó- hóf hafði eytt fjármunum og trúarlegu siðgæði Vatikansins. Hálf Evrópa reis gegn því. Frakkar, Þjóðverjar og Spán- verjar réðust á ftalíu og borg- arastyrj aldir geisuðu í landinu. 18

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.