Samvinnan - 01.12.1981, Blaðsíða 13

Samvinnan - 01.12.1981, Blaðsíða 13
Andrés Kristjánsson hefur undanfarin ár unnið að ritun sögu Kaupfélags Þingeyinga, og kemur hún út snemma á næsta ári í tilefni af hundrað ára afmæli félagsins. Hér er um mikið og gott verk að ræða sem vænta má frá hendi Andrésar. Samvinnan hefur fengið gúðfúslegt leyfi hans til að birta kafla úr bókinni — söguna um gullkútinn sem flaut á vatni og lýsti í myrkri. íslenzkir sauðir komnir til Englands. Yzt til hægri er Louis Zöllner Það má nærri geta með hvílíkri eftirvæntingu við biðum svarsins frá Slimon eða öllu heldur hins, hvort hann mundi virða okkur svars... Fyrsta tilraun til útflutnings lif- andi sauðfjár úr Þingeyj arsýslu fór út um þúfur haustið 1866, er skip það sem Tryggvi Gunnarsson átti von á fyrir milligöngu Þorláks Ó. Johnson kom aldrei, enda hafði það strandað við Ormseyju undan Skot- landsströnd og Þorláki tókst ekki að fá annað skip til fararinnar. Eiríkur Magnússon var einnig með skipi í fj árkaupaferð til íslands þetta haust, og átti það að taka fé hjá Skagfirðing- um og Húnvetningum, en það komst ekki norður fyrir land, tók því fé á Austfjörðum en lenti á útleið i stór- viðri svo að út tók um 600 fjár i nánd við Færeyjar, þar sem marga sauða- skrokka rak á land. Reynslan frá 1866 hræddi enska skipstjóra svo mjög, að Þorláki eða öðrum tókst ekki að fá neinn til þess aff sehda sauðakaupaskip til íslands fyrr en 1872, en árið áður höfðu Skot- arnir Gum og Slimon siglt til lands til hrossakaupa og þeir munu hafa keypt ofurlítið af sauðfé um leið, því lands- hagsskýrslur greina frá útflutningi 578 lifandi kinda árið 1871, að mestu úr Suður-Múlasýslu, að þvi er segir í ævisögu Þorláks eftir Lúðvik Krist- jánsson. Pétur Eggerz komst síðar í sam- band við Slimon, líklega án milli- göngu Þorláks, og Slimon hét honum að kaupa 4000 fjár af Borðeyrarfélag- inu og sækja það haustið 1872, en það mun hafa brugðist. Séra Oddur V. Gíslason dvaldist í Englandi um þetta leyti og gerðist sumarið 1872 milligöngumaður tveggja enskra kaupmanna, Watsons og Ask- ams og gerði Gránufélaginu tilboð í þeirra nafni um að kaupa 3000 fjár af félaginu þetta haust og sækja það til Akureyrar. En þetta rann einnig út í sandinn og ekkert skip kom, þær brigð- ir stöfuðu af gjaldþroti, en Askam hafði þó tvívegis þetta sumar sent skip til Austfjarða og keypt þar sauðfé og nautgripi. Loks sendi Slimon kaup- maður Coghill skipstjóra sinn og sið- ar þjóðkunnan á íslandi á stóru 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.