Samvinnan - 01.12.1981, Blaðsíða 56

Samvinnan - 01.12.1981, Blaðsíða 56
Lubbi Tanya gekk dálítinn spöl frá veiði- mönnunum, hún valdi sér stað, þar sem sefið óx langt út i tjörn- ina og fór að baða sig. Lubbi fór líka í bað. Fyrst synti hann nálægt litlu stúlkunni en síðan synti hann í burtu og hvarf inn i sefið, þar sem það var þéttast. Tanya var tæplega búin að klæða sig eftir baðið, er hún sá Lubba synda til sín með önd á milli tannanna. Hann brölti upp á bakkann og færði Tanyu veiðina. Hún athugaði öndina og sá, að hún var töluvert stór, en vængirnir voru ekki fullvaxnir, hún gat þvi ekki flogið. Þessir ungar eru kallaðir „skvettur“, vegna þess, að þegar þeir reyna að komast undan þeim, sem ætla að fanga þá, geta þeir ekki annað en sagt skvett, skvett, með vængjun- um, um leið og þeir slá þeim í vatnið. Þótt þeir reyni af öllum kröftum, geta þeir ekki hafið sig til flugs. Og þess vegna hafði Lubbi veitt önd. Tanya kallaði á Pétur frænda, sem kom rétt í því að Lubbi synti að bakk- anum með annan andarunga. Lubbi synti i land með sex andar- unga, heila fjölskyldu. Á meðan stóðu veiðimennirnir og veltu vöngum. „Það er naumast, að hvolpaskömmin gerir okkur hneisu", sagði Pétur frændi. Við gerðum eins og við gátum en höfðum ekki eina einustu upp úr krafsinu, en Lubbi syndir bara smá- spöl og kemur með sex miðdegisverði, án þess að skotið sé einu skoti. Þetta er nú veiðihundur sem gagn er að“. „Hvað eruð þið að tala um miðdeg- isverði?“ spurði Tanya. „Ég læt ykkur ekki drepa endurnar mínar. Lubbi kom með þær til mín og ég ætla mér að eiga þær“. Veiðimönnunum datt ekki i hug að rifast við Tanyu. Hún hafði rétt að mæla, andarungarnir voru hennar eign. Þeir létu þá þvi í poka og báru heim. Veiðimennirnir tveir urðu nú að at- hlæi um allt þorpið. „Þið hljótið að hafa notað galdraskot fyrst dauðar endurnar eru nú sprelllifandi", sagði fólkið. En þeir voru léttlyndir, höfðu gaman af sögunni og hlógu eins og aðrir. „Við vorum bara að þessu upp á grín“, sögðu þeir. „Við ætluðum aldrei að gerast atvinnuveiðimenn, og höfðum ákveðið að selja byssurnar. Lubbi getur farið á veiðar án okkar. Hann veiðir mest einsamall, og end- urnar sex koma okkur ekkert við, Tanya hefur allan veg og vanda af þeim“. Þegar haustaði og villiendurnar bjuggust í ferðalag suður í lönd, voru flugfjaðrirnar klipptar af öndum Tanyu. Um veturinn voru þær hafðar í hænsnakofa. Tanya gaf þeim vel og þær urðu mjög hændar að hinni hjartagóðu litlu stúlku. Þær þurftu ekki annað en heyra rödd hennar og kvakk, kvakk, kvakk, þær komu vagg- andi til hennar allar sex, hver af ann- arri. Skólabörnin voru að undirbúa af- mælishátið októberbyltingarinnar. Þau höfðu verið að skreyta kennslustofuna með grænum greinum og voru þvi í skólanum fram i myrk- ur. Þetta hafði engin óþægindi í för með sér fyrir þau börn, sem bjuggu ná- lægt skólanum. En Tanya og nágrann- ar hennar, þeir Kolli og Tolli, sem öll voru nemendur í öðrum bekk, þurftu að ganga meira en tveggja mílna leið gegnum skóg og yfir akur til að kom- ast heim. Vegurinn gegnum skóginn hafði skolast burtu i regni, sem verið hafði undanfarna daga og var þvi ósýnilegur. Drengirnir sögðu, að best væri að biða, þar til þau yrðu sótt. „Það er ómögulegt að sjá veginn. Það er hræðilegt að ganga“, sögðu þeir. En Tanya vildi ekki biða. Hún var hugrökk telpa, sem ekkert hræddist, að minnsta kosti ekki á meðan Lubbi var hjá henni, og hann var sjaldan langt undan. Hann fór meira að segja með henni í skólann, og beið í skóla- portinu á meðan hún var inni i kennslustof unni. ,.Raggeitur“, sagði Tanya, „Lubbi hleypur á undan og vísar okkur veg- inn. Hann getur ekki týnst, því að hann þefar leiðina uppi“. Þetta hughreysti drengina, og lögðu þau nú öll af stað niður veginn. Þau voru nú komin inn i skóginn. Þar var engan veg að sjá i myrkrinu. Lubbi hljóp á undan og börnin sáu alltaf hvítt bak hans. Hvítt sést vel i svörtu umhverfi. Börnin héldu nú áfram lengi, lengi, leiðin virtist miklu lengri i myrkrinu, hún virtist alveg endalaus. Allt i einu fór að snjóa. Þetta var fyrsti snjór vetrarins. Hann féll í þykkum, stórum, þungum flyksum og þakti allt í kring- um þau. Lubbi gelti, hann gelti aftur og aftur, síðan hljóp hann i burtu og hvarf. Sennilegt að héri hafi hlaupið yfir veginn og hann ætlað að elta hann. Börnin gengu áfram um stund og fundu, að þau voru á ótroðnum jarð- vegi. Þau gengu samt dálítið lengra, en duttu þá um runna eða tré. Leiðin var lokuð, og því ekki annað að gera en snúa við. Þau ætluðu nú að reyna að finna spor sín, en þau sáu engin spor og fundu engan veg. Börnin héldu þá til hægri handar, en komu þá að mjög þéttum skógi. Þá sneru þau til vinstri og gengu heila eilífð að þeim fannst. Skógurinn var þarna ekki eins þéttur, og nú sáu þau trjátoppana, en veginn fundu þau ekki. Börnin námu nú staðar, enda skild- ist þeim, að þau höfðu villst. Drengirnir fóru að vola og væla, og skömmu seinna hágrétu þeir. En Tanyu leið samt verst. Hún vildi ekki biða eftir vagni og hafði talið litlu drengina á að koma með sér. Enginn maður i hestvagni gæti fundið þau núna, þar sem þau voru í svarta myrkri langt frá veginum. Tanya fann, að hún ein bar ábyrgðina. 56
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.