Samvinnan - 01.12.1981, Page 14

Samvinnan - 01.12.1981, Page 14
Gullkúturinn sem flaut á vatni og lýsti í myrkri Næstu daga dvaldist Benedikt á Húsavík og skrifaði sauða- reikninga til uppgjörs við bændur, en Jakob reiddi fram gullið eftir reikningum ... <J<i n isri oot au A -t- e £ rt - CL. - nr tf'TCL. f ■ oUn / OL- . CUí Sejrusrt (—£jr CLU S&cunh.a\ cÍJi 'ift3 (W. ^UUmdaji t>c czkst OLU ofwn ) Jionj .... V n K tt H 1 cS. áf. /<} ry3 O'L. SbZ, - - « 3 ^OjT>uJajOCJ-c/^ OLS1. aJAúinujyz.c^LC>c /* - z.7,n So /OH $<j 1 7 - ' - H Ji tJ acJL otocO cx^cLe-J-JLcJ. ■ LSH Si 300 z-b 1 st S1 s oLc£-J-oooLc-lJL oL-. . J O S (o e 1 < r. Zo > £ 17. t> <3(JlJ-gLocs-l, . * 311 H of }<100 H 1 8 ^So Æ8 1 oUJoLoL^ .... •t íbS 8 So 1 8/Z 61 3 ^ou-cj ot-cLaúoC oL— * SS JQOf ts 687 13 7' A o- cf ol-oLqJJ- oL— ... - / 80 HH(o3 irl •#73» > 3 io ~rJ ll-ó qlju cLqJcC oL- . . . 1 / fcV<j n H - 3o u ofi. aJLóLot oo jLjC-O oLíÚJjoL-^.. : • • f ^757 Ii «Too K Lt Ct Cj 77 oÚLoyi/yo. oc-^T oLeújCoL— . n josnf 7» ‘)ZV< OC 30 eocj 68 Rithönd Benedikts á Auðnum. skrúfuskipi sem hét Yarrow til Aust- fjarða seint um haustið, þar sem það tók 1200 kindur. Þótt Þingeyingar og Eyfirðingar kæmu sauðasölu ekki fram þetta haust fremur en hið fyrra sinn, má telja að sauðasalan hefjist þetta ár með til- komu Slimons og Coghills og hún mátti heita samfelld siðan, þótt hún yrði enn um sinn nokkuð úrfallasöm hjá Þingeyingum. Tryggvi gerði enn samning við Eng- lendinga sumarið 1873 um fjárkaup og skip að sækja féð um haustið, en vafasamt er að fé hafi verið rekið til Akureyrar austan yfir fljót í það sinn. Skipið kom en tók ekki nema hluta þess fjár, sem samið hafði verið um, og auk þess fór kaupandinn af landi án þess að greiða allt andvirðið og varð seinlegt að ná því en mun þó hafa tekist. Sauðaverslun Gránufélagsins mun hafa verið með einhverjum úrtökum tvö næstu árin, en 1876 fékk Tryggvi Slimon til að senda skip eftir sauðum til Eyjafjarðar, en borgaði sauðina að mestu í vörum sem skipið kom með handa félaginu. Eitthvað af sauðum var þá rekið til Oddeyrar úr sveitum austan fljóts, svo sem Bárðardal og Mývatnssveit þetta haust. En Slimon var óánægður með sauða- kaup Tryggva og haustið 1877 sendi hann Coghill til Akureyrar að velja og meta féð, en hann var talinn mjög glöggur á mat sláturfjár að smekk Englendinga. Enn voru markaðir að- eins inn við Ljósavatnsskarð það ár, en Coghill þóttist sjá, að besta féð væri úr austursveitum sýslunnar, og það varð til þess, að næstu þrjú ár, 1878— 80, var efnt til sauðamarkaða á Úlfs- bæ, og þangað var rekið fé úr Reykja- dal og uppsveitum hvaðanæva. ,,Ég sem þá var bóndi á Grímsstöð- um, var fyrst með sauði á markaði haustið 1877“, segir Jakob Hálfdanar- son. Hann kveðst siðan hafa verið næstu þrjú árin á sauðamörkuðum á Úlfsbæ „og fengist meira og minna við sauðasöluna bæði fyrir mig og aðra.“ Benedikt á Auðnum segir, að Jakob hafi „eggjað menn að selja þar frá- lagsfé sitt og einkum gengið fast fram í þvi 1880.“ Hann kom það haust að Auðnum 22. sept. var dag um kyrrt og ræddi við Benedikt um sauðfjárversl- un. Markaðurinn á Úlfsbæ hófst það haust 19. sept. og þeir urðu samferða þangað og dvöldust þar til 21. sept. Þangað var rekinn fjárhópur úr Lax- árdal, segir Benedikt. Coghill kom á markaðinn, sem var hinn langstærsti, sem þarna var haldinn. Þessi þrjú ár mun Gránufélagið hafa haft þá meginreglu að greiða sauða- verðið að hálfu í peningum en að hálfu i vörum á Oddeyri, og þótti mönnum að austan það að vonum óþægilegir kostir. Vörur félagsins þóttu dýrar er hér var komið og eng- inn leikur að flytja þær á klökkum austur yfir heiðar og stórvötn. Það fór líka svo, að þetta varð síðasti markað- ur Gránufélagsins austan Ljósavatns- skarðs. • Sjö manna nefndin Benedikt á Auðnum greinir frá því í minningum sínum, að haldinn hafi verið allfjölmennur fundur í mars 1880 i þinghúsinu á Helgastöðum um sauðaverslunina, vandkvæði hennar og verslunarinnar almennt. Þar mun séra Benedikt i Múla hafa verið at- kvæðamikill, enda var hann manna óánægðastur með þjónustu Gránufé- lagsins. Á fundi þessum var kjörin sjö manna nefnd „til þess að vinna að verslunarumbótum“. Séra Benedikt var formaður hennar, og Benedikt á Auðnum átti einnig sæti í henni. Nefndin hélt nokkra fundi og ræddi málin vel, og boðaði aftur til almenns sveitarfundar í Múla 13. des. 1880. Þar var fyrst og fremst rætt um ráð til þess að fá Slimon til þess að senda skip til Húsavíkur næsta sumar til þess að kaupa fé milliliðalaust af bændum, en engar samþykktir voru gerðar i málinu þá. 14

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.