Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1922, Síða 53
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 99
við K. H., en sem nú höfðu stofnað sérstakt félag, borgað
út hluti þeirra af varasjóði félagsins, og var það til sam-
ans rúmlega 900 krónur, en jafnframt keyptu þær hús-
eign og verslunaráhöld, sem félagið átti á Hvammstanga,
fyrir sömu upphæð. Bókfært verð þeirra eigna var þó
nokkuð meira.
Prá byrjun hafði félagið árlega sent út töluvert af
hrossum, en þetta ár voru það aðeins 8 hross, sem félagið
sendi út, og var meðalverð þeirra að frádregnum kostn-
aði, 89 krónur. Síðan hefir félagið ekki sent út hross.
Aðrar íslenskar vörur seldust þetta ár heldur yflr kaup-
mannaverð.
A þessu ári var enn nokkuð aukið við innbyggingu
í íbúðarhúsi félagsins. Til framkvæmda á þessu ári má
einnig telja það, að á aðalfundi félagsins var ákveðið, að
senda einn mann fyrir hönd K. H. og S. A. H á aðalfund
Sambands ísl. samvinnufélaga, til að kynnast starfsemi
sambandsins, sem þá var nýlega byrjað á kjötsölu fyrir
nokkur félög. A fundi þessum mætti svo Jónas B. Bjarna-
son í Litladal, sem fulltrúi fyrir ofannefnd félög, og varð
sá árangur af því, að S. A. H. gekk í félagið næsta ár,
og lét Sambandið strax selja nokkuð af kjöti fyrir sig,
og lýsti hann því yfir á fundi þessum, að hvenær sem
Sambandið sæi sér fært að hafa erindreka erlendis til þess
að kaupa inn útlendar vörur, þá mundi K. H. ganga í
Sambandið og styðja það eftir megni.
Árið 1913 varð vörupöntun heldur minni en árið
áður, en söludeildin seldi vörur fyrir lítið eitt meira. Ágóði
af söludeildarverslun varð 8°/0. Og ull sem félagið sendi
út, seldist yfir kaupmannaverð.
Á þessu ári hafði félagið engar sérstakar fram-
kvæmdir.
Árið 1914 varð umsetning pöntunardeildarinnar með
mesta móti, og söludeildin seldi vörur fyrir rúmlega 41
þús. krónur. Ágóði af söludeildarversluninni varð að eins
5°/0. Ull, sem félagið sendi út, seldist fremur vel.
7*