Andvari - 01.01.1952, Side 10
6
Steingrímur Steinþórsson
ANDVAHI
lögfræðinámi. Stofnaði hann það ár, í fagnaðarhug þeim, er þá
ríkti, og án efa að ráði Jóns Sigurðssonar, blaðið Isafold. Hann
var ritstjóri ísafoldar óslitið til 1909, er hann varð ráðherra. Varð
ísafold í höndum Björns Jónssonar afar vinsælt og áhrifamikið
blað, enda var Björn ágætlega ritfær og mun hafa haft til brunns
að bera flesta þá kosti, er blaðamann mega prýða. Björn Jónsson
fór til Kaupmannahalnar að nýju 1878 og áttu þau hjón þar þá
heimili í 5 ár, eða til 1883, að þau fluttu alfarin til Reykjavíkur.
Var þá Sveinn sonur þeirra tveggja ára að aldri.
Eftir það áttu þau hjón heima í hjarta hinnar vaxandi höfuð-
borgar. Heimili þeirra var alltaf hið ágætasta. Sveinn Björnsson
og systkini hans ólust upp á íslenzku heimili, þar sem hin foma
þjóðlega menning var í hávegum höfð. Þar voru þeim frá barns-
aldri innrættar gamlar íslenzkar erfðavenjur, svo sem trúartraust,
athafnagleði og drambleysi gagnvart öllum, er þau umgengust,
hvort sem voru æðri eða lægri. Mun mega fullyrða, að fá heimili
hér á landi hafa verið ramíslenzkari og þjóðlegri en heimili for-
eldra þeirra Sveins og systkina hans. Flestir helztu þjóðskörungar
þess tíma höfðu mikil samskipti við Bjöm Jónsson og komu oft
á heimili hans. Börn þeirra hjóna ólust því upp við liin allra
beztu þroskaskilyrði. Má segja, að hinir nýju straumar, sem þá
fóru eldi um huga margra Islendinga í félagsmálum og frelsis-
baráttu þjóðarinnar, hafi verið hvað sterkastir í nágrenni Björns
Jónssonar og sameinast á heimili hans. Hefur það andrúmsloft
verið hollt vel gefnum og þroskavænlegum ungmennum.
Haustið 1894 hóf Sveinn Björnsson nám í Latínuskólanum,
eins og Menntaskólinn þá var nefndur, 13 ára að aldri. Stúdents-
próf tók hann aldamótaárið, þá 19 ára. Skömmu síðar hóf hann
laganám við Háskólann i Kaupmannahöfn og lauk prófi þaðan
árið 1907. Kom Sveinn Björnsson það ár heim og settist að í
Reykjavík. Gerðist hann þá málaflutningsmaður við yfirréttinn
og gegndi hann því starfi til 1918, er yfirrétturinn var lagður
niður, en því næst við hinn nýstofnaða Hæstarétt til 1920, er