Andvari - 01.01.1952, Blaðsíða 20
16
Steingrímur Steinþórsson
ANDVARI
kennt fyrir, hve prýðilegt það var að öllu leyti. Háttsettir erlendir
fulltrúar margra þjóða komu á sendiherraheimilið og fannst mikið
til um hina hugljúfu, menntuðu og virðulegu húsráðendur.
Mun sú kynning, sem útlendingar á þennan hátt fengu af fs-
landi og íslenzkri menningu, ásamt því sem áður er nefnt, hafa
orðið til þess að vekja eftirtekt á þjóð okkar og landi og auka
hróður þess.
Það var því mikil gæfa fyrir þjóð okkar, að hinn fyrsti sendi-
herra íslands skyldi reynast jafn ágætur fulltrúi þjóðar sinnar
og Sveinn Bjömsson þau hartnær 20 ár, er hann gegndi sendi-
herraembætti.
Eins og alkunnugt er, tepptust allar samgöngur milli íslands
og Norðurlanda, þegar Þjóðverjar hernámu Danmörku og Noreg
í apríl 1940, en þá hafði heimsstyrjöldin síðari geisað síðan
haustið 1939. Þegar svo var komið, urðum vér að taka alla utan-
ríkisþjónustu í eigin hendur, þar sem Danir gátu ekki á neinn
hátt staðið við skuldbindingar sínar í þeim efnum. Hinn 10.
apríl 1940, næsta dag eftir hernám Danmerkur, samþykkti Al-
þingi svofellda ályktun: „Með því að ástand það, er nú hefur
skapazt, hefur gert konungi íslands ókleift að fara með vald
það, sem honum er fengið í stjórnarskránni, lýsir Alþingi yfir
því, að það felur ráðuneyti fslands, að svo stöddu, meðferð þessa
valds.“ Með sömu rökum ályktaði Alþingi sama dag, að Dan-
mörk gæti ekki rækt umboð til meðferðar utanríkismála fslands
samkvæmt sambandslögunum frá 1918.
Þessar ályktanir Alþingis voru samstundis símaðar til sendi-
herra Sveins Bjömssonar í Kaupmannahöfn. Tilkynnti hann síð-
an Kristjáni konungi X. þá ákvörðun Alþingis, að fá ráðuneyti
fslands í hendur konungsvaldið. Jafnframt tilkynnti sendiherr-
ann dönsku ríkisstjórninni, að umboð hennar til þess að fara
með utanríkismál íslands væri fallið niður. Á þennan hátt lauk
störfum Sveins Bjömssonar sem sendiherra íslands í Kaupmanna-
höfn. Ríkisstjórn íslands óskaði eftir, að hann kæmi heim eins
fljótt og ástæður leyfðu. Sveinn Bjömsson kom heim fáum vik-