Andvari - 01.01.1952, Side 29
andvahi
Sveinn Bjömsson
25
áratug, er hann var fyrsti þjóðhöfðingi hins endurreista íslenzka
lýðveldis, tekizt að sameina einþykka og sundurlynda þjóð um
margt, svo að hann hafði náð því marki, er telja verður æðsta
boðorð hvers þjóðhöfðingja, að vera sameiningartákn þjóðarinnar.
Ef vér að lokum viljum í sem allrafæstum orðum gera oss
grein fyrir afstöðu Sveins Bjömssonar forseta til samtíðar sinnar
og hversu honum tókst að afkasta því dagsverki, er raun ber
vitni um, vil ég benda á eftirfarandi atriði:
Hann var ungur að ámm, þegar ný viðhorf og vakninga-
straumar fara um þjóðlíf vort, og varð frá barnæsku fyrir sterk-
um áhrifum af þessu umhverfi sínu, þar á meðal frá mikilhæfum
foreldrum.
Hann fær tækifæri sem ungur glæsilegur maður með mikla
hæfileika til þess að beita sér fyrir framgangi ýmissa mikilla
oytjamála, sem tíminn hefur leitt í ljós að hafa orðið til bless-
unar og gagns fyrir þjóðarhúskap vorn.
Hann verður fyrsti sendiherra íslands og gegnir því starfi
um 20 ára skeið. Samkvæmt hæfileikum sínum var hann ágæt-
lega lallinn til þess starfs. Ísland vantaði einmitt þá slíkan mann.
Hann varð fyrsti þjóðhöfðingi vor íslendinga og rækti það
stari þannig, að alþjóð þakkaði honum og viðurkenndi við and-
at hans, að honum hefði tekizt að ná samhug allrar þjóðarinnar
°g sameina hana.
Elerra Sveinn Bjömsson, fyrsti forseti hins íslenzka lýðveldis,
var gæfumaður. Hann kom til starfa með þjóð vorri, einmitt
þegar hún þurfti á manni með hans hæfileikum að halda. Það
var gæfa Islands og hinnar íslenzku þjóðar að fá að njóta starfs-
uafta hans á þann hátt, sem varð.