Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1952, Page 40

Andvari - 01.01.1952, Page 40
36 Þorkell Jóhannesson ANDVARI sinn, þótt einveldi sé á fót komið. Hnignunin heldur áfram, þang- að til svo er komið, að við blasir algert fjárhagslegt hrun um alda- mótin 1700. Breyting sú, er smátt og smátt verður á viðhorfi ríkisstjómarinnar til þjóðfélagsmála almennt á öndverðri 18. öld, leiðir svo til þess undir miðja öldina, að hafizt er handa um til- raun til umbóta á atvinnuefnum þjóðarinnar, enda eru forustu- menn hennar þá vaknaðir og viðbúnir að færa sér þetta nýja við- horf í nyt og beita kröftum sínum að umbótastarfinu með djörf- ung og atfylgi. Það mun mega kalla tákn tímanna, að fyrstu beinu aðgerðir stjórnarinnar til viðréttingar íslenzku þjóðinni beindust að því að láta rannsaka skóla- og kirkjumál og koma þar á betri skipan. Reyndar var því sízt að neita, að ýmsu var áfátt um þau efni, en fáum mun þó sýnast, að þar hafi skórinn kreppt fastast að. Hér er ekki unnt að ræða neitt urn sendiför þeirra Jóns Þorkelssonar og Harboes hingað til lands og dvöl þeirra hér 1741—45, en því er þessa minnst hér, að Skúli Magnússon telur skýrslu Harboes til stjómarinnar eftir íslandsdvöl sína til þeirra atvika, er greiddu fyrir stofnun innréttinganna. Hér ber og að nefna stofnun Vís- indafélagsins danska 1742, en að þess hvötum og með atbeina Holsteins greifa, aðal-ráðgjafa Kristjáns konungs VI., lét stjórnin senda amtmanni hér spurningalista varðandi landið og náttúru þess, og skyldi hann láta hina hæfustu menn í landinu svara þess- um spumingum, en þau svör gætu síðan orðið uppistaða í all- ýtarlegri landlýsingu. Árangurinn af þessari fyrstu gagngerðu til- raun til þess að afla sér vitneskju um náttúru landsins og hagi landsmanna í einstökum greinum varð að vísu minni en vonir stóðu sjálfsagt til. Líklega varð sá árangurinn mestur, að mönnum varð Ijósara en áður, hversu nauðalítið þeir vissu um landið, og fýsti enn meira en áður að kynnast því betur, enda varð þess nu skammt að bíða, að Vísindafélagið gengist fyrir sendiför þeirra Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar 1752—57. En því get ég hér um hinar svokölluðu sýslulýsingar, er spruttu af eftirgrensl- an Vísindafélagsins 1743, að Skúli Magnússon telur, að tiltekið

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.