Fréttablaðið - 25.09.2009, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
35%
72%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009.
Fréttablaðið er með 106%
meiri lestur en Morgunblaðið
Allt sem þú þarft...
FÖSTUDAGUR
25. september 2009 — 227. tölublað — 9. árgangur
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
MÁLÞING UM BRJÓSTAGJÖF verður haldið í
Mími, Skeifunni 8, laugardaginn 26. september. Málþingið
er haldið á vegum brjóstagjafavikunnar á Íslandi. Málþingið
stendur frá 11 til 14.15, er öllum opið og er þátttaka gjald-
frjáls. www.brjostagjafavika.org
Nánar tiltekið var það í gær, hinn 24. september, sem fyrsti Guinn-ess-bjórinn var framleiddur en það var á Írlandi, nánar tiltekið í Dublin sem lögurinn var fyrst framreiddur. Hérlendis sem og annars staðar í heiminum er haldið upp á afmælið með pomp
og prakt. Þannig hafa fjölmargir barir og kaffihús haft einhkonar G i
Lamb með Guinness-bjór
250 ár eru liðin frá því að Arthur Guinness hóf framleiðslu á Guinness-bjór. Haldið er upp á afmælið hér-
lendis með ýmsum uppákomum en Þráinn Vigfússon landsliðskokkur setti saman uppskrift af tilefninu.
Blómkálsmauk og íslenskt rótargrænmeti passa að sögn Þráins Vigfússonar afar vel með lambakjötsuppskriftinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1 stk. lambahryggur, úrbeinaður og hreinsaður
1 stk. skalottlaukur, fínt skorinn1/2 engiferrót, fínt skorin1 stk. hvítlauksgeiri, fínt saxaður400 ml Guin b
150 ml rjómi
salt
sítrónusafi
Blómkálið
LAMBAHRYGGVÖÐVI með Guinness-gljáa FYRIR 4
6.990 kr.
4ra rétta tilboðog nýr A la Carte
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn með sérvöldu víni með hverjum rétti: 10.990 kr.
Barolo „Ornato“ 2004 | Ítalía.Chablis Grand Cru L
Glas af eðalvíni
· Reykt önd með fíkjum, valhnetum og rauðvínsgljáa ·
· Humarsúpa rjómalöguð með grilluðum humarhölum ·· Lambahryggur með lambaskanka og rósmarínsósu ·* E Ð A *· Fiskur dagsins útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar ·· Skyr “Tonka crème brûlée” með karamelluís ·
VEÐRIÐ Í DAG
Byrjar með látum
Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands heldur sína fyrstu tónleika.
TÍMAMÓT 26
CLIFF CLAVINLÍTIÐ ROKK AÐ LÁTA REKA SIG ÚT ÚR HVALVEIÐISKIPI
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS • SEPTEMBER 2009
ÞRÁINN VIGFÚSSON
Eldar lambakjöt
með Guinness-bjór
• matur • helgin
Í MIÐJU BLAÐSINS
SÉRBLAÐ UM
KVIKMYNDAHÁTÍÐINA
NORDISK PANORAMA
FYLGIR BLAÐINU Í DAG
Markaðurinn
Fylgir Fréttablaðinu einu sinni í mánuði
Næsta blað kemur út
miðvikudaginn 7. október
Traust
og vönduð
umfjöllun um
viðskiptalífið
Spaugstofan
snýr aftur
Fjórmenning-
arnir leituðu að
Jóhönnu á BSÍ.
FÓLK 35
Margrét ánægð með
Fangavaktina
Fangarnir á Litla-
Hrauni skelltu upp úr
á miðvikudaginn.
FÓLK 46
9
6
6
7
11
STORMUR Í fyrstu verður suðvest-
an stormur við suðaustur- og aust-
urströndina, annars hægari. Víða
rigning með morgninum en síðar
skúrir sunnan og vestan til. Skúrir
nyrðra með kvöldinu og hvessir.
VEÐUR 4
HEILBRIGÐISMÁL Gjörbreytt staða
er komin upp hjá ungu heilbrigðis-
starfsfólki vegna niðurskurðar
í heilbrigðiskerfinu. Atvinnu-
möguleikar nýútskrifaðra lækna
og hjúkrunarfræðinga hafa skerst
verulega hér á landi og hætta er
talin á að þessi hópur þurfi að leita
annað í auknum mæli.
Ein þeirra sparnaðaraðgerða
sem gripið verður til á Landspít-
alanum á næstu misserum er að
endurnýja ekki tímabundna ráðn-
ingarsamninga og ráða ekki í störf
þeirra sem hætta vegna aldurs.
„Þetta er vissulega mjög breytt
staða og það hefur sannast í gegn-
um tíðina að þeir sem hafa góða
menntun, eða annað sem er eftir-
sótt annars staðar, fara fyrstir,“
segir Elsa B. Friðfinnsdóttir, for-
maður Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga. Hún segir að finna megi
líkindi með þróuninni innanlands
á undanförnum árum. Vel mennt-
að fólk flytji af landsbyggðinni
til höfuðborgarsvæðisins í leit að
tækifærum.
„Fólk skýtur svo rótum í borg-
inni og það sama mun gerast núna.
Fólk flytur og kemur ekkert endi-
lega aftur.“ Elsa útilokar því ekki
landflótta en setur þann varnagla
að ástandið sé heldur ekki gott
innan heilbrigðisgeirans annars
staðar í Evrópu.
Elsa segir að niðurskurðurinn
hitti líka hjúkrunarfræðinema
fyrir. „Fjórða árs nemar hafa verið
að vinna hlutastörf yfir veturinn
og þeir verða trúlega ekki endur-
ráðnir þegar þeirra samningar
renna út á næstu mánuðum.“
Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir,
formaður Félags ungra lækna,
segir að líklegt megi teljast að
ungir læknar fari fyrr út í sérnám
en annars hefði verið og einhverjir
komi seinna heim. Það geti þýtt að
fleiri setjist að erlendis til fram-
búðar en annars hefði verið.
Hjördís þekkir dæmi þess að
unglæknar séu ráðnir í skemmri
tíma en áður, og þá í sex mánuði
í stað tveggja ára áður. Einnig sé
verið að fækka stöðugildum á svið-
um þar sem álagið hafi verið mikið
fyrir. „Þetta er það sem við höfum
mestar áhyggjur af, að við getum
ekki sinnt okkar starfi eins vel og
við kysum.“
Hjördís segir að á Landspítalan-
um hafi starfshópur verið settur á
fót sem skoði vinnuframlag ungra
lækna.
„Við erum að sinna þannig starfi
að það er ekki hægt að minnka
vinnuframlag okkar án þess að
það geti haft alvarlegar afleiðing-
ar og því er tilkoma starfshópsins
sérstakt ánægjuefni.“
- shá / sjá síðu 6
Gætum misst unga lækna og
hjúkrunarfræðinga úr landi
Töluverð hætta er talin á því að ungt og vel menntað heilbrigðisstarfsfólk flýi land í atvinnuleit. Nýútskrif-
aðir hjúkrunarfræðingar geta ekki gengið að atvinnu vísri, eins og var. Ungir læknar fara fyrr í sérnám.
Guðjón Valur
inn á topp 20
Kominn í hóp
markahæstu
leikmanna
þýsku úrvals-
deildar innar
i handbolta
frá upphafi.
ÍÞRÓTTIR 40
POPP KEMUR ÚT Í FYRSTA SKIPTI
Donald Trump hafði
áhyggjur af Íslandi
Ingibjörg Ragnheiður úr Miss Universe í viðtali
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
ORKUMÁL Fyrirtækið Reykjavík Geothermal stýrir
nú jarðhitaleit fyrir Masdar, sem er fyrirhuguð
borg í furstadæminu Abu Dhabi.
Að fyrirtækinu standa Guðmundur Þóroddsson,
fyrrverandi forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, og
ýmsir félagar hans sem ætluðu á sínum tíma að
starfa fyrir Reykjavík Energy Invest, REI.
Verkefni RG í Abu Dhabi hljóðar upp á tvö-
hundruð milljónir króna og stendur í átta mánuði.
Ef vel gengur að finna jarðhitann verður framhald
á því, að sögn Guðmundar.
Í Masdar á einungis að nýta endurnýjanlega
orkugjafa og borgin á að koma Abu Dhabi í forystu
í umhverfismálum. Þar á að stofna umhverfisvæn
fyrirtæki og bensínbílar verða bannaðir.
Hugmyndin um að fara í jarðhitaleit í Masdar
mun hafa komið frá Ólafi Ragnari Grímssyni for-
seta. - kóþ / sjá síðu 4
Útrás íslensks orkufyrirtækis heldur áfram í Masdar í Abu Dhabi:
REI-menn í framtíðarborginni
BANDARÍKIN Misskilningur á
tæknifrjóvgunarstofu í Sylvania
í Ohio í Bandaríkjunum hefur
orðið til þess að kona gengur nú
með barn sem hún á ekki.
Konan heitir Carolyn Savage
og er fertug. Tíu dögum eftir að
hún gekkst undir tæknifrjóvgun
var henni og manni hennar sagt
að mistök hefðu orðið á stofunni
og hún bæri barn annars pars
undir belti.
Henni var boðið að fara í
fóstur eyðingu en ákvað að gera
það ekki, þrátt fyrir að nú sé
hún ófær um að eignast fleiri
börn.
Carolyn hefur leyft foreldrum
barnsins að fylgjast með með-
göngunni og þau munu fá barn-
ið þegar það fæðist, en hún fer
í keisaraskurð eftir tvær vikur.
Savage-hjónin ætla þó í skaða-
bótamál við tæknifrjóvgunar-
stofuna vegna málsins. - þeb
Mistök í tæknifrjóvgun:
Gengur með
rangt barn
LAUFATÍNSLA Í KÓPAVOGI Haustlitirnir setja svip sinn á Kópavogsdalinn um þessar mundir. Sara Ósk Stefánsdóttir nýtti tækifærið
til að tína þar laufblöð þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM