Fréttablaðið - 25.09.2009, Blaðsíða 66
ÞAÐ ER SMART AÐ SPARA
Sparitilboð N1 hjálpar þér að spara tugi þúsunda á ári.
Reiknaðu dæmið fyrir þig og þinn bíl á n1.is.
Skráðu þig núna á n1.is eða í síma 440 1100.
„Tíminn
hjálpar
mikið.
Mér
fannst
frægðin
vera
kvöð
fyrst um
sinn.
Svo lærir maður að tak-
ast á við hana.“
MEL GIBSON
spjallar um frægðina.
„Við erum að
ræða málin.
Ég skal vera
hreinskilin;
við erum að
skoða mögu-
leikana. En
þegar maður
er að þróa
hugmynd
vill maður
ekki deila henni
með heimin-
um.“
GERI HALLIWELL
um mögulega endur-
komu hljómsveitarinn-
ar Spice Girls.
„Mín réttlæting er sú að
flest fólk á mínum aldri
eyðir allt of miklum tíma
í að hugsa um framtíðina.
Tímanum sem það eyðir í
að hugsa um lífið eyði ég í
drykkju.“
AMY WINEHOUSE
söngkona ræðir um
ofdrykkju sína.
folk@frettabladid.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Stórleikarinn Dennis Quaid
er ekki búinn að gleyma
Íslandsheimsókn sinni fyrir
25 árum. Hann langar til
að sjá tökurnar úr Enemy
Mine sem aldrei voru not-
aðar.
Töluverð eftirvænting ríkti
á Íslandi sumarið 1984 þegar
útsendarar kvikmyndafyrirtækis-
ins Twentieth Century Fox mætti
til Vestmannaeyja og ætluðu að
taka upp geimverumyndina Enemy
Mine. Tökurnur frægu hafa aldrei
litið dagsins ljós en bandaríski stór-
leikarinn Dennis Quaid, sem lék í
myndinni á sínum tíma, er þó sann-
færður um að þær liggi einhvers
staðar í reiðileysi. „Það hefur eng-
inn séð þessar tökur en ég væri
alveg til í að sjá þær. Þetta var allt
annað en það sem Wolfang Peter-
sen gerði síðan seinna meir,“ sagði
Quaid í samtali við kvikmynda-
vefinn i09.com nýverið.
Upphaflega var gert ráð fyrir
að kvikmyndin yrði að mestu leyti
gerð í Vestmannaeyjum. Leik-
stjóri myndarinnar var Richard
Loncraine og myndin var hugsuð
sem andsvar við Star Wars-æðinu.
Quaid rifjaði þessa eftirminni-
legu Íslandsheimsókn upp í við-
tali við Morgunblaðið fyrir fjór-
um árum. Íslenskir fjölmiðlar
fylgdust grannt með gangi mála á
sínum tíma en fyrst var greint frá
komu kvikmyndagerðarmannanna
í DV 15. mars 1984. Þar kom fram
að þeir vildu taka uppi í Prestvík
og í kjölfarið var skrifað undir
samstarfssamning við fulltrúa
Vestmannaeyjabæjar. Töluverð
eftirvænting og spenna ríkti í þjóð-
félaginu fyrir komu Hollywood-
stjarnanna og stóra stundin rann
loks upp þegar leikstjórinn Lonc-
raine, Quaid og Louis Gossett Jr.,
sem þá var nýkrýndur Óskarsverð-
launahafi fyrir kvikmyndina An
Officer and a Gentleman, mættu
til landsins. Tökur fóru á fullt og
allt leit út fyrir að Vestmannaeyjar
væru á leiðinni til Hollywood.
En svo kom sprengjan. Loncraine
var rekinn án nokkurs fyrirvara.
Á forsíðu DV mánudaginn 7. maí
birtist fyrirsögnin „Leikstjóran-
um óvænt sparkað“ en þar var
haft eftir einum starfsmanni
myndarinnar að framleiðendurn-
ir hefðu viljað fá meiri Star Wars-
brag á myndina. Leikstjórinn stóð
fastur á sínu og vildi halda í hin
íslensku sérkenni. Loncraine hélt
tilfinningaþrungið kveðjuhóf á
Hvolsvelli með tárin í augunum ef
marka má frásögn DV og hélt nán-
ast samdægurs til London. Þýska
leikstjóranum Wolfgang Petersen
var falið það verkefni að taka upp
þráðinn að nýju en honum leist
ekkert á Ísland og flutti tökuliðið
til Þýskalands þar sem myndin var
loks gerð.
Framvinda málsins virtist hafa
verið snögg því Loncraine var í við-
hafnarviðtali við Morgunblaðið dag-
inn áður, sunnudaginn 6. maí, þar
sem hann lýsti því yfir hversu miklu
máli myndin skipti hann. Íslenskir
fjölmiðlar voru á einu máli um að
þarna hefði farið forgörðum kær-
komið tækifæri til að koma Íslandi á
kortið sem eftirsóknarverðu ferða-
mannalandi. Þeir tóku þó gleði sína
á ný skömmu síðar þegar tökulið
James Bond-myndarinnar A View
to a Kill mætti í Jökulsárlón með
Roger Moore fremstan í flokki.
freyrgigja@frettabladid.is
Dennis Quaid rifjar upp
geimverutökur á Íslandi
MIKIL
UMFJÖLLUN
Bæði Morgunblaðið og
DV fjölluðu ítarlega um
geimverumyndina Enemy
Mine á sínum tíma. Snöggt
skipast veður í lofti í
Hollywood því Morgun-
blaðið birti viðhafnarviðtal
við leikstjórann Loncraine
sunnudaginn 6. maí. Hann
var rekinn daginn eftir sam-
kvæmt frétt DV. Dennis
Quaid er sannfærður um
að Íslands tökurnar séu
einhvers staðar til.