Fréttablaðið - 25.09.2009, Blaðsíða 78
46 25. september 2009 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. báru að, 6. tónlistarmaður, 8.
ræktað land, 9. árkvíslir, 11. hvað, 12.
manna, 14. glæta, 16. hæð, 17. kirna,
18. kvenkyns hundur, 20. tveir eins,
21. engi.
LÓÐRÉTT
1. tafl, 3. pot, 4. spámaður, 5. líða vel,
7. sígild list, 10. rölt, 13. svipuð, 15.
nabbi, 16. svif, 19. mun.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. komu, 6. kk, 8. tún, 9. ála,
11. ha, 12. karla, 14. skíma, 16. ás, 17.
ker, 18. tík, 20. ðð, 21. akur.
LÓÐRÉTT: 1. skák, 3. ot, 4. múham-
eð, 5. una, 7. klassík, 10. ark, 13. lík,
15. arða, 16. áta, 19. ku.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Dominique Strauss-Kahn.
2 Bandaríkjunum.
3 Ljóðveldið Ísland.
„Maður er bara farinn að æfa
jólavísurnar og hvernig maður
segir hó, hó, hó. Maður hlýtur
að koma sterklega til greina sem
jólasveinninn í ár,“ segir Úlfar
Eysteinsson, matreiðslumeistari
á Þremur Frökkum. Seðlabankinn
ákvað í gær að lækka ekki stýri-
vexti og eru þeir því enn tólf pró-
sent. Úlfar og Tómas Tómasson á
Hamborgarabúllunni bundust fast-
mælum um að skerða ekki skegg
sitt fyrr en stýrivextirnir væru
komnir niður fyrir tíu prósent og
þeir verða því að bíða fram í nóv-
ember með það að raka sig.
Báðir eru þeir komnir með nokk-
uð myndarlegt skegg en Úlfar
hefur ekki rakað sig á fimmta
mánuð, frá því um miðjan júní.
Þegar næsti stýrivaxtafundur
Seðlabankans verður haldinn er
liðið hálft ár frá því rakvélin fór
síðast á loft. Eða hvað? „Tja, sko
við gerðum með
okkur samning um
að við mættum
raka í kringum
hálsinn, skeggið
var eiginlega bara
að drepa okkur,“
segir Úlfar en bætir
því við að skegg-
samtök kokk-
anna ætli að
halda þetta
út. „Maður
batt samt
vonir við
að þetta
myndi gerast núna; forkólfar
verkalýðs hreyfingar innar,
atvinnulífsins og stjórnmálamenn
voru farnir að gæla við eins stafs
tölu þannig að þetta eru ákveðin
vonbrigði,“ segir Úlfar, sem viður-
kennir að þetta sé að verða svo-
lítið erfitt. „Ég fékk
mér ís með
súkkulaði-
sósu um
daginn
og ég
þurfti að fara í bað á eftir.“
Ekki er þó loku skotið fyrir það
að fleiri muni bætast í skeggsam-
tök kokkanna því Úlfar og Tómas
hafa fengið töluverðan stuðning við
þessu loðna framtaki sínu. „Menn
úti á landi hafa tekið þetta upp hjá
sér og hver veit, kannski munum
við bara bjóða í hrefnukjöt í
nóvember þegar næsti fund-
ur er og setja smá pressu á
seðlabankastjórann.“ - fgg
Kafloðnir kokkar þurfa að bíða enn um sinn
PRESSA Í NÓVEMBER Skegg þeirra
Úlfars og Tómasar er orðið nokkuð
myndarlegt og mun halda áfram
að vaxa þar til næsti stýrivaxtafundur
verður haldin í nóvember. Már
Guðmundsson er seðlabanka-
stjóri.
„Við ákváðum að gera þetta enda
áttum við í nánu samstarfi við
bæði fanga og allt starfsfólk Litla-
Hrauns. Við réðumst náttúrlega
þarna inn á heimili þeirra í tvær
vikur en þeir sýndu okkur alveg
ótrúlega hjálpsemi og reyndust
mikil og góð hjálp,“ segir Ragn-
ar Bragason leikstjóri en það var
heldur betur kátt á hjalla á Litla-
Hrauni á miðvikudaginn þegar
fulltrúar Fangavaktarinnar frum-
sýndu fyrstu tvo þættina í fang-
elsinu. Búið var að gera bíósal í
íþróttahúsi fangelsisins og að lok-
inni sýningu var boðið upp á sam-
lokur og með því. Meðal þeirra
sem fóru á Litla-Hraun með Ragn-
ari voru Pétur Jóhann Sigfússon,
Jón Gnarr og handritshöfundurinn
Jóhann Ævar Grímsson.
Ragnar segir að þótt þrenningin
Georg, Daníel og Ólafur Ragnar sé
fyrirferðarmest hafi þeir Björn
Thors og Sigurður Hrannar sleg-
ið í gegn á Hrauninu en þeir leika
þrjótana í þáttunum. „Í kaffispjall-
inu á eftir kom alveg skýrt fram að
það mætti finna þá í fleiri en einu
eintaki þarna inni,“ segir Ragnar
en auk þeirra koma Ingvar E. Sig-
urðsson, Ólafur Darri og Gunnar
Hansson einnig töluvert við sögu.
Ragnar var ekki í vafa um að þetta
hefði verið ein skemmtilegasta
frumsýning sem hann hafi farið á.
„Ég held að ég fari ekki með fleip-
ur þar, þeir lifðu sig algjörlega inn
í þetta og maður upplifði þættina á
allt öðruvísi hátt þarna.“
Margrét Frímannsdóttir, for-
stöðukona Litla-Hrauns, var einn-
ig mjög ánægð með útkomuna. Og
sagði að fangarnir hefðu skemmt
sér konunglega á sýningunni. „En
það verður eflaust hlegið á öðrum
stöðum hérna heldur en heima í
stofu,“ segir Margrét og bætir því
við að henni þótti mikið til þessa
framtaks koma. „Þetta tók náttúr-
lega töluverðan tíma og fangarn-
ir lögðu mikið á sig, gáfu eftir úti-
vistartíma og íþróttahúsið á meðan
á tökunum stóð. En aldrei kom til
neinna árekstra og þeir kunna vel
að meta það þegar þeim er sýnd
virðing og þakklæti eins og þarna
var gert.“ Margrét segist sjálf
hafa séð suma takta frá sér í þátt-
unum. Og að hún hafi síður en svo
ekki verið sú eina. „Nei, og ég held
að ég geti ábyrgst að strákarnir
hérna ætla ekki að missa af einum
einasta þætti.“
freyrgigja@frettabladid.is
RAGNAR BRAGASON: BJÖRN THORS SLÓ Í GEGN MEÐAL FANGA
Mikið hlegið á Litla-Hrauni
MIKIÐ STUÐ OG MIKIÐ GAMAN
Það var mikið hlegið á Litla-Hrauni á miðvikudaginn þegar vistmenn þar horfðu
fyrstir allra á tvo fyrstu þættina í Fangavaktinni. Ragnar Bragason, leikstjóri
þáttanna, segist aldrei hafa farið á svona skemmtilega frumsýningu og Margrét
Frímannsdóttir telur sig geta ábyrgst að strákarnir á Hrauninu eigi ekki eftir að
missa af einum einasta þætti.
„Sushi-ið á Fiskmarkaðnum í
Aðalstræti er í miklu uppáhaldi.
Þar er hægt að fá frábært sushi
á frábæru verði.“
Guðni Sigurðsson, höfundur Frasa-
bókarinnar.
Útvarpsmaðurinn síkáti, Sigvaldi
Kaldalóns, eða Svali á FM 957, var
einn þeirra frægu Íslendinga sem
höfðu ráðgert að fara til Argentínu
og taka þátt í þrautakónginum
Wipeout. Nú heyrist það hins vegar
að Svali hafi dregið sig úr þessari
keppni af óviðráðanlegum
orsökum en samstarfs-
kona hans, Sigga Lund,
kemur í staðinn. Eftir
sem áður munu kapp-
ar á borð við Fjölni
Þorgeirsson, Ívar
Guðmunds-
son og Egil
Einarsson
verða meðal
keppenda.
Gengi þeirra íslensku mynda
sem sýndar voru á Toronto-kvik-
myndahátíðinni var æði misjafnt.
Dagur Kári og kvikmynd hans, The
Good Heart, fékk ekki nógu góðar
viðtökur hjá gagnrýnendum The
Hollywood Reporter og Variety.
Hins vegar geta Margrét Dagmar
Ericsdóttir og Friðrik Þór Friðriks-
son nokkuð vel við unað því gagn-
rýnandi áðurnefnds Variety hrósaði
heimildarmyndinni Sólskinsdrengur-
inn í hástert. Rúsínan
í pylsuendanum er
vafalítið sú að þau
hafa náð samning-
um við dreifingar-
fyrirtækið Film Sales
Company en innsti
koppur þar í búri
er fyrrverandi
forstjóri hins virta
framleiðslufyrir-
tækis Miramax.
Síðustu ár í leikhúsheiminum
hafa einkennst af útrás hinna og
þessara uppfærslna. Pétur Jóhann
Sigfússon og Stefán Jónsson eru
engin undantekning á því þótt þeir
fari nú reyndar ekki út fyrir hina
íslensku lögsögu. Sannleikur inn,
einleikur Péturs í leikstjórn Stefáns,
verður nefnilega settur upp í
samkomuhúsi
Vestmannaeyja,
Höllinni, hinn
13. nóvember.
Pétur mun
væntanlega
kitla hlátur-
taugar Eyja-
manna. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Hluti af okkar markaðsstefnu er
að festa okkur ekki við eina staðal-
mynd heldur viljum við fá konur af
öllum aldri, stærðum og gerðum til
að auglýsa vöruna okkar. Markhóp-
ur okkar er líka svo stór og breiður,
hér versla bæði sautján ára stúlkur
og sextugar konur og við viljum ná til
allra þessara kvenna með auglýsing-
um okkar,“ segir Ásta Kristjánsdótt-
ir um nýja auglýsingaherferð E-label,
sem hefur vakið mjög jákvæð við-
brögð hjá viðskiptavinum fyrirtækis-
ins. Á auglýsingunni má meðal ann-
ars sjá Urði Hákonardóttur, fyrrum
söngkonu hljómsveitarinnar GusGus,
Silju Hauksdóttur leikstjóra, Tinnu
Bergs fyrirsætu, söngkonuna Þórunni
Antoníu og Sigríði Þorsteinsdóttur
hjúkrunarfræðing. Að sögn Ástu mun
auglýsingin birtast á netinu og í tíma-
ritum auk þess sem lítill bæklingur
með myndunum mun fylgja hverri
flík. E-label fer í verslun Topshop í
London nú í haust og því er óhætt að
segja að myndirnar af þessum föngu-
legu, íslensku konum munu fara víða.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fyrir-
tækið hefur farið af stað með slíka
herferð því áður höfðu meðal annars
Andrea Róbertsdóttir og Ragnhildur
Gísladóttir setið fyrir í auglýsingum
E-label. - sm
Íslenskar konur auglýsa E-label
HÖNNUN FYRIR ALLA Leikstjórinn Silja
Hauksdóttir sat fyrir í nýrri auglýsingaherferð
tískufyrirtækisins E-label.
MYND/ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR
skó
Fr kó