Fréttablaðið - 25.09.2009, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 25.09.2009, Blaðsíða 52
6 föstudagur 25. september tíðin ✽ stjörnur GUÐDÓMLEGT KREM Divine-kremið frá L‘Occitane gefur þér geislandi hraust útlit og berst við öldrun húðarinnar í leiðinni. Það eru ekki margar íslensk-ar konur sem hafa sömu at- vinnu og Fjóla Björk Jensdóttir. Hún er stjörnuspekingur og starf- ar við að búa til persónu legar bækur byggðar á stjörnukortum fólks. Fræðin nam Fjóla innan um kornakra Iowa-ríkis í Bandaríkj- unum, en hún útskrifaðist með mastersgráðu frá Maharishi Uni- versity of Management árið 2006. Skólinn er bandarískur en með indversku ívafi og byggir náms- skrá hans á vedískum fræð- um. Fjóla sérhæfði sig í jóga og sjálfsskoðun og tók BA-próf í ayurvedískum náttúrulækning- um og stjörnuspeki. „Þetta var yndislegur tími, við stunduðum hugleiðslu tvisvar á dag og mér hefur sjaldan liðið betur. Mér leið eins og ég hefði alltaf átt heima þarna.“ Stjörnuspekin og náttúrulækn- ingarnar tengjast nánum bönd- um, segir Fjóla. Í Austurlöndum sé það vel þekkt staðreynd en þar skoði náttúrulæknar stjörnu- kort og búi til jurtablöndur meðal annars út frá því sem þeir lesa úr því. Fjóla hefur hins vegar ekki getað nýtt þekkingu sína í náttúrulækningum hér á landi, þar sem erfitt reynist að fá leyfi. „Meginreglan er sú að það má ekki nota náttúrulyfin ef einhver virkni finnst í þeim. Og að sjálf- sögðu er virkni í þeim, þannig að þetta eru meira og minna bann- aðar jurtir, sem er slæmt,“ segir Fjóla. Stjörnuspekingurinn Fjóla Jensdóttir nam vedísk fræði í bandarískum háskóla með indversku ívafi: SKRIFAR STJÖRNUBÆKUR Samkvæmt vísindum stjörnufræðinnar eru pláneturnar samansafn orku og tíðni og gefa frá sér ákveðið segul- eða raforkusvið sem hefur áhrif á allt líf á jörðinni. Stjörnukortið er kort af himnunum, eins og mynd sé tekin frá miðju jarðar, í gegnum þann stað og á þeim tíma þar sem fæðingin einstaklings átti sér stað. Það sýnir staðsetningu plánetnanna og tengingar þeirra við hinn nýfædda einstakling. Stjörnuspeki eru þau fræði sem skoða það saman safn af áhrifum sem orkustraumar plánetnanna hafa á líkamlegt og andlegt líf okkar hér á jörðinni. Hvað er stjörnuspeki? Stjörnuspekingurinn Fjóla Fáir Íslendingar deila starfsheiti Fjólu en hún á sex ára nám í vedískum fræðum að baki. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Þegar fram líða stundir ætlar hún að fara meira út í náttúrulækning- arnar, en þangað til einbeitir hún sér að stjörnuspekinni. Hún skrifar bækur fyrir fólk sem hún byggir á stjörnukorti þeirra. „Sú ítarlegasta er um fjörutíu síður. Í henni fer ég vel í grunnþætti stjörnukortsins. Svo er inngangskafli þar sem ég spjalla um það sem helst ber af í því kortinu.“ Þá er hún einnig með minni bækur, eins og Framabókina og Örlagabókina. Í síðasta lagi er það Barnabókin, sem hefur verið vinsæl sem skírnar- eða sængur- gjöf. „Í þeim bókum gæti ég mín á að taka bara fram það saklausa og góða. Ég tek allt út sem gæti verið særandi, orkað tvímælis eða á einhvern hátt verið túlkað sem „slæmt“. Fjóla segir ótrúlegt hversu vel stjörnukort sýnir líf fólks og hún trúir því að allt lífið sé meira og minna skráð í stjörnurnar. „Ég er engan veginn skyggn. Þetta stendur einfaldlega skrifað í kort- unum. Í vedískri stjörnuspeki er það tunglið sem ræður ríkjum, ekki sólin eins og í vestrænni stjörnuspeki. Allir vita að tungl- ið hefur áhrif á vatnið á jörðinni. Á nákvæmlega sama hátt hefur það líka áhrif á okkur og okkar líf og það gera hinar pláneturn- ar líka.“ Þeir sem vilja vita meira um Fjólu geta kíkt á heimasíðuna www.fjolajensdottir.is þar sem frekari upplýsingar um bækurn- ar er að finna. - hhs Ég er engan veginn skyggn. Þetta stendur einfaldlega skrifað í kortunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.