Fréttablaðið - 25.09.2009, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 25.09.2009, Blaðsíða 36
6 • Upptökustjórinn Axel Árnason hefur unnið með hljóm- sveitum á borð við Jeff Who?, Mammút og hinum ávallt hressu Veðurguðum. Hann opnaði nýlega hljóðverið ReFlex og heldur þar áfram að stjórna upptökum á plötum margra af bestu hljómsveitum landsins. Axel opn- aði dótakassann fyrir POPP. „Ég hef alltaf verið mjög hrifinn af því gamla. Ef ég hefði allan tímann í heiminum myndi ég taka upp á teip,“ segir upptökustjór- inn Axel Árnason um ódauðlega ást sína á segulbandstækninni. Afar fátítt er að hljómsveitir taki upp á segulband í dag. Al- gengasti upptökubúnaðurinn er Pro Tools, en hann er einnig sá eini sem Axel kann eitthvað á, að eigin sögn. Það virðist einnig vera eina upptökufor- ritið sem hann þarf að kunna á, enda hefur hann unnið með mörgum af bestu og vinsælustu hljómsveitum landsins og pró- dúserað margar frábærar plötur síðustu ár. Axel segir að inni í hljóðverinu sé einn af bestu félögum hans compressor-búnaðurinn. Hann upplýsir fávísan blaðamanninn um að compressor sé notaður til að jafna hljóð og breyta karakt- er þess. „Hann slær niður hljóð sem fer yfir ákveðinn þröskuld, en ég ræð hvernig hann gerir það. Hversu hratt, hart, mjótt,“ segir hann. Störf upptökustjóra eru afar misjöfn í eðli sínu, sérstaklega á Íslandi. Dæmi eru um að menn mæti á staðinn, setjist við upp- tökumixerinn, ýti á REC og bíði svo eftir því að hljómsveitin klári. Axel er af annarri tegund upp- tökustjóra og tekur virkan þátt í upptökuferlinu, skiptir sér af lögunum og hjálpar hljómsveit- unum jafnvel við útsetningar. Hann segir misjafnt hvern- ig hljómsveitir vilji haga sínum störfum. „Ég kem hreint fram með hvernig ég vinn,“ segir Axel. „Flestir vita það og ráða mig á þeim forsendum. Ég reyni að vera trúr tónlistinni. Ég er alltaf með mínar aðferðir og ákveðin trix og fókus, en mér finnst mikilvægt að finna rétta jakk- ann fyrir hvert verkefni til að klæða það í.“ Platan The Blueprint 3 með at- hafnamanninum Jay-Z situr nú á toppi bandaríska Billboard listans. Á plötunni er að finna lagið D.O.A, eða Death of Auto-Tune. Eins og titillinn gefur til kynna fjallar lagið um hugbúnaðinn sem hefur tröllriðið tónlistariðnaðinum undanfarið og sífellt fleiri nýta til þess að brengla röddina í stað þess að leiðrétta tón- hæð, sem er algengasta og „rétta“ notkunin. Samkvæmt vefsíðu New York Times hefur sala á Auto Tune aukist síðan lag Jay-Z kom út. „Við gætum ekki keypt svona góða auglýsingu,“ sagði Marco Alpert, aðstoðarmarkaðsstjóri Antares, sem framleiðir Auto-Tune. Hann vildi ekki fara út í nákvæmar sölutölur, en tók fram að aukn- ingin væri talsverð. „Ég held að Jay-Z hafi séð Auto-Tune notað í auglýsingu skyndi- bitastaðarins Wendys – það var kornið sem fyllti mælinn.“ Marco segist ekkert skipta sér að því hvernig fólk noti hugbúnaðinn. „Þetta er tól sem er notað af folki sem kaupir það,“ segir hann. „Við erum ánægðir með að neytendurnir finni ný not fyrir það.“ SETUR TÓNLISTINA Í RÉTTA JAKKANN FLOTTUR JAKKI Upptökustjórinn Axel „Flex Árnason opnar stúdíó á Hólmaslóð 4. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL POPPGÚRÚIÐ: AXEL „FLEX“ ÁRNASON ER HRIFINN AF ÞVÍ GAMLA JAY-Z VILDI DREPA AUTO-TUNE MISHEPPNUÐ MORÐ- TILRAUN JÓK SÖLU DÓTAKASSINN Pro Tools, Universal Audio DSP card, Com- pressor 1176, MIDI contr- oller, Peluso hljóðnemar, Yamaha NS10. NÝJA GRÆJAN Fatso er viðbót (plug- in) við Universal Audio sem Axel segir að hljómi gríðarlega vel. „Ég er rétt að byrja að kynnast því,“ segir hann. „Fatso er compressor/tape-simulat- or. Hann getur bæði compressað og svo eru tape simulator pælingar.“ Eins og skýringin gefur til kynna, þá líkir Fatso eftir segulbandsupptöku – sem Axel er einmitt mjög hrif- inn af. PLÖTUR SEM AXEL PRÓDÚSERAÐI NÝLEGA: Jeff Who? – Jeff Who? Mammút – Karkari Ingó & Veðurguðirnir – Góðar stundir Lada Sport – Time and Time Again PLÖTUR SEM AXEL VINNUR AÐ ÁSAMT HLJÓMSVEITUNUM: Hoffmann – Your Secrets Is Safe With Us Morðingjarnir – Flóttinn mikli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.