Fréttablaðið - 25.09.2009, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 25.09.2009, Blaðsíða 38
8 • - Betri kjör á bankaþjónustu - Húsaleiguábyrgð - Framfærslulán - Lán fyrir skólagjöldum o.fl. Kaupþing námsmenn - þegar námið skiptir höfuðmáli ÍS L E N S K A S IA .I S K A U 4 67 83 0 8/ 09 TEXTI: Atli Fannar Bjarkason MYND: Valgarður Gíslason Ég var í mánuð á Bahamaeyjum. Það var ekki leiðinlegt,“ segir Ingibjörg Ragnheiður. „Þetta var flottasta hótel sem ég hef á ævi minni séð, það var allt í marmara og þjónum. Það var stíf dagskrá sem hófst eldsnemma á morgnana og stóð langt fram á kvöld, alla dagana.“ - Það var semsagt vaknað klukkan sjö og farið út? „Nei, við vöknuðum svona f jögur- f imm t i l að græja okkur.“ - Á morgnana? „Já (hlær).“ - Ok! Ég hélt að það hefði verið svo mikið fyllirí að enginn færi á fætur fyrr en síðdegis … „Nei, það var ekkert áfengi leyfilegt.“ - Ekkert áfengi? „Nei.“ - Bara ekkert? „Nei, ekki fyrr en eftir keppn- ina.“ - Þá var partí? „Já, þá var partí.“ Ég spyr Ingibjörgu hvað í ósköpunum fagrar stúlkur geri þegar þær dvelja í heilan mánuð saman á fimm stjörnu hóteli á hitabeltiseyju. Vonbrigðin voru ólýsanleg þegar hún taldi upp köfun með höfrungum, flugferðir á milli eyjanna og tískusýningar … Ég sem sá fyrir mér brúsa af sólarolíu og einlæga hjálpsemi fegurstu stúlkna heims … Donald Trump hafði áhyggjur af Íslandi Þrátt fyrir að stúlkurnar brögð- uðu ekki áfengi fyrr en eftir keppni þá fóru þær í nokkur partí. Þar sem auðmaðurinn Donald Trump er eigandi Miss Universe- keppninnar liggur beinast við að spyrja hvort hann hafi mætt á svæðið. „Já, hann var þarna.“ - Og hittirðu Donaldinn?“ „Já.“ - Hvernig er hann? Er hann eins og í sjónvarpinu? „Nei, ég hef reyndar ekki horft á The Apprentice, en ég tékk- aði á þáttunum á Youtube áður en ég fór út vegna þess að allir voru að tala um þennan grimma mann. En hann er voða góður, almennilegur.“ - Ekki ríkur dóni? „Nei, hann virkar ekki svoleiðis á mig.“ - Var hann þarna með allan tímann eða kom hann bara í partíin með viðhöfn eins og í þáttunum? „Já, það var svoleiðis. Það voru allir alveg „vóóó“.“ Samkvæmt Ingibjörgu er Don- ald vel með á nótunum um fjár- málamarkaði heimsins þar sem það fyrsta sem hann spurði um var ástandið á Ísland. „Við spjölluðum aðeins um það.“ - Og baðstu hann um hjálp fyrir Íslands hönd? „Nei, ég hefði nú átt að gera það. Hann talaði vel um Íslend- inga, sagði að við hefðum alltaf verið hörkuþjóð og kæmumst alveg út úr þessu.“ - Hefur hann trú á okkur? „Já (hlær), hann hefur trú á okkur.“ Reynir fyrir sér sem módel í New York Donald Trump var ekki sá eini sem hafði áhyggjur af Íslandi því stelpurnar í keppninni spurðu hana mikið út í ástandið. Ingi- björg sagðist lítið vilja tala um það og talaði frekar um sérstöðu Íslands, ósnortna náttúru, raun- veruleg gæði sem eru, eins og við vitum öll, að finna á hverju strái landsins. „Ég kynntist fullt af stelpum og fullt af fólki í kringum keppn- ina sem ég er í sambandi við á hverjum einasta degi.“ - Er þetta fólk úr bransanum sem gæti hugsanlega hjálpað til? „Já, mögulega.“ - Var enginn flagari sem lofaði að gera þig að stórstjörnu? „Nei … Ég held að það sem ger- ist í kjölfarið sé í mínum höndum. Ég lít á það þannig.“ - Og hvað ætlarðu að gera? „Ég æt la bara … Það er leyndó.“ - Leyndó?! (hlær) kemurðu í viðtal og segir bara leyndó? „Nei (hlær), ég segi svona. Mig langar að halda áfram og reyna fyrir mér í þessum bransa á meðan ég er ung og barnlaus. Það kemur í ljós hvert ég næ.“ Ingibjörg er á leiðinni til New York þar sem hún ætlar að reyna fyrir sér í hörðum heimi fyrir- sætubransans. Hún er á lausu og fer því ein, en tekur fram að það sé ekkert mál. Hún hefur áður búið ein í fjarlægum löndum og sé auk þess mjög prívat- manneskja. Stillir væntingum í hóf Ingibjörg er með báða fætur á jörðinni og fer ekki til New York með stjörnur í augunum í von um skjótan frama. „Ég er að taka fyrstu skrefin eftir keppnina. Mig langar að halda áfram, keppnin kveikti smá bál.“ - Þú sást sem sagt að það var möguleiki að starfa við þetta? „Já. Svo komst ég í topp 15 og sá að það var raunhæfur möguleiki.“ Hún segist vera hógvær í sam- bandi við sjálfa sig og passar sig á því að gera sér ekki of miklar vonir. „Maður á að hugsa stórt, eins og Donald segir: „Think big“ (hlær). En ég þori ekki að setja mér of háleit markmið. Ég fer út og svo gerist það sem gerist.“ - Markmiðið er sem sagt að sjá hvað gerist og grípa tækifærin sem gefast? „Já. Ég helli mér út í þetta og það kemur út úr þessu það sem kemur út úr þessu.“ NEW YORK, NEW YORK Þegar Ingibjörg var á Bahamaeyju í Miss Universe bárust fréttir um a karlatímaritsins Playboy spáði hen keppninni. Fréttirnar bárust að sjá hennar. „Mér fannst stórt að heyra voru allir að tala um þetta úti,“ seg „Ég verð að viðurkenna að ég hef Playboy og veit lítið um hvernig b Blaðamaður (sem les að sjálfsög í Playboy) útskýrir að Playboy sé Hin 24 ára Ingibjörg Ragnheiður Egilsdóttir keppti í ungfrú Ísland árið 2008 og lenti í öðru sæti. Henni bauðst þá að taka þátt í Miss Universe, sem er í eigu auðmannsins Donalds Trump, en hún hafnaði því vegna þess hversu stuttur undirbúningstíminn var. Í apríl fékk hún svo annað tækifæri og greip það. Hún fór til Bahamaeyja í sumar, tók þátt í Miss Universe og endaði í einu af 15 efstu sætunum. Nú er Ingibjörg á leiðinni til New York þar sem hún ætlar að freista gæfunnar í hörðum heimi módelbransans. MILLJÓN VÆRI OF L FEGURÐARDROTTNING Ingibjörg Ragnheiður fór fyrir Íslands hönd í Miss Universe og komst í eitt af 15 efstu sæ MISS ICELAND-BORÐINN REDDAÐI YFIRVIGTINNI Ingibjörg og hinar stelpurnar í Miss Universe fengur gríðarlegt magn af allskyns gjöfum á meðan dvöl þeirra á Bahamaeyjum stóð. Þær fengu meðal annars myndbands- upptökuvélar og töskur fullar af alls kyns varningi sem vóg um 100 kíló. „Ég var semsagt með rúm 50 kíló í yfirvigt og veit ekki hvað ég hefði þurft að borga,“ segir Ingi- björg. „Það reddaðist frá Bahama- eyjum til New York vegna þess að aðstandendur keppninnar settu mig í fyrsta farrými og ég þurfti ekki einu sinni að fara í gegnum öryggishlið. Svo þegar ég kem til New York fer ég á JFK-flugvöllinn með allt dótið. Ég vissi að það yrði erfitt fyrir mig – Íslendinginn – að redda mér úr þessu veseni. Þannig að ég græjaði mig rosa fína, klæddi mig í kjól, setti krullur í hárið og skellti á mig Miss Iceland- borðanum. Og það virkaði! Konan sem tékkaði mig inn leit ekki einu sinni á töskurnar mínar, sagði bara „Miss Iceland is here!“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.