Fréttablaðið - 25.09.2009, Blaðsíða 4
4 25. september 2009 FÖSTUDAGUR
Jóhann Ólafsson & Co
Opnum 28. september að
KRÓKHÁLSI 3
Jóhann Ólafsson & Co.
flytur höfuðstöðvar
sínar og afgreiðslu að
KRÓKHÁLSI 3
Opnum á nýjum stað
mánudaginn 28.september
Hestháls
Járnháls
Fossháls
Vesturlands
vegur
Dragháls
Réttarháls
Lyngháls
Krókháls 3
H
ál
sa
b
ra
ut
Grjótháls
Harðviðarval
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
26°
18°
20°
20°
16°
19°
19°
21°
13°
15°
26°
21°
23°
32°
19°
21°
26°
18°
Í DAG KLUKKAN 15
9
6
6
6
6
5
7
10
11
10
4 8
8
6
8
8
10
8
10
5
8
8
88
6 5
8
Á MORGUN
8-13 m/s.
SUNNUDAGUR
3-13 m/s, hvassast norð-
austan til og allra syðst.
88
2 1
1
VINDAR OG VÆTA
Núna með morgninum
er úrkomuloft á leið yfi r
landið með hvössum
vindi við suður- og suð-
austurströndina. Um
eða eftir hádegi verður
mesta úrkoman að baki
auk þess sem verulega
dregur úr vindi þar
sem hann er mestur. Í
kjölfar úrkomubeltis-
ins tekur við skúraloft
sunnan og vestan til og
með kvöldinu hvessir
á landinu með vaxandi
skúraveðri og þá einnig
norðanlands.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
EFNAHAGSMÁL „Þetta hefur því
miður allt strandað á Icesave-
málinu,“ segir Már Guðmundsson,
bankastjóri og formaður peninga-
stefnunefndar Seðlabankans, og
leggur ríka áherslu á að ná niður-
stöðu og greiða fyrir lánveiting-
um Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og
hinna Norðurlandanna. Þegar
lánið verði í höfn muni gjaldeyris -
varaforði Seðlabankans styðja við
gengi krónunnar. Þeir sem standi
í vegi fyrir því að ná farsælli lend-
ingu í málinu verði að hugsa sig
tvisvar, jafnvel þrisvar, um.
Greint var frá því í gær að stýri-
vöxtum Seðlabankans yrði hald-
ið óbreyttum í tólf prósentum.
Vextirnir, sem eru hvergi hærri
á byggðu bóli, voru síðast lækk-
aðir um eitt prósentustig í byrjun
júní. Ákvörðunin var í takti við
spár greiningardeilda.
Már, sem tók við bankastjóra-
stólnum af Svein Harald Øygard
í síðasta mánuði, segir mikil-
vægt að horfa til gengismála við
ákvörðun stýrivaxta. „Því miður
er fjöldi fyrirtækja og heim-
ila með óheyrilega skuldabyrði
í erlendri mynt,“ segir hann og
bendir meðal annars á að tuttugu
prósent heimila landsins séu með
gengistryggðar skuldir og sjötíu
prósent með þær verðtryggðar.
Um tíu prósent eru með annað
lánafyrirkomulag. Hugsan-
leg veiking krónunnar í kjölfar
stýrivaxtalækkunar geti haft
alvarlegar afleiðingar fyrir níu-
tíu prósent heimila. Stöðugleika-
sáttmáli aðila vinnu markaðarins
og hins opinbera frá í júlí miðar
við að stýrivextir verði komnir
undir tíu prósent fyrir 1. nóvem-
ber næstkomandi. Næsti vaxta-
ákvörðunarfundur er hins vegar
fjórum dögum síðar.
Már bendir á að stýrivextir
sem slíkir virki orðið lítið. Í raun
hafi innlánsvextir bankans meiri
áhrif. Þeir séu nú 9,5 prósent og
megi segja að stýrivextir séu
jafnháir.
Seðlabankastjóri segir mikil-
vægt að raska ekki stöðugleika-
sáttmálanum og hann hafi hug á
að funda með aðilum vinnumark-
aðarins vegna málsins.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti
ASÍ, segir vaxtaákvörðun pen-
ingastefnunefndarinnar von-
brigði enda sé stöðugleikasátt-
málinn í uppnámi. Seðlabankinn
eigi fremur að hjálpa til við endur-
reisn efnahagslífsins en koma
með innlegg með þessum hætti.
„Ég fagna því að seðlabankastjóri
vilji hitta okkur. En við hefðum
viljað ræða við hann fyrir vaxta-
ákvörðunina,“ segir Gylfi.
jonab@frettabladid.is
FRÁ VAXTAÁKVÖRÐUNARFUNDINUM Seðlabankastjóri segir miður að stór hluti heimila og fyrirtækja landsins sé með óheyrilega
skuldabyrði í erlendri mynt. Vaxtalækkun geti komið þeim afar illa. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Icesave-málið tefur
fyrir lækkun vaxta
Seðlabankastjóri segir raunstýrivexti komna undir tíu prósent. Hann er til-
búinn til að funda með aðilum vinnumarkaðarins um stöðugleikasáttmálann.
EFNAHAGSMÁL „Þótt ákvörðun SÍ
valdi verulegum vonbrigðum
kemur hún ekki á óvart,“ segir
Finnur Oddsson, framkvæmda-
stjóri Viðskipta-
ráðs.
Hann tekur
undir með seðla-
bankastjóra;
ljúka verði
Icesave-málinu
og afgreiðslu
frá AGS auk
frágangi á efna-
hagsreikningi
bankanna.
Afgreiðsla þessara mála gangi
afar treglega: „Nú er ár frá hruni
bankanna og tímabært að vanda-
málin verði leyst. Um leið hlýt-
ur peningastefnunefnd að mæla
með hraðri lækkun stýrivaxta.
Ekkert knýr verðbólgu annað en
veiking krónunnar og skattahækk-
anir,“ segir Finnur, „Spjótin bein-
ist að stjórnvöldum, sem verða að
afgreiða stóru málin.“ Þangað til
megi líkja ástandinu við eltinga-
leik við enda regnbogans. - jab
Mikilvæg mál ganga treglega:
Bíður eftir
vaxtalækkun
FINNUR ODDSSON
EFNAHAGSMÁL Lilja Mósesdóttir,
þingmaður Vinstri grænna, lýsir
yfir miklum vonbrigðum með
ákvörðun peningastefnunefndar
Seðlabanka Íslands um óbreytta
stýrivexti.
Ákvörðunina
megi rekja til
þrýstings frá
Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum
(AGS).
Hún segir að
markmið AGS
sé að ná gengis-
stöðugleika en
ekki að koma í
veg fyrir gjald-
þrot fyrirtækja og þar af leiðandi
áframhaldandi kreppu. Hún telur
því að andstæðingum AGS eigi
eftir að fjölga í kjölfarið.
Lilja Mósesdóttir:
Segir AGS stýra
vaxtastigi hér
LILJA
MÓSESDÓTTIR
EFNAHAGSMÁL „Seðlabankinn er
að ögra aðilum stöðuleikasátt-
málans með þessari ákvörðun,“
segir Vilhjálm-
ur Egilsson,
framkvæmda-
stjóri Samtaka
atvinnulífsins,
um ákvörðun
peningastefnu-
nefndar bank-
ans að halda
stýrivöxtum
óbreyttum.
Hann segir að
þessar ákvörðun sinni sé bankinn
að lengja kreppuna.
„Í stöðugleikasáttmálanum var
gengið út frá því að stýrivextir
yrðu komnir í eins stafs tölu fyrir
lok október. Fyrirtæki geta ekki
fjárfest og byggt sig upp við núver-
andi aðstæður. Allri framvindu
atvinnulífsins er teflt í tvísýnu.“
Framkvæmdastjóri SA:
Seðlabankinn
lengir kreppuna
VILHJÁLMUR
EGILSSON
ORKUMÁL Reykjavík Geothermal
(RG) stýrir nú jarðhitaleit fyrir
framtíðarborgina Masdar í Abu
Dhabi. Forstjóri fyrirtækisins,
Guðmundur Þóroddsson, segir
fyrirtækið, sem hefur starfað í
eitt ár, ganga ágætlega.
„Það hefur verið töluvert af
stórum og litlum verkefnum, en
þetta er stærsta ráðgjafarverk-
efnið hingað til,“ segir hann.
RG er fyrirtæki Guðmundar
Þóroddssonar, fyrrverandi for-
stjóra Orkuveitu Reykjavíkur, og
ýmissa starfsmanna sem ætluðu á
sínum tíma að starfa fyrir REI.
Fyrirtækið fær um tvö hundr-
uð milljónir króna fyrir jarðhita-
verkefnið og hefur allt að átta
mánuði til að finna jarðhitann.
Gangi það eftir má leiða líkur að
því að framhald verði á verkefn-
um þar syðra, að sögn Guðmund-
ar.
Í Abu Dhabi verða allt að sjö
starfsmenn RG og munu þeir
halda utan um jarðhitaleitina, en
verkefnið í heild sinni veltir um
fjörutíu milljónum dala. Bygging
borgarinnar er metin á 22 millj-
arða dollara og á að taka átta ár.
Spurður hver fjármagni rekst-
ur RG segir Guðmundur að mik-
ill kostnaður fylgi því að vera
með starfsemi í Abu Dhabi. Því sé
„einhver yfirdráttur í bankanum
okkar þangað til greiðslur berast,
en ekki mikill“. Starfsmennirnir
eigi fyrirtækið sjálfir.
Hann staðfestir að Ólafur Ragn-
ar Grímsson forseti hafi verið RG
innan handar.
„Hann kom þessum Masdar-
tengslum á upphaflega, þótt við
höfum síðan fengið verkefnið í
gegnum útboð. Hann hefur aðstoð-
að okkur þegar þess hefur þurft,“
segir Guðmundur. Upphaflega
hugmyndin um að fara í jarðhita-
leit í Masdar hafi orðið til á fund-
um sem forsetinn sat.
Masdar á að verða fyrsta borg
heims sem gengur einungis fyrir
„grænum“ orkugjöfum. - kóþ
Reykjavík Geothermal stýrir jarðhitaleit fyrir borgina Masdar í furstadæminu Abu Dhabi:
Útrás REI-manna er í fullum gangi
LÍKAN AF BORGINNI Reykjavík Geot-
hemal verður með sjö manna flokk í
vinnu syðra í Abu Dhabi.
ÍTALÍA Ítalskur mafíuforingi not-
aði gæludýrið sitt, rúmlega metra
langan krókódíl, til þess að kúga
fé út úr fólki, að sögn lögregluyfir-
valda í Napólí á Ítalíu.
Antonio Cristofaro geymdi dýrið
á verönd fyrir utan hús sitt og
samkvæmt fréttum mataði hann
það á lifandi rottum og kanínum.
Krókódíllinn fannst þegar lög-
regla gerði vopnaleit á heimili Cri-
stofaro hinn 18. september. Ekki
var greint frá fréttunum fyrr en á
miðvikudag. Krókódíllinn er rúm-
lega einn metri á lengd og fjörutíu
kíló að þyngd. Hann getur aflimað
menn með einu biti. - þeb
Ítalskur mafíuforingi:
Notaði krókódíl
til fjárkúgunar
GENGIÐ 24.09.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
235,1243
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,63 124,23
200,08 201,06
182,6 183,62
24,533 24,677
21,415 21,541
18,081 18,187
1,3638 1,3718
196,10 197,26
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR