Fréttablaðið - 25.09.2009, Blaðsíða 8
8 25. september 2009 FÖSTUDAGUR
1 Hvað heitir forstjóri Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins?
2 Í hvaða landi býðst Hólm-
fríði Magnúsdóttur að leika
knattspyrnu?
3 Hvað heitir nýútkomin ljóða-
bók Sindra Freyssonar?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 46
STÓRIÐJA Alcoa býst við að fá upp-
lýsingar um afstöðu ríkisvaldsins
til þess hvort stjórnvöld ætli sér
að framlengja viljayfirlýsingu um
álver á Bakka, sem rennur út um
mánaðamót, á fundi sem Tómas
Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa, á
með Katrínu Júlíusdóttur iðnaðar-
ráðherra um helgina.
Erna Indriðadóttir, talsmaður
Alcoa, segir að fyrirtækið vinni
að því að viljayfirlýsingin verði
framlengd og hafi ekki fengið
neina „formlega tilkynningu“ um
að annað fyrirkomulag standi til.
Eins og fram kom í Fréttablað-
inu í gær er það hins vegar ætlun
stjórnvalda að framlengja ekki
yfirlýsinguna óbreytta heldur
undir rita nýtt samkomulag. Þar
verði fleiri aðilar en Alcoa teknir
að borðinu án þess þó að Alcoa
hætti þátttöku í undirbúningi
álvers við Bakka. Markmið þessa
nýja fyrirkomulags verði áfram
það að undirbúa vikjanir og stór-
iðjuframkvæmdir við Húsavík.
Ekki liggur fyrir hvaða aðilar aðrir
en Alcoa hafi sýnt áhuga á verkefn-
inu. Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra hefur ítrekað sagst
vilja sjá orku í Þingeyjar sýslum
nýtta í þágu annarrar atvinnustarf-
semi en álvers.
Í gær kynnti Skipulagsstofnun
að hún hefði fengið til formlegrar
meðferðar tillögu að matsáætlun
fyrir sameiginlegt mat á umhverfis-
áhrifum álvers á Bakka við Húsa-
vík, Þeistareykjavirkjunar, Kröflu-
virkjunar II og háspennulína
frá Kröflu og Þeistareykjum að
Bakka. Það eru Alcoa, Landsvirkj-
un, Þeistareykir ehf. og Landsnet
sem standa að hinu sameiginlega
mati. Stefnt er að því að ljúka sam-
eiginlegu mati á umhverfisáhrifum
álvers þessara framkvæmda næsta
vor. Að því loknu hefjist rannsókna-
boranir að nýju til að hægt verði að
afla frekari upplýsinga um orku-
getu jarðhitasvæðanna. „Það er ein
af meginforsendum þess að áform
um virkjanir og byggingu álvers á
Bakka gangi eftir,“ segir í tilkynn-
ingu frá Skipulagsstofnun. Til-
raunaborunum var frestað þegar
Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrr-
verandi umhverfisráðherra, kvað
upp úrskurð um að umhverfis mat
vegna allra þessara framkvæmda
skyldi gera sameiginlega. Fram
að þeim úrskurði var unnið að
umhverfismati fyrir hverja fram-
kvæmd fyrir sig.
peturg@frettabladid.is
Alcoa býst við niður-
stöðu um helgina
Forstjóri Alcoa á fund með iðnaðarráðherra um helgina vegna viljayfirlýsingar
við Bakka. Alcoa hefur ekki fengið formlega tilkynningu frá stjórnvöldum.
Matsáætlun virkjana og álvers er komin til meðferðar hjá Skipulagsstofnun.
HÚSAVÍK Sveitarstjórnarmenn í Norðurþingi hafa lagt mikla áherslu á að fá viljayfirlýsingu um álver við Bakka framlengda. Þeir
benda á að engin önnur fyrirtæki en Alcoa hafi sýnt áhuga á að vinna að stóriðju á svæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.
Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins.
Nánari upplýsingar og tillögur um breytingar á samþykktum
eru á heimasíðu sjóðsins, www.almenni.is.
Sjóðfélagafundur
Almenni lífeyrissjóðurinn boðar til sjóðfélagafundar
fimmtudaginn 29. október á Hilton Reykjavík
Nordica og hefst kl. 17:15.
ATH! Breytt dagssetning og staðsetning.
DAGSKRÁ
1. Fundarsetning.
2. Skýrsla stjórnar um rekstur og afkomu
Almenna lífeyrissjóðsins.
3. Tillaga og ákvörðun um sameiningu Almenna lífeyris-
sjóðsins og Eftirlaunasjóðs starfsmanna Glitnis banka hf.
4. Tillögur um breytingar á samþykktum. Lagt er til
að sameina deildir samtryggingarsjóðs.
5. Önnur mál.
A
N
T
O
N
&
B
E
R
G
U
R
DÓMSMÁL Aðalmeðferð í máli
Gunnars Viðars Árnasonar,
sem ákærður er fyrir innflutn-
ing á sex kílóum af amfetamíni
til landsins, fór ekki fram í gær
eins og til stóð heldur var henni
frestað til 16. október. Ástæðan
var sú að eftir átti að þýða nokk-
ur erlend skjöl.
Til stendur að tveir hollensk-
ir sakborningar úr einu stærsta
fíkniefnamáli sögunnar, þar
sem lagt var hald á tæp þrjátíu
tonn af kókaíni í Ekvador, gefi
símaskýrslu við aðalmeðferðina.
Gunnar Viðar var upphaflega
handtekinn grunaður um tengsl
við það mál. - sh
Grunaður amfetamínsmyglari:
Réttarhöldum
frestað um sinn
BANDARÍKIN, AP Leiðtogar G20-ríkj-
anna, stærstu iðnríkja heims, hitt-
ust á fundi í Pittsburgh í Bandaríkj-
unum í gær. Tilefni fundarins er
heimskreppan, en þetta er í þriðja
sinn á undanförnu ári sem leið-
togarnir hittast.
Á fundinum verður farið yfir þær
efnahagslegu framfarir sem orðið
hafa frá síðustu fundum og einnig
er honum ætlað að tryggja að fram-
farirnar haldi áfram. Einnig er ætl-
unin að ríkin komi sér saman um
hertari reglur um fjármál.
Gordon Brown, forsætisráð-
herra Bretlands, hefur greint frá
þeim vilja sínum að G20-hópur-
inn taki við af G8-hópnum. Hann
vill enn meiri samvinnu ríkjanna.
Barack Obama Bandaríkjaforseti
segist vilja að ríkin komi saman
um áætlun um hvernig hægt sé að
stuðla að jafnari hagvexti. Búist er
við því að Obama segi á fundinum í
dag að ríkin geti ekki treyst áfram
á Bandaríkin og Kína til þess að
koma efnahagsmálum aftur á rétt-
an kjöl. Á fundi Sameinuðu þjóð-
anna á miðvikudag ýjaði hann að
þessu með því að segja að öll ríki
yrðu að taka ábyrgð.
Leiðtogarnir funduðu yfir kvöld-
verði í gærkvöldi og halda fundar-
höldum áfram í dag. Í lok dags
halda þeir svo sameiginlegan blaða-
mannafund. - þeb
Fundur leiðtoga G20-ríkjanna hófst í Bandaríkjunum í gær:
Leiðtogar halda stöðufund
MÓTMÆLT Lögregla handtekur mótmæl-
anda frá Greenpeace á miðvikudag, en
samtökin hófu mótmæli vegna G-20
fundarins þá. Í gær hafði lögregla lokað
fjölmörgum götum til að koma í veg
fyrir mótmæli nálægt fundarstöðum.
NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Fjármálaeftirlitið (FME)
hefur heimilað yfirfærslu vátrygg-
ingastofna Sjóvár Almennra trygg-
inga hf. til SA trygginga hf. að
fengnu starfsleyfi þess félags. Í
frétt um málið á heimasíðu FME
segir að SA tryggingar hf. munu
yfirtaka, frá og með 1. júní síð-
astliðnum, öll réttindi og skyldur
sem vátryggingastofninum fylgja.
Hluthafar SA trygginga hf. eru
Íslandsbanki hf. og SAT eignar-
haldsfélag hf.
Áformað er að heiti hins nýja
vátryggingafélags verði Sjóvá
– Almennar tryggingar hf. og
mun félagið starfa undir því
nafni. Núverandi Sjóvá Almennar
tryggingar hf. mun fá nýtt nafn,
SJ Eignarhaldsfélag hf. og starfa
áfram í breyttri mynd, til að sinna
fjárfestingarverkefnum í eigu
Sjóvár Almennra trygginga hf. og
dótturfélaga þess.
Þess skal getið að samkvæmt
lögum um vátryggingastarfsemi
munu réttindi og skyldur vátrygg-
ingataka, vátryggðra og annarra
samkvæmt vátryggingasamning-
um halda sjálfkrafa gildi sínu við
flutning vátryggingastofnsins.
Vátryggingatakar munu geta
sagt upp vátryggingasamningi
sínum við félagið frá þeim degi
sem flutningur stofnsins er heim-
ilaður, tilkynni þeir uppsögn sína
skriflega innan mánaðar. Frestur
til uppsagna hefst við birtingu til-
kynningar um yfirfærslu vátrygg-
ingastofna í Lögbirtingarblaðinu
í dag.
Breytingar á eignarhaldi á íslenska tryggingamarkaðinum:
SA tryggingar yfirtaka Sjóvá
SJÓVÁ Fyrirtækið heitir nú Sjóvá
Almennar tryggingar hf.
FÆREYJAR Ástæða þess að ákveðið
var að auglýsa laus störf sendi-
fulltrúa Færeyja á Íslandi og í
Danmörku á sínum tíma var sú
að tveir þingmenn höfðu áhuga á
störfunum.
Jóannes Eidesgaard fjármála-
ráðherra telur að auglýsa eigi öll
opinber störf. Ráðuneytisstjóri
í utanríkisráðuneytinu, Herluf
Sigvaldsson, segir hins vegar að
þetta leiddi til stjórnleysis í utan-
ríkisþjónustunni. Venjan sé að
færa fólk til innan þjónustunn-
ar. Einn þingmaður hefur nú lagt
fram fyrirspurn um hvaða þing-
menn það voru sem sýndu störf-
unum áhuga. - kóþ
Færeyska utanríkisþjónustan:
Auglýsing hefði
stjórnleysi í för
STJÓRNMÁL Skoðað verður hvort
forsætisráðherra Íslands komi
til með að birta
gestalista sína
opinberlega.
Þetta verður
gert um leið
og siðareglur
stjórnarráðs-
ins verða mót-
aðar og meðan
upplýsingalög
verða endur-
skoðuð, sam-
kvæmt upplýs-
ingum frá forsætisráðuneytinu.
„Þessi hugmynd verður metin í
þeirri vinnu eins og margar aðrar
góðar,“ segir Hrannar B. Arnars-
son, aðstoðarmaður forsætisráð-
herra.
Greint hefur verið frá því í
blaðinu að Barack Obama, forseti
Bandaríkjanna, ætli að birta
samsvarandi upplýsingar um
gesti Hvíta hússins. - kóþ
Forsætisráðherra Íslands:
Gestalisti kann
að verða birtur
HRANNAR BJÖRN
ARNARSSON
PEKING, AP Eina barnabarn Mao
Zedongs, fyrrum formanns
Kommúnistaflokksins í Kína, er
orðinn yngsti hershöfðinginn í
Frelsisher fólksins í Kína. Kín-
verskir fjölmiðlar greindu frá
þessu í gær.
Hinn 39 ára sagnfræðingur,
Mao Xinyu, er sonur Mao Anqu-
ing, annars sonar Zedongs. Mao
Xinyu er einn af helstu ráðgjöf-
um kínversku ríkisstjórnarinnar.
Hann hefur lengi staðið vörð um
arfleifð afa síns. - kg
Barnabarn Mao Zedong:
Yngsti hers-
höfðinginn
Skemmtistöðum lokað
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
lokaði þremur skemmtistöðum í mið-
borg Reykjavíkur aðfaranótt fimmtu-
dags. Staðirnir voru allir opnir lengur
en leyfilegt er á virkum dögum, eða
eftir klukkan eitt. Á einum staðnum
reyndi dyravörður að hindra lögreglu
við störf sín.
LÖGREGLUFRÉTTIR
VEISTU SVARIÐ?