Fréttablaðið - 25.09.2009, Blaðsíða 32
2 •
...SJÁ INGLOURIOUS BASTERDS
Quentin Tarantino er einn allra
litríkasti leikstjóri okkar tíma og
In glourious Basterds er enn ein
rósin í troðið hnappagat hans.
Brad Pitt fer á kostum sem nasista-
morðinginn Aldo Raine og nær
alltaf að vera jafn svalur.
...FARA Í RÉTTIR Tónlistarhátíðin Réttir hófst á miðvikudag og
lýkur á morgun. Það þýðir aðeins eitt. Þú getur ennþá tékkað á
stútfullri tónleikadagskrá hátíðarinnar! POPP mælir með að sjá
Ensími á Sódómu í kvöld klukkan eitt, Mammút á sama stað á
morgun klukkan 23.15 og að sjálfsögðu Apparat Organ Quartet
á Nasa á miðnætti á morgun.
...AÐ HLUSTA Á BÍTLANA OG MICHAEL
JACKSON Ef þú hefur aldrei kynnt þér tónlist
Bítlanna og Michael Jackson ættirðu í fyrsta
lagi aldrei að viðurkenna það. Við vitum að
samviskubitið hefur nagað þig undanfarin ár
og það hefur örugglega verið erfitt
að skjótast undan byssukúlunni
sem umræður um bestu plötur
Bítlanna eða flottasta lag Jack-
son hefur verið. Nú getur þú
fengið annað tækifæri. Eftir að
Jackson lést byrjaði venjulegt fólk að hlusta á hann
aftur, en nú getur þú tekið fyrstu umferð. Svo var
safn Bítlanna að koma út aftur svo að þú getur
keypt það og sagst vera búinn að ofspila
gömlu plöturnar þínar.
...AÐ FARA Á KVIKMYNDAHÁTÍÐ Reykjavík Inter-
national Film Festival lýkur ekki fyrr en á
sunnudaginn og stuttmynda- og heimildar-
myndahátíðin Nordisk Panorama hófst í
gær. Semsagt, framboð kvikmyndahátíð-
ina hefur sjaldan verið meira.
ÞAÐ ER EKKI ORÐIÐ
OF SEINT AÐ...
Í dag er 25. september. Þú ætlaðir eflaust að gera
svo margt í mánuðinum. Þú ætlaðir í bíó, út að
borða, hlusta á nýja tónlist, fara á tónleika – þú
ætlaðir að lifa lífinu í september – kveðja sumarið
með stæl. En nú er mánuðurinn alveg að verða búinn
og þú ert ekki búinn að gera neitt. Og nei, að horfa á
Seinfeld-maraþon á Stöð 2 Extra telst ekki sem „eitthvað“.
En ekki örvænta. POPP ætlar að þurrka upp eftir þig skítinn og hjálpa þér
að klára mánuðinn eins og hann átti að byrja. Við kynnum með stolti liðinn:
POPP er fylgirit Fréttablaðsins. POPP kemur
út einu sinni í mánuði.
Ritstjóri: Atli Fannar Bjarkason
atlifannar@frettabladid.is
Útlitshönnun: Arnór Bogason
Sölustjóri auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson
benediktj@365.is • sími 512 5411
Útgefandi: 365 hf.
ROSALEG!
„Þú ert með píku. Ég er með
typpi. Hvað er vandamálið? Dríf-
um í þessu.“ Nei, þetta er ekki
tilvitnun í graðan framhalds-
skólanema á busaballi heldur
brot úr viðlagi lagsins Pussy
með þýsku iðnaðarrokkurunum
í Rammstein.
Myndbandið við lagið hefur
vakið gríðarlega athygli, þrátt
fyrir að fá ekki spilun á sjónvarps-
stöðvun né á myndbandasíðum
á borð við Youtube. Myndbandið
er afar klámfengið og sýnir með-
limi hljómsveitarinnar í athöfnum
sem ekki þykir við hæfi að lýsa
ítarlega.
Stereótýpur úr klámi
Sænski leikstjórinn Jonas Åkerlund
leikstýrir myndbandinu, sem þykir
afar fagmannlega gert. Meðlimir
Rammstein klæða sig allir eins
og stereótýpískar persónur úr
klámmyndum.
Tölvutækni var beitt til þess að
láta virðast sem meðlimir Ramm-
stein væru að nota eigin líkama,
en höfuð þeirra voru það eina
sem þeir áttu. Og þá erum við að
tala um höfuðin sem hvíla jafnan
á hálsum þeirra.
Ekki alveg heilalaust
Lagið er ekki eins heilalaust
og það virðist. Vissulega er
textinn kjánalegri en lokaþáttur
Bachelorette, en undirtónn-
inn er alvarlegri en dramatískt
hryggbrot Jason Mesnick, sem
lenti í öðru sæti í fyrrnefndum
Bachelorette-þáttum. Í text-
anum segir:
So take me now before it’s
too late/Life’s too short, so I
can’t wait./Take me now, oh
don’t you see,/I can’t get laid
in Germany.
Já, „Ég fæ ekki á broddinn í
Germaní“ syngur hinn dimm-
raddaði Till Lindemann. Talið
er að hann sé að gagnrýna þá
sem ferðast til Þýskalands til
þess eins að stunda kynlíf með
vændiskonum. Kynlífsiðnaðinum
vex fiskur hrygg með ári hverju
og drengirnir í Rammstein virð-
ast áhyggjufullir.
atlifannar@frettabladid.is
TYPPI AÐ LÁNI
• LEIKSTJÓRINN:
FRÁ LADY GAGA Í
RAMMSTEIN
Leikstjórinn
Jonas
Åkerlund er til
í að hneyksla.
Hann var með-
limur sænsku
svartmálms-
sveitarinnar Bathory í eitt
ár, frá 1983 til ´84, en svo
fór að myndbandsupp-
tökuvélin stal hjarta hans.
Myndbönd fyrir sænsku
poppsveitina Roxette
komu honum á kortið og
árið 1998 leikstýrði hann
Madonnu í myndbandi
við lagið Ray of Light.
Síðan þá hefur hann unnið
með listamönnum á borð
við Metallica, Christinu
Aguilera, U2, Pink og
Smashing Pumpkins. Hann
leikstýrði einnig hálfgerðri
stuttmynd Lady Gaga við
lagið Paparazzi, en Pussy
með Rammstein er hans
nýjasta verk.
POPPSKÝRING: NÝJASTA MYNDBAND
RAMMSTEIN ÞYKIR SVÆSIÐ
Ekki er allt sem sýnist í nýjasta myndbandi
Rammstein. Typpin sem meðlimir hljómsveitar-
innar sjást beita eins og fagmenn eru ekki þeirra
og lagið er ekki eins heilalaust og margir telja.
Laugavegi · Kringlunniwww.skifan.isNÝTT
Í SKÍFUNNI
#1
Á ÍSLANDI
GU
S
GU
S
HJ
ÁL
MA
R
CLIFF CLAVINLÍTIÐ ROKK AÐ LÁTA REKA SIG ÚT ÚR HVALVEIÐISKIPI
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS • SEPTEMBER 2009
• BRJÁLAÐUR FINNI
MISSTI AF NORRÆNU
Hinn finnski Jukka Kärkkä-
inen ætlaði að fylgja mynd
sinni, The Living Room of
the Nation, eftir á kvik-
myndahátíðina Nordisk
Panorama. Hann missti
hins vegar af Norrænu og
situr því nú heima með sárt
ennið. Jukka ætlaði að fara
sjóleiðina vegna þess að
hann er afar flughræddur,
en miðinn í bátinn liggur
væntanlega ónotaður á
náttborði Finnans, sem er
þekktur fyrir að girða niður
um sig á kvikmyndahátíð-
um.
• NÝ PLATA FRÁ
RAMMSTEIN
Það er
engin
tilviljun að
Rammstein
sendi frá
sér mynd-
bandið
umdeilda við lagið Pussy
núna, en ný plata er
væntan leg frá hljómsveit-
inni. Platan heitir Liebe
ist für alle da, eða Ást er
fyrir alla, og kemur út 16.
október.
Hönnuðurinn Siggi Eggertsson ætlar að ferð-
ast um heiminn á næstunni og sýna búta-
saumsteppi sem hann hannaði fyrir útskrift
sína úr Listaháskóla Íslands 2006. Fyrst ætlar
hann að sýna teppið á stórri listasýningu í
Berlín um miðjan næsta mánuð sem nefnist
Illustrative.
„Þetta byrjar í Berlín en síðan eru aðrir
staðir í vinnslu,“ segir Siggi sem ætlar einnig
að sýna heimildarmynd á hátíðinni um gerð
teppisins. „Þetta er bútasaumsteppi sem ég
lét sauma fyrir mig. Þetta er samsetning af
plötum sem höfðu áhrif á mig í æsku. Þetta
var sett saman í bútasaumsteppi sem er
saumað úr tíu þúsund bútum af efni og tók
yfir þrjú hundruð klukkustundir að sauma,“
segir hann. Teppið hefur aðeins einu sinni
verið sýnt opinberlega, í Hafnarhúsinu þegar
Siggi útskrifaðist. - fb
BÚTASAUMSTEPPI Í HEIMSREISU
SIGGI EGGERTSSON Siggi stendur við bútasaumsteppið sem hann
ætlar að ferðast með um heiminn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„EN UNDIRTÓNNINN ER
ALVARLEGRI EN DRAM-
ATÍSKT HRYGGBROT
JASON MESNICK, SEM
LENTI Í ÖÐRU SÆTI Í
FYRRNEFNDUM BACHEL-
ORETTE-ÞÁTTUM.“
HVAÐ SEGIRÐU?
Sendu okkur sms í síma 696
7677 eða póst á popp@
frettabladid.is og segðu
okkur hvað þér finnst.
Siggi Eggerts hannaði
umslag plötunnar
The Odd Couple með
hljómsveitinni Gnarls
Barkley, sem kom út
árið 2008. Lagið Crazy
er langþekktasti slag-
ari hljómsveitarinnar.
Kaupþing námsmenn
- þegar námið
skiptir höfuðmáli
- Tölvukaupalán
- Lán fyrir skólagjöldum
- 1.500 kr. endurgreiðsla
nemendafélagsgjalda til háskólanema
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
A
U
4
67
83
0
8/
09