Fréttablaðið - 25.09.2009, Blaðsíða 28
2 föstudagur 25. september
núna
✽ hönnun og list
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Arnþór Birkisson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
FYRIRSÆTAN HEIDI KLUM Mætti
kasólétt í fallegum skósíðum kjól á
Emmy-verðlaunahátíðina sem haldin
var í Nokia-leikhúsinu í Los Angeles.
Mannmörg ráðstefna um
skapandi greinar
Ráðstefnan You Are in Control fór
á miðvikudag og fimmtudag en
hún fjallaði um stafræna þróun
í skapandi greinum. Á ráðstefn-
unni komu fram margir þekktir
fyrirlesarar frá stórfyrirtækjum utan
úr heimi. Auk þeirra voru á staðn-
um Íslendingar eins og Sigurjón
Sighvatsson og Einar
Örn Benedikts-
son. Fjöldi manns
sótti ráðstefnuna
og meðal þeirra
mátti sjá mörg
þekkt andlit, þar á
meðal Ólöfu Arn-
alds, Pétur Ben,
Óttar Proppé,
Hugrúnu í Kron,
Gylfa Blöndal
og Katrínu Pét-
ursdóttur.
Í hópi
frægra Sara María
Júlíudóttir var gestur á
Kerrang-
hátíðinni.
Fatahönnuður-
inn Sara María
Júlíusdóttir,
kennd við
Nakta apann,
sótti tónlistar-
hátíðina Kerr-
ang Awards í
Bretlandi til að
kynna nýja fatalínu sína. Tónlistar-
hátíðin er ein sú stærsta sem hald-
in er á Bretlandi og á meðal þeirra
hljómsveita sem sóttu hátíðina í ár
má nefna Prodigy, Slipknot, Limp
Bizkit og Metallica. Því er óhætt
að segja að Sara María hafi verið í
hópi góðra manna meðan á verð-
launaafhendingunum stóð.
þetta
HELST
SÓLVEIG PÁLSDÓTTIR MYNDLISTARKONA
Það er allt að gerast í Gallerí Crymo, Laugavegi 41a um helgina, á föstudagskvöld er
opnun hjá rauðhærða snillingnum Ragnhildi Jóhanns, eftir opnun verður dansað og barist
við Bakkus á Bakkus. Á laugardagskvöd er útgáfupartí smásögusafns Ritlistar, Hestar eru
tvö ár að gleyma, og svo fer sunnudagskvöldið í að kynnast Neil Young betur á kvikmyndahátíð.
É g er bara rosalega ánægð að fá að vera vera með,“ segir teiknarinn Signý Kol-
beinsdóttir, en verk eftir hana er að finna í
tveimur nýútkomnum listabókum sem seld-
ar eru um allan heim. Annars vegar er um að
ræða The Big Book of Contemporary Illustrat-
ions sem Ananova Books gefur út. Í þeirri
bók eru tekin saman verk ungra teiknara
og listamanna víðs vegar að úr heimin-
um. Hins vegar er um að ræða þriðju út-
gáfu Illustration Now! sem gefin er út af
hinni virtu bókaútgáfu Taschen. Í þeirri bók
hefur verkum 150 fremstu og „mest spenn-
andi“ teiknara heims verið safnað saman.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Signý hefur
verið valin í slíkan hóp en hún átti meðal ann-
ars síðu í Crackpot-dagatalinu sem Gestalten
Verlag gefur út, bæði fyrir árið 2009 og 2010. Í
því eru 52 teikningar eftir hönnuði víðs vegar
að úr heiminum, ein fyrir hverja viku.
Karakterarnir sem Signý skapar eru krúttleg-
ir og sætir, í anda japanskra
íkona á borð við Hello
Kitty, en á sama tíma
dálítið dimmir og dul-
arfullir. Signý sjálf er ný-
búin að uppgötva hvaðan
þau áhrif koma.
„Ég fann þýska vinkonu
mína á Facebook um dag-
inn, en ég ólst upp í Þýska-
landi. Hún var svo hissa
þegar hún sá verkin mín, sem
henni fannst passa svo vel við
hvernig ég var þegar ég var
lítil. Henni fannst ég alltaf eiga
flottasta dótið; fullt af mons-
um, Hello Kitty og Barba-
pabba. Þegar ég fór að hugsa
út í þetta sá ég að þetta var
alveg rétt hjá henni. Mynd-
irnar mínar eru einhvers
konar blanda af þessu öllu,
með örlítið dimmari hlið. Svo kannski situr
þetta bara í mér frá því í æsku.“
Signý vill að listin sé skemmtileg og tekur
hana ekki of alvarlega. Þá tilfinningu rekur hún
líka aftur til æskunnar. „Þegar ég var lítil dró
mamma mín mig með sér á hverja listasýn-
inguna á fætur annarri. Mér leiddist oft alveg
hræðilega og ég var aldrei ánægðari en þegar
eitthvað á sýningunni höfðaði til mín. Þess
vegna vil ég að verkin mín séu skemmtileg, fyrir
alla, ekki bara einhvern útvalinn hóp.“ - hhs
Verk eftir teiknarann Signýju Kolbeinsdóttur í tveimur alþjóðlegum listabókum:
MEÐAL MEST SPENN-
ANDI TEIKNARA HEIMS
Forsíðan Þriðja bindi Illustration
Now! er nýkomið út. Þar er Signý
Kolbeinsdóttir í hópi mest spenn-
andi teiknara heims, samkvæmt
lýsingu bókarinnar.
MYND/TASCHEN
Skemmtir sér og öðrum Signý Kolbeinsdóttir vill hafa gaman af listinni og tekur hana ekki of alvar-
lega. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
helgin
MÍN
Kria Jewelry, skartgripalína eftir Jóhönnu Methúsal-
emsdóttur, hönnuð í New
York, er nú fáanleg í Aurum
í Bankastræti 4. Hingað til
hafa skartgripirnir ekki
verið til sölu á Íslandi. „Jó-
hanna var hérna í sumar
að þreifa fyrir sér í fyrsta
skipti á Íslandsmarkaði. Svo
skemmtilega vildi til að við
vorum á sama tíma að leita
að íslenskum hönnuði, sem
er að stíga sín fyrstu skref,
til að fara í samstarf við.
Svo við fundum hvor aðra
og smullum saman,“ segir
Helga G. Friðriksdóttir, verk-
efna- og markaðsstjóri hjá
Aurum, hæstánægð með
nýtilkomið samstarfið.
Hingað til hefur Aurum
að mestu selt skartgripi eig-
anda verslunarinnar, Guð-
bjargar Ingvarsdóttur, gullsmiðs og hönnuðar, en tímabundið tekið inn
skartgripi erlendra hönnuða. Nú hefur verið tekin ákvörðun um að
leggja frekari áherslu á íslenska hönnuði og er samstarfið við Jóhönnu
fyrsta skrefið í þá átt. - hhs
Skart Jóhönnu Methúsalemsdóttur komið til Íslands:
Kría seld í Aurum
LÚR - BETRI HVÍLD
www.lur.is
10:00 – 18:00mánfös
Opið:
lau 11:00 – 16:00
Frábært úrval sófa
og hvíldarstóla
Kria Jewelry Skartgripalína Jóhönnu Methúsal-
emsdóttur byggir á kríubeinum og trjágreinum.
MYND/KRIA JEWELRY Auglýsingasími
– Mest lesið