Fréttablaðið - 25.09.2009, Blaðsíða 25
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
MÁLÞING UM BRJÓSTAGJÖF verður haldið í
Mími, Skeifunni 8, laugardaginn 26. september. Málþingið
er haldið á vegum brjóstagjafavikunnar á Íslandi. Málþingið
stendur frá 11 til 14.15, er öllum opið og er þátttaka gjald-
frjáls. www.brjostagjafavika.org
Nánar tiltekið var það í gær, hinn
24. september, sem fyrsti Guinn-
ess-bjórinn var framleiddur en
það var á Írlandi, nánar tiltekið
í Dublin sem lögurinn var fyrst
framreiddur. Hérlendis sem og
annars staðar í heiminum er
haldið upp á afmælið með pomp
og prakt. Þannig hafa fjölmargir
barir og kaffihús haft einhvers
konar Guinnes-þema nú í septem-
ber.
Í gær heilgrilluðu landsliðs-
kokkar lambalæri á Austurvelli
með Guinness-maríneringu en
einnig hafa sömu kokkar sett
saman uppskriftir þar sem bjór-
inn er notaður. Má þar nefna
majónes, fiskiuppskriftir og jafn-
vel ísuppskrift með Guinness-
skvettu.
Einn landsliðskokkanna, Þrá-
inn Vigfússon, hefur þróað lamba-
kjöts uppskrift úr hryggvöðva með
íslensku rótargrænmeti, blóm-
kálsmús og auðvitað bjórnum
svarta. Hann matreiddi dýrindis
rétt fyrir Fréttablaðið en Þráinn
er einnig starfandi kokkur á Grill-
inu. juliam@frettabladid.is
Lamb með Guinness-bjór
250 ár eru liðin frá því að Arthur Guinness hóf framleiðslu á Guinness-bjór. Haldið er upp á afmælið hér-
lendis með ýmsum uppákomum en Þráinn Vigfússon landsliðskokkur setti saman uppskrift af tilefninu.
Blómkálsmauk og íslenskt rótargrænmeti passa að sögn Þráins Vigfússonar afar vel með lambakjötsuppskriftinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1 stk. lambahryggur, úrbeinaður og
hreinsaður
1 stk. skalottlaukur, fínt skorinn
1/2 engiferrót, fínt skorin
1 stk. hvítlauksgeiri, fínt saxaður
400 ml Guinness-bjór
300 ml soð (nautakraftur góður)
50 g púðursykur
olía
salt
pipar
Útbúið gljáann með því að mýkja
laukinn og engiferrótina í olíu í potti.
Bætið bjórnum út í og sjóðið niður.
Þá er soðinu bætt út í og aftur soðið
niður. Smakkið til með púðursykri
og salti. Takið kjötið, piprið og saltið
og steikið á pönnu á hvorri hlið í
tvær mínútur. Hjúpið vöðvann með
bjórgljáanum og steikið í 20 sek. á
hvorri hlið. Setjið kjötið á fat og í ofn
180° C í 4 mín.
Blómkálsmauk
1 blómkálshaus
400 ml vatn
150 ml rjómi
salt
sítrónusafi
Blómkálið er skorið í litla bita og
soðið í vatninu þar til það er mjúkt
viðkomu. Takið það þá upp úr
vatninu og maukið í matvinnsluvél.
Sjóðið rjómann niður um helming
og bætið út í blómkálið. Smakkað
til með salti og sítrónusafa.
Íslenskt rótargrænmeti
1 stk. gulrót
1 stk. sellerírót
1/2 stk. rófa
1/2 stk. hnúðkál
vatn,
smjör
salt og sykur
Skrælið grænmetið, skerið það niður
í bita eftir smekk og sjóðið í salt-
vatni í fjórar til sex mínútur. Sigtið
og setjið á heita pönnu ásamt 70 ml
af vatni og og 40 g af smjöri. Saltið
og sykrið eftir smekk og sjóðið niður
þar til grænmetið er gljáð.
LAMBAHRYGGVÖÐVI
með Guinness-gljáa FYRIR 4
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
H
rin
g
b
ro
t
6.990 kr.
4ra rétta tilboð
og nýr A la Carte
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn
með sérvöldu víni með hverjum rétti: 10.990 kr.
Barolo „Ornato“ 2004 | Ítalía.
Chablis Grand Cru ,,Les Clos” 2005 | Frakkland
Glas af eðalvíni
Nú hefur veitingahúsið Perlan bætt við möguleikanum að velja
sér glas af 16 eðalvínum með mat. Verð frá 1.050-3.700 kr.
Sjá nánar á perlan.is.
· Reykt önd með fíkjum, valhnetum og rauðvínsgljáa ·
· Humarsúpa rjómalöguð með grilluðum humarhölum ·
· Lambahryggur með lambaskanka og rósmarínsósu ·
* E Ð A *
· Fiskur dagsins útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar ·
· Skyr “Tonka crème brûlée” með karamelluís ·