Fréttablaðið - 25.09.2009, Blaðsíða 67
AÐ SPARAÞAÐ ER SMART
Þeir sem skrá sig geta búist við skemmtilegum glaðningi,
ókeypis miðum á uppákomur og fleiru skemmtilegu.
Bandaríska fyrirsætan Samantha
Burke hefur alið fjórða barn leik-
arans Jude Law í New York. „Sam-
antha er afar hamingjusöm með
fæðingu gullfallegrar og heil-
brigðrar dóttur sem heitir Sophia,“
sagði talsmaður fyrirsætunnar.
„Bæði barnið og móðirin eru við
hestaheilsu.“
Tilkynnt var um að Burke væri
ófrísk í júlí eftir að Law, sem er 36
ára, staðfesti að hafa átt í stuttu
ástarsambandi við hina 24 ára
fyrir sætu. Kvennabósinn hefur
heitið því að styðja hana við upp-
eldi dótturinnar þrátt fyrir að ást-
arsambandið hafi fjarað út. Law fer
þessa dagana með titilhlutverkið í
Hamlet í New York, en leikhópur-
inn er sá sami og í uppsetningu í
London fyrr á árinu.
Law á fyrir þrjú börn með fyrr-
verandi eiginkonu sinni Sadie
Frost, sem hann skildi við árið
2003 eftir sjö ára hjónaband. Talið
er að Law hafi kynnst Burke á
meðan upptökur stóðu yfir á nýrri
Sherlock Holmes-mynd í New York.
Fyrirsætan hefur á bloggsíðu sinni
vísað því á bug að hún sé að nota
Law vegna peninganna hans. „Ég
vildi ekkert að það yrði birt frétt
um að ég væri ófrísk. Ég hef aldrei
hugsað um peningana,“ sagði hún.
Fjórða barn Jude Law er fætt
JUDE LAW Fjórða barn hjartaknúsarans
er komið í heiminn.
Spaugstofan fer á fullt á
laugardaginn þegar 20.
þáttaröðin hefst. Örn Árna-
son lofar að þeir muni halda
uppteknum hætti í allan
vetur við að snúa tilverunni
á haus.
Tökulið Spaugstofunnar var á BSÍ
þegar Fréttablaðið hafði upp á Erni
Árnasyni. Þeir voru þá að leita að
Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis-
ráðherra. „Nei, það verða ekki
miklar áherslubreytingar, við vinn-
um bara einn þátt í einu og ætlum
að taka hressilega á ástandinu,“
segir Örn en í bakgrunni mátti
heyra félaga hans skeggræða um
næstu skref.
Örn, Pálmi Gestsson, Karl Ágúst
Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson
hafa í rúma tvo áratugi skemmt
landsmönnum á laugardagskvöld-
um og eftirspurnin eftir hárbeittu
gríni þeirra hefur sennilega aldrei
verið meiri, allavega eins og staða
þjóðmála er um þessar mundir.
„Við ætlum bara að reyna að gleðja
mann og annan með ömurlegum
fréttum,“ segir Örn og hlær. „ Nei,
nei, við höldum bara uppteknum
hætti og reynum að finna skemmti-
lega fleti á þjóðmálunum.“ Hann
kveðst síður en svo vera kominn
með nóg af Spaugstofugríninu en
verður ósköp þögull þegar hann
er spurður hvort þetta sé síðasta
„undirbúnings tímabil“ hópsins.
„Ég veit ekki, ætli það sé ekki bara
best að segja sem minnst, það virð-
ist samt alltaf vera þörf fyrir svona
fyrirbæri.“
Og fyrst Örn er nú á línunni er
ekki úr vegi að spyrja hann hvernig
honum lítist á að taka við ritstjóra-
stöðu Morgunblaðsins í Hádegis-
móum. Enda Örn einhver þekkt-
asta Davíð Oddsson-eftirherma
landsins. „Ég verð að fara að leita
að kollunni minni, hún er að ryk-
falla í einhverri kompu, vonandi er
allt í lagi með hana; svona ef þetta
gengur allt saman eftir eins og
menn eru að spá,“ segir Örn.
Að öllu gamni slepptu segir Örn
að fyrsti þátturinn verði hefðbund-
inn Spaugstofuþáttur, engir gesta-
leikarar heldur bara þeir fjórir.
„Þema-þættir og gestirnir koma
bara síðar, við ætlum líka bara að
spila þetta eftir eyranu.“
freyrgigja@frettabladid.is
Spaugstofan leitar Jóhönnu
á Umferðarmiðstöðinni
Í FULLU FJÖRI Spaugstofumenn leituðu ásamt „erlendum fjölmiðlamönnum“ að Jóhönnu Sigurðardóttur á Umferðarmiðstöðinni
í gær. Spaugstofan er búin að vera að í rúma tvo áratugi og eru þeir Örn Árnason, Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson og Karl
Ágúst Úlfsson enn í fullu fjöri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HVAR ER JÓHANNA? Karl Ágúst Úlfsson
tekur sig vel út sem Jóhanna Sigurðar-
dóttir en Spaugstofan reyndi að finna
forsætisráðherrann.