Fréttablaðið - 25.09.2009, Síða 2

Fréttablaðið - 25.09.2009, Síða 2
2 25. september 2009 FÖSTUDAGUR Kristján, má ekki með réttu kalla þá bæklinga? „Ekki ef þeir eru innbundnir.“ Ekki er talið að jólabókaútgáfan verði minni að vöxtum nú en fyrri ár. Ástæðan er meðal annars tilkoma lítilla bókafor- laga. Kristján B. Jónasson er formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. HEILBRIGÐISMÁL Stefnt er að því að einkarekið sjúkrahús sem mun sérhæfa sig í mjaðma- og hnjáliða- aðgerðum á erlendum ríkisborg- urum verði opnað hér á landi síðla árs 2011 eða snemma árs 2012. Forsvarsmenn verkefnisins skoða nú lóðir á Álftanesi, í Garði og Mosfellsbæ. Gunnar Ármanns- son, framkvæmdastjóri Prima- Care, segir að vonandi verði hægt að taka ákvörðun um staðsetningu á næstu vikum. Kostnaður við uppbyggingu sjúkrahússins er áætlaður á bilinu 100 til 150 milljónir Bandaríkja- dala, eða þrettán til nítján millj- arðar króna, segir Gunnar. Verkið verði fjármagnað bæði af innlend- um og erlendum aðilum. Áformað er að reisa sjúkrahús með 120 herbergjum, sem geti annað allt að sex þúsund sjúkling- um á ári. Gunnar segir að á sömu lóð verði reist hótel með 220 her- bergjum. Algengt er að ættingjar fylgi fólki sem ferðast til að fara í mjaðma- og hnjáliðaaðgerðir. Talsverðan fjölda starfsmanna þarf fyrir bæði sjúkrahúsið og hótelið. Gunnar segist reikna með í það minnsta 600 starfsmönnum, og hugsanlega allt að 1.000. Sjúklingar munu aðallega koma frá Bandaríkjunum og Evrópu. Gunnar segir að sjúkrahúsið sé ekki hugsað til að sinna íslenska markaðinum, en kjósi Íslendingar að kaupa sér heilbrigðisþjónustu á eigin kostnað sé það þeim í sjálfs- vald sett. Þeir geti það nú þegar hjá öðrum einkareknum sjúkra- húsum utan landsteinanna. Lítið hefur farið fyrir samráði við heilbrigðisráðuneytið. Gunnar segir að óskað hafi verið eftir við- tali við heilbrigðisráðherra í lok ágúst, en ekki hafi tekist að finna tíma til að funda með honum. „Þetta yrði geysileg lyftistöng fyrir bæinn, og ég er viss um að bæjarbúar myndu taka þessu fyrir- tæki fagnandi,“ segir Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfells- bæjar. Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur lýst eindregnum stuðningi við byggingu sjúkrahúss PrimaCare á Íslandi. Haraldur segir það heiður fyrir bæjarfélagið að til greina komi að fyrirtækið byggi upp starf- semi sína í Mosfellsbæ. Bærinn hefur boðið forsvars- mönnum PrimaCare aðstöðu á fjórum stöðum í bæjarfélaginu: á lóð Reykjalundar, í Skammadal austan við Reykjalund, á Sólvöllum fyrir ofan Akra og í Reykjahlíð í námunda við Tungumela, segir Haraldur. Hann segir fyrirtækið þurfa um fjögurra hektara lóð, og nægt pláss sé fyrir starfsemina í bæjarfélaginu. brjann@frettabladid.is Leggja milljarða í nýtt einkasjúkrahús Forsvarsmenn fyrirhugaðs einkasjúkrahúss ætla að leggja allt að nítján millj- arða króna í uppbyggingu sjúkrahúss og tengds hótels. Skoða lóðir á Álftanesi, í Garði og Mosfellsbæ. Vilja byggja 120 herbergja spítala og 220 herbergja hótel. REYKJALUNDUR Mögulegt er að sjúkrahús og hótel rísi í nágrenni Reykjalundar í Mosfellsbæ, en einnig er verið að skoða lóðir á Álftanesi og í Garði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FJÖLMIÐLAR Blaðamannafélag Íslands harmar að fjöldi reyndra starfsmanna Morgunblaðs- ins hafi verið rekinn. Í tilkynningu frá félag- inu segir að blaðamenn geti ekki við það unað að umdeildur stjórnmálamaður eins og Davíð Oddsson, sem tengist efnahagshruninu í gegnum fyrri störf, ritstýri blaðinu. Hátt í fjörutíu starfsmenn Morgunblaðsins, fastráðnir og ekki, hafa misst vinnuna upp á síðkastið, þar af þrjátíu í gær. Meðal þeirra var tæpur fimmtungur blaðamanna, eða nítj- án af 104. Meðal brottrekinna er fólk með um fjörutíu ára reynslu. „Á sama tíma og ritstjórum blaðsins er fjölgað í tvo er gífurlegri þekkingu nærri tut- tugu blaðamanna kastað á glæ,“ segir í til- kynningu félagsins. Ritstjórarnir tveir, sem um ræðir, eru Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, og Haraldur Johannessen, áður ritstjóri Viðskiptablaðsins. „Þetta var auðvitað mjög erfiður dagur,“ segir Guðni Einarsson, trúnaðarmaður á rit- stjórn Morgunblaðsins: „Erfiðastur fyrir þá sem voru reknir og erfiður fyrir þá sem þurftu að sjá á eftir frábæru samstarfsfólki sínu.“ Í tilkynningu frá útgáfufélaginu Árvakri kemur fram að aðgerðunum sé ætlað að koma rekstri blaðsins í jafnvægi. Fram undan sé „umtalsverð barátta þar sem Árvakur mun hvergi gefa eftir“. Nokkrir lesendur Fréttablaðsins greindu frá því í gær að þeir hefðu reynt að segja upp áskrift sinni að Morgunblaðinu þá um daginn, en ekki tekist. Á skrifstofum blaðsins hefði síminn verið á tali. - kóþ Blaðamannafélagið harmar uppsagnir á Morgunblaðinu og segir Davíð Oddsson draga úr trúverðugleika: Blaðamenn geti ekki við þetta unað ÓSKAR KYNNIR BREYTINGARNAR Útgáfustjóri Morgun- blaðsins kynnti breytingar í rekstri blaðsins í gær. Hann býst við því að nýir ritstjórar taki til starfa í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ÚTGÁFA Popp, mánaðarlegt fylgirit Fréttablaðins, kemur út í fyrsta skipti í dag. Fegurðar- drottningin Ingibjörg Ragnheiður Egilsdóttir, sem keppti fyrir Íslands hönd í Miss Universe, og Bjarni Jens- son, söngv- ari hljóm- sveitarinnar Cliff Clavin, prýða fyrstu forsíðu Popps. Í blaðinu er einnig dómur um plötuna The Resistance með Muse, umfjöllun um nýjasta myndband Rammstein og margt fleira. Ritstjóri er Atli Fannar Bjarka- son, sem hóf nýlega störf á Frétta- blaðinu eftir að hafa ritstýrt tíma- ritinu Monitor síðustu misseri. Nýtt blað með Fréttablaðinu: Popp kemur út í fyrsta skipti Laugavegi · Kringlunni www.skifan.isNÝTT Í SKÍFUN NI #1 Á ÍSLAN DI GU S GU S HJ ÁL MA R CLIFF CLAVIN LÍTIÐ ROKK AÐ LÁTA R EKA SIG ÚT ÚR HVALVEIÐIS KIPI FYLGIRIT FRÉTTABLA ÐSINS • SEPTEMBER 20 09 REYKJAVÍK Borgarráð vísaði í gær, með atkvæðum meirihlutans, frá tillögum Vinstri grænna og Sam- fylkingar um að borgin beitti sér fyrir uppsetningu minnismerkis um Helga Hóseasson á horni Langholtsvegar og Holtavegar. Fulltrúar minnihlutans höfðu lagt fram hvor sína tillöguna. Í bókun meirihlutans er vísað í frumkvæði hóps einstaklinga sem sýnt hafi verkinu áhuga. Borgarstjóri hafi þegar hitt for- svarsmenn hópsins og ekki sé tímabært að Reykjavíkurborg leggi línurnar í málinu. Hópurinn muni senda inn erindi um málið á næstu vikum. - kóp Minning Helga Hóseassonar: Tillögum um styttu vísað frá HELGI HÓSEASSON Meirihlutinn vill bíða eftir hugmyndum hóps áhugamanna um hvernig beri að minnast Helga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KÓPAVOGUR Undirbúningur fyrir byggingu óperuhúss í Kópavogi kostaði 35 milljónir, en ekkert varð af húsinu. Þetta var upplýst á fundi bæjar- ráðs Kópavogs í gær, eftir fyrir- spurn frá Guðríði Arnardóttur, fulltrúa Samfylkingarinnar. Guð- ríður segir í samtali við RÚV að þetta sé allt of mikill kostnaður og hefur óskað eftir að fá að sjá reikningana. Gunnsteinn Sigurðsson, bæjar- stjóri fyrir hönd sjálfstæðis- manna, segir enga ástæðu til að ætla annað en kostnaðurinn sé eðlilegur. - kóþ Bæjarráð Kópavogs: Hús sem ekki varð kostar 35 milljónir króna EFNAHAGSMÁL Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, tekur undir tillögur ASÍ um úrbætur á lögum um greiðsluaðlögun og annað sem tengist skuldavanda heimil- anna. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu sem Gísli sendi frá sér í gær. Hann segir að fagna beri frum- kvæði ASÍ og samantektinni, sem sé í ágætu samræmi við úrbótatil- lögur hans. Tillögurnar eru jákvæðar að því leyti að þær bæta greiðsluað- lögunarferli sem neyðarúrræði og styrkja réttarstöðu lántakenda, að mati Hagsmunasamtaka heim- ilanna, sem einnig sendu frá sér yfirlýsingu í gær. Þær taka hins vegar ekki á þeim forsendubresti sem breytt hefur skuldastöðu heimilanna og höggva ekki á þann efnahagshnút sem blasir við heim- ilum landsins. Talsmaður neyt- enda er á svipuðu máli og bendir á að sértæk úrræði til greiðsluað- lögunar dugi ekki til fyrir neyt- endur. Þau mæti ekki þeim mikla vanda sem íslensk heimili standi frammi fyrir vegna skulda. Hagsmunasamtök heimilanna segja Seðlabankastjóra hafa tekið af allan vafa um að taka þurfi á gengistryggðum lánum svo hægt sé að lækka stýrivexti. Tillögur ASÍ ekki hafa nein áhrif á boðað greiðsluverkfall, sem á að hefjast þann 1. október. - þeb Talsmaður neytenda og Hagsmunasamtök heimilanna um tillögur ASÍ: Taka ekki á forsendubresti MÆTA EKKI VANDA Tillögur ASÍ taka ekki á forsendubresti vegna hrunsins, að mati talsmanns neytenda og Hagsmunasamtaka heimilanna. Almenningur stendur frammi fyrir miklum vanda, og greiðsluaðlögun dugar ekki til að leysa úr því. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ORKUMÁL Að sögn Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, hafa þeir Barack Obama rætt árangur Íslendinga á sviði hreinnar orku sín á milli. Biden greindi Ólafi Ragnari Grímssyni frá þessu á fundi þeirra í bandaríska utan- ríkisráðuneytinu í gær. Þar sátu Ólafur Ragnar og Biden 300 gesta kvöldverð þar sem fagnað var „árangri Íslands í orkumálum“, segir í tilkynningu forsetaembættisins. Ólafur ræddi þar hvernig „tæknikunnátta Íslendinga gæti nýst öðrum þjóð- um“. - pg Forseti Íslands: Obama og Biden ræða orkumál SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.