Fréttablaðið - 25.09.2009, Qupperneq 10
10 25. september 2009 FÖSTUDAGUR
STJÓRNSÝSLA Nefnd þriggja lög-
fræðinga undir forystu Bryndísar
Hlöðversdóttur, aðstoðarrektors á
Bifröst, hóf í júní í fyrra skoðun
á gildandi lagareglum um eftir lit
Alþingis með framkvæmdarvald-
inu og mat á hvort breytinga væri
þörf.
Niðurstöðurnar liggja fyrir í
tæplega 300 blaðsíðna skýrslu
sem kynnt var í gær. Þær eru ein-
dregnar. Breytinga er þörf.
Meðal þess sem nefndin legg-
ur til er að lögfestar verði regl-
ur um upplýsingaskyldu ráðherra
gagnvart Alþingi. Réttaróvissa á
þessu sviði er, að mati nefndar-
innar, afar óæskileg fyrir sam-
skipti þings og ríkisstjórnar.
„Meðan inntak skyldunnar er
óljóst er ólíklegra en ella að ráð-
herra verði látinn sæta pólitískri
ábyrgð leggi hann ekki fram við-
hlítandi upplýsingar fyrir Alþingi
eða leyni þingið mikilvægum upp-
lýsingum,“ segir í skýrslunni.
Lagt er til að ríkisstjórn beri að
skila árlegri skýrslu til þingsins
um framkvæmd þingsályktana.
Slíkar ályktanir eru oft og tíðum
yfirgripsmiklar og stefnumark-
andi en hvergi er fjallað um eftir-
fylgni með framkvæmd þeirra.
Nefndin vill að settar verði
skýrari reglur um upplýsinga-
rétt þingmanna og aðgang þings-
ins, einkum þingnefnda, að gögn-
um hjá stjórnvöldum. Jafnframt
að settar verði reglur um heimild
ráðherra til að leggja fyrir Alþingi
upplýsingar sem háðar séu þagnar-
skyldu, um örugga meðhöndlun
trúnaðarupplýsinga og um þagnar-
skyldu alþingismanna um upplýs-
ingar sem leynt eigi að fara.
Að mati nefndarinnar ber að
fækka fastanefndum þingsins
en þær eru nú tólf. Meðal annars
er dregið fram að ef nefndirn-
ar eru færri og starfssvið þeirra
nær til fleiri en eins ráðuneyt-
is megi draga úr hættu á að ráð-
herra reyni að hafa áhrif á skipan
og störf nefnda. Jafnframt er lagt
til að ný nefnd, stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd, verði sett á fót og
falið að sinna eftirlitshlutverki
með framkvæmdarvaldinu.
Þá er í skýrslunni lagt til að
refsiheimildir laga um ráðherra-
ábyrgð verði skýrðar, að íhuguð
verði mildari úrræði til að beina
gagnrýni á embættisfærslu ráð-
herra en að lýsa á hann vantrausti
og að skipulag landsdóms verði
tekið til skoðunar.
Auk Bryndísar formanns sátu í
nefndinni Andri Árnason hæsta-
réttarlögmaður og Ragnhildur
Helgadóttir prófessor. Með henni
starfaði Ásmundur Helgason, lög-
fræðingur hjá Alþingi.
bjorn@frettabladid.is
Lagt til að upplýsingaskylda
ráðherra verði færð í lög
Nefnd þriggja lögfræðinga telur nauðsynlegt að eftirlitshlutverk Alþingis með framkvæmdarvaldinu verði
styrkt. Nefndin leggur til fjölmargar leiðir til úrbóta. Setja þurfi sérstök lög og breyta stjórnarskrá.
EFTIRLIT ALÞINGIS MEÐ FRAMKVÆMDARVALDINU Kynningarfund vegna skýrslu vinnuhópsins sátu Helgi Bernódusson, skrifstofu-
stjóri Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir þingforseti, Bryndís Hlöðversdóttir, formaður hópsins, Ásmundur Helgason, starfsmaður
hópsins, og Ragnhildur Helgadóttir prófessor. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STILLIR SÉR UPP Afgönsk kona hélt
fyrir andlit sitt meðan hún stillti sér
upp til myndatöku í lautarferð með
fjölskyldu sinni í Jalrez-dal í Afganistan.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI „Þetta er mikil viður-
kenning fyrir okkur,“ segir Jón
Ólafsson, stjórnarformaður Ice-
landic Water Holdings, sem fram-
leiðir átappað vatn á flöskum undir
merkjum Icelandic Glacial. Um ár
er síðan fyrirtækið stækkaði við
sig í Þorlákshöfn.
Sala fyrirtækisins jókst um 78
prósent í Bandaríkjunum síðast-
liðna tólf mánuði, samkvæmt tölum
frá bandaríska fyrirtækinu Infor-
mation Resources, Inc. (IRI) og er
það mesta aukning á bandarískum
markaði með hágæðavatn.
Til samanburðar jókst sala næst-
mest á vatni undir merkjum Voss
Convenience um tuttugu prósent á
milli ára. Jón segir mestu skipta í
markaðssetningu að íslenska vatn-
ið er trúverðugt. „Það er hreint og
gott. Þeir sem drekka vatnið einu
sinni vilja ekkert annað,“ segir
hann. - jab
Icelandic Glacial springur út:
Fleiri drekka
íslenska vatnið
VATNSFLÖSKUR Á FÆRIBANDI Sala á Ice-
landic Glacial-vatni jókst um tæp áttatíu
prósent á milli ára í Bandaríkjunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur kom-
ist að þeirri niðurstöðu að Land-
spítalanum hafi verið heimilt að
banna yfirlæknum með stjórnunar-
skyldur á spítalanum að reka
einnig sjálfstæðar læknastofur
samhliða störfum sínum fyrir spít-
alann.
Hæstiréttur sýknaði í gær spít-
alann af kröfu yfirlæknis um við-
urkenningu á því að spítalanum
hafi verið þetta óheimilt.
Hæstiréttur dæmdi lækninum
hins vegar 1,8 milljónir í vangold-
in laun frá spítalanum með dráttar-
vöxtum. Sú krafa var til komin
vegna þess að Landspítalinn lækk-
aði einhliða í heimildarleysi starfs-
hlutfall hans um tuttugu prósent
eftir að nýr kjarasamningur tók
gildi 1. febrúar 2006.
Læknirinn hafði þegið 80 pró-
senta laun fyrir fullt starf hjá spít-
alanum frá því í september 2002,
á grundvelli bókunar í kjarasamn-
ingi frá því ári. Þar var læknum
sem einnig rækju einkastofu gert
að lækka annaðhvort starfshlut-
fall sitt eða þiggja fyrir störfin 20
prósentum lægri laun. Læknirinn
valdi aldrei á milli þessara kosta
og af þeirri ástæðu var talið að
bókunin gæti ekki haft áhrif á kjör
hans eftir að nýr kjarasamningur
tók gildi árið 2006. Sambærilegt
ákvæði var þar ekki að finna. - sh
Landspítalinn mátti banna yfirlækni sínum að reka einkastofu:
Mátti banna rekstur einkastofu
LANDSPÍTALINN Þarf að greiða læknin-
um 1,8 milljónir í vangoldin laun, auk
vaxta. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
TAÍLAND, AP Alþjóða heilbrigðis-
stofnunin WHO og Alnæmisstofn-
un Sameinuðu þjóðanna segja að
tilraunir í Taílandi með nýtt bólu-
efni gegn alnæmi hafi gengið vel
og lofi mjög góðu.
Í Taílandi var gerð stærsta til-
raun með bóluefni gegn alnæmi
sem ráðist hefur verið í til þessa.
All tóku sextán þúsund sjálfboða-
liðar þátt í tilrauninni. Niðurstað-
an varð sú að þeir sem fengu bólu-
efnið áttu mun síður á hættu að
smitast af alnæmisveirunni HIV.
Munurinn var 31 prósent, sem
að vísu telst ekki nægilega gott en
er þó fyrsta merki þess að mögu-
legt sé að vinna bug á veirunni
með bóluefni.
„Þetta gerir mig hóflega bjart-
sýnan á að unnt verði að ná betri
árangri,“ sagði Anthony Fauci,
yfirmaður Ofnæmis- og smitsjúk-
dómastofnunar Taílands sem fjár-
magnaði tilraunina ásamt banda-
ríska hernum.
Nýja bóluefnið er samsett
úr tveimur öðrum bóluefnum,
ALVAC og AIDSVAX, sem ekki
höfðu reynst vel hvort í sínu lagi.
Í tilrauninni var annað bóluefnið
gefið fyrst til þess að setja við-
brögð ónæmiskerfisins gegn HIV-
veirunni af stað, en síðan var hitt
efnið gefið til þess að styrkja áhrif
fyrra efnisins. - gb
Tilraunir í Taílandi með bóluefni gegn alnæmi lofa góðu:
Vekur vonir um sigur á AIDS
TEKIST Í HENDUR Þeir Eric John, sendiherra Bandaríkjanna í Taílandi, og Witthaya
Kaewparrdai, heilbrigðisráðherra Taílands, kynntu niðurstöður tilraunarinnar á blaða-
mannafundi í Bangkok. NORDICPHOTOS/AFP
27 þúsund manns sagt upp
Bílafyrirtækið Avtovaz í Rússlandi,
sem framleiðir bílategundina Lödu,
mun segja upp rúmlega 27 þúsund
starfsmönnum sínum á næstunni.
Það er um fjórðungur starfsmanna.
Ástæðan er minni sala bílanna.
RÚSSLAND
NEW YORK, AP Palestínumenn geta
ekki hafið friðarviðræður við
Ísraelsmenn að nýju strax vegna
„ósættis um þau grundvallar-
atriði“ sem viðræðurnar ættu að
snúast um. Þetta sagði Mahmoud
Abbas, forseti Palestínu, í viðtali
sem birt var í gær.
Barack Obama Bandaríkja-
forseti hefur eindregið hvatt
forystumenn ríkjanna tveggja
til að setjast aftur að samninga-
borðinu. Abbas segist vilja forð-
ast deilur við Bandaríkjastjórn.
Hann segir þó „engan sameigin-
legan grundvöll“ ríkja milli sín
og Benjamins Netanjahú, leið-
toga Ísraelsmanna. - kg
Forseti Palestínu:
Geta ekki hafið
viðræður á ný