Fréttablaðið - 25.09.2009, Qupperneq 12
12 25. september 2009 FÖSTUDAGUR
EVRÓPUSAMBANDIÐ „Það er tóm
blekking að Noregur standi utan
við Evrópusambandið,“ sagði
Fredrik Sejersted, formaður Evr-
ópuréttarstofnunar Óslóarháskóla,
á morgunverðarfundi um stöðu
Noregs í Evrópu sem haldinn var
í Norræna húsinu í gær.
Síðan Evrópska efnahagssvæð-
ið var stofnað fyrir fimmtán árum
hefur það vaxið mjög að umfangi,
bæði vegna þess að aðildarríkjum
ESB hefur fjölgað úr 15 í 27, laga-
safnið hefur vaxið úr 1.500 laga-
gerningum í 6.000, og svo hefur
framkvæmd og túlkun laganna
teygt áhrifasvið þeirra inn á æ
fleiri svið samfélagsins.
Sejersted, sem er prófessor í
stjórnskipunar- og Evrópurétti,
segir Norðmenn jafnvel duglegri
en sum af nýrri aðildarríkjum Evr-
ópusambandsins við að innleiða
nýjar reglur frá Brussel, þannig
að í raun geti tengsl Noregs við
sambandið talist nánari en tengsl
sumra aðildarríkjanna.
Sú blekking að Noregur sé
alls ekki í þessum nánu tengsl-
um við Evrópusambandið, heldur
standi utan við, skekkir síðan alla
umræðu í Noregi um Evrópusam-
bandið.
Þróun mála hér á landi hefur
hins vegar mikil áhrif á fram-
hald mála í Noregi: „Ísland stjórn-
ar norsku Evrópusambands-
umræðunni,“ segir Sejersted.
Sjálfur vonast hann til þess að
Ísland samþykki aðild að Evrópu-
sambandinu, ekki vegna þess að
hann hafi sérstaka skoðun á því
hvort aðild sé góð eða slæm fyrir
Ísland, heldur vegna þess að þá
færi af stað umræða um málið í
Noregi. Sú umræða hafi í reynd
legið niðri í fimmtán ár, eða síðan
Norðmenn felldu aðildarsamning í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Flestum í Noregi er illa við
Evrópska efnahagssvæðið,“ segir
Sejersted en telur samt ólíklegt
að Norðmenn gangi í ESB, jafn-
vel þótt Evrópska efnahagssvæð-
ið verði æ undarlegra fyrirbæri án
Íslands, ekki síst ef nokkur örríki í
Evrópu bættust í hópinn.
Það var Háskólinn á Bifröst sem
efndi til morgunverðarfundarins í
Norræna húsinu. Að loknu erindi
Sejersteds tóku til máls þau Elvira
Mendez, dósent við lagadeild
Háskóla Íslands, og Eiríkur Berg-
mann Einarsson, dósent við félags-
vísindadeild Háskólans á Bifröst.
„Ég spái því að Ísland gangi ekki
í ESB í fyrirsjáanlegri framtíð,“
sagði Eiríkur Bergmann. Það væri
þá helst ef efnahagsástandið héldi
áfram að versna. „Þá gætu Íslend-
ingar í augnabliks geðveiki átt það
til að segja já, en á venjulegum
degi munu þeir segja nei.“
gudsteinn@frettabladid.is
Segir tóma blekkingu að
Noregur standi utan ESB
Norskur Evrópuréttarfræðingur segir að án Íslands verði Evrópska efnahagssvæðið enn undarlegra fyrir-
bæri en nú. Eiríkur Bergmann dósent telur litlar líkur á því að Ísland gangi í Evrópusambandið.
FREDRIK SEJERSTED Segir að Evrópska efnahagssvæðið verði enn undarlegra fyrir-
bæri ef Ísland fari yfir í Evrópusambandið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
OPIÐ UM HELGINA Föstudag 12 - 18 I Laugardag 12 - 18 I Sunnudag 13 - 16
Akralind 9
201 Kópavogur
Sími 553 7100
www.linan.is
LAGERSALA Seljum eingöngu beint af lager okkar sem er aðeins opinn um helgar. Lítil yfirbygging = betra verð
Edge - Hornsófi 280x200 kr. 298.700
Lagersöluverð kr. 238.900
Litir: Sand og Night
Skoðið sófaúrvalið
á heimasíðu okkar
www.linan.is
UTANRÍKISMÁL Bændasamtökin hafa
ítrekað óskað eftir því að spurn-
ingalistar Evrópusambandsins, er
lúta að landbúnaði, verði þýddir
á íslensku. Utanríkisráðuneytið
hefur hafnað því og ber fyrir sig
kostnaði, sem sé um tíu milljónir
króna. Þá taki verkið tvo til þrjá
mánuði.
Bændasamtökin óska eftir því að
fá öll svör þeirra stofnana og ráðu-
neyta sem kunna að varða landbún-
aðar- og byggðamál til skoðunar,
með góðum fyrirvara áður en
erindi ESB verður svarað. Þau svör
verði einnig á íslensku. Samtökin
sjálf eru að vinna svör við listunum
og í þeim verður að finna þá fyrir-
vara sem þau telja að gera verði um
landbúnaðar- og byggðamál.
Bændasamtökin hafa einnig hvatt
til þess að svörin við spurninga-
listunum verði tekin til umræðu í
utanríkismálanefnd Alþingis. Árni
Þór Sigurðsson, formaður nefndar-
innar, segir að aldrei hafi neitt
annað komið til greina.
Evrópuhópur Alþingis kom
saman í gær og Árni Þór, sem einn-
ig er formaður hans, segir að þar
hafi menn velt fyrir sér möguleik-
anum á að þýða öll skjölin í anda
gagnsæis. Ekkert sé ákveðið í þeim
efnum en einstök ráðuneyti geti
tekið ákvörðun um sinn hluta.
- kóp
Bændasamtökin kalla eftir umræðu í utanríkismálanefnd um ESB-spurningar:
Bændur vilja íslensk ESB-skjöl
FORMAÐURINN Bændasamtökin vilja að
þau skjöl sem tengjast landbúnaðarmál-
um og verða til í tengslum við spurning-
ar ESB verði þýdd á íslensku. Haraldur
Benediktsson er formaður samtakanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
FJÖLMIÐLAR Forseti Bandaríkj-
anna hefur hug á að gera laga-
frumvarp til að auðvelda dag-
blöðum að sporna gegn þeirri
hnignun sem þau standa frammi
fyrir.
Til greina mun koma að dag-
blöðin, í breyttu rekstrarformi,
fái skattaívilnanir. Fari svo
verði þau ekki rekin í ágóða-
skyni.
Forsetinn, Barack Obama,
kynnti ritstjórum tveggja dag-
blaða þessar hugmyndir á fundi
með þeim í Hvíta húsinu í vik-
unni. Hann sagðist þar hafa
áhyggjur af því að fjölmiðlun
líktist æ meira bloggsíðum, þar
sem skoðanir réðu ríkjum, en
ekki staðreyndir. - kóþ
Bandarískir fjölmiðlar:
Obama vill lesa
betri dagblöð
BARACK OBAMA Forseti Bandaríkjanna
kynnti ritstjórum tveggja dagblaða hug-
myndir sínar í vikunni.
NÝJASTI FARARSKJÓTINN Japanska fyrir-
tækið Honda hefur kynnt til sögunnar
þetta nýstárlega hjól, sem auðvelt er
að ferðast á um gangstéttir stórborga.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÍRLAND, AP Írsk stjórnvöld hyggj-
ast tvöfalda skatt á notkun plast-
poka. Nái áformin fram að ganga
verður skatturinn 44 evrusent á
hvern poka, sem jafngildir rúm-
lega áttatíu krónum.
Írar voru fyrstir Evrópuþjóða
til að skattleggja plastpoka og
hafa sjö ára reynslu af skattlagn-
ingunni. Notkun á plastpokum
hefur dregist mikið saman, auk
þess sem stjórnvöld hafa fengið
andvirði ríflega 22 milljarða
króna í tekjur af skattinum.
Írsk stjórnvöld telja að áttatíu
króna skattur á hvern poka muni
fæla fólk enn frekar frá því að
nota plastpoka. - bj
Plastpokaskattur tvöfaldaður:
Greiða 80 krón-
ur fyrir pokann