Fréttablaðið - 25.09.2009, Síða 13

Fréttablaðið - 25.09.2009, Síða 13
FÖSTUDAGUR 25. september 2009 13 STJÓRNMÁL Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismála nefndar Al þingis, telur að ákvörðun Baracks Obama Bandaríkja- forseta um að hætta við upp- setningu eld- flaugavarna- kerfis í Póllandi og Tékklandi verði farsæl og bæti samskipti Bandaríkja- manna og Rússa. „Viðfangsefnið hlýtur að vera að efla samstarf og samstöðu í öryggismálum en ekki að búa til nýjar víglínur eins og ég taldi þetta kerfi gera,“ segir Árni Þór. Hann kveðst sammála fram- kvæmdastjóra Atlantshafsbanda- lagsins, Anders Fogh Rasmussen, um að öryggi fólks í Evrópu muni aukast með ákvörðun Banda- ríkjaforseta. - bþs Hætt við eldflaugavarnir: Árni ánægður með Obama ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON TRÚMÁL „Við leggjum áherslu á það í Neskirkju að lífið sé til að gleðj- ast yfir því,“ segir Örn Bárður Jónsson, prestur í Neskirkju, en í kaffihúsi safnaðarheimilisins þar hefur undanfarna föstudaga verið boðið upp á svokallaðan biblíumat og verður síðasta máltíðin í bili af þeim toga reidd fram í lok þessar- ar viku. „Kristin trú hefur máltíð sem miðju, altari kirkjunnar er veislu- borð og þangað er okkur stefnt til máltíðar sem er táknræn fyrir elsku Jesú, miskunn hans og fórn,“ segir Örn Bárður. Fundnar hafi verið uppskriftir að krásum sem eru líkar þeim sem eldaðar voru á dögum Jesú. Þær eru svo tengdar frásögnum Biblíunnar. - kdk Biblíumatur í Neskirkju: Krásir og Kristur VIÐSKIPTI Íþróttavörukeðjan JJB Sports tapaði 42,9 milljónum punda, tæplega níu milljörðum króna, fyrir skatta á fyrri helm- ingi ársins. Er þetta þrefalt meira tap en á sama tímabili í fyrra. Eins og kunnugt er eignaðist Kaupþing tæp 30 prósent í JJB Sports síðastliðinn vetur með veðkalli í sameiginlegum hlut Chris Ronnie og Exista í keðj- unni. JJB Sports er svo aftur ásamt Sports Direct í rannsókn hjá efnahagsbrotalögreglunni og samkeppniseftirlitinu fyrir meinta einokun og samráð á íþróttavörumarkaði í Bretlandi. Íþróttavörukeðjan JJB: Tapaði níu millj- örðum á árinu STJÓRNSÝSLA Sif Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Höfuðborgarstofu. Sif hefur gegnt starfi forstöðumanns síðan haustið 2007 er hún var ráðin í það tímabundið en hún starfaði sem verkefna- stjóri viðburða frá stofnun Höfuðborgar- stofu árið 2002. Alls 34 sóttu um stöðuna en við mat á umsækjendum var meðal annars litið til stjórnunarreynslu og þekkingu á verkefnastjórn- un á þeim sviðum sem einkenna starfsemi Höfuðborgarstofu. Stofan sinnir meðal annars skipulagi og framkvæmd hátíða Reykjavíkurborgar á borð við menningarnótt og rekur Upplýs- ingamiðstöð ferðamála. - sbt Höfuðborgarstofa: Sif Gunnars- dóttir ráðin SIF GUNNARSDÓTTIR Sogavegur HUMAR 2.000 kr.kg Glæný Stórlúðusteik Glæný Smálúðufl ök 1.790 1.790 Opið á morgun laugardag 10-14 Sjáumst í banastuði! NÁTTÚRA Sá fáheyrði atburður átti sér stað á dögunum að nokkrir stórir laxar voru tekn- ir úr klakkistu í Fnjóská. Ummerki við ána sýna að laxinum var slátrað á bakkanum og var aðkoman ömurleg að sögn þeirra sem að komu. Sigurður G. Ringsted, sem starfar fyrir veiðifélag árinnar, segir ljóst að minnst fimm tveggja ára fiskar hafi verið teknir. Allir lax- arnir voru hrygnur, að því er best er vitað. Aðkomu veiðimanna við ána er lýst á heimasíðu veiðifélagsins. „Blóðugur vígvöll- ur og ástandið á kistunni þegar að var komið bar þessari hetjudáð miður fagurt vitni. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hugar- heim þessa vesalings manns, en væntanlega mun hann í góðra vina hópi geta stært sig af „veiðinni“. Sigurður segir að fyrir veiðifélagið sé þetta töluvert áfall og fjárhagslegt tjón. „Þarna fór stór hluti þeirra fiska sem nota átti til undan- eldis og það er ólíklegt að svo síðla hausts takist okkur að ná í aðra fiska í staðinn.“ Atvikið hefur verið tilkynnt til lögreglu en Sigurður gerir sér litlar vonir um að það skili neinu. Hann segir að sá er í hlut eigi hljóti hins vegar að vera staðkunnugur því það séu helst veiðimenn sem viti hvar klakkistur árinnar sé að finna. - shá Ótrúlegt virðingarleysi við laxveiðiána Fnjóská gæti spillt ræktunarstarfi í ánni: Veiðiþjófar slátruðu laxi úr klakkistunni KOLBEINSPOLLUR Í FNJÓSKÁ Veiðifélagið ætlaði að rækta fimmtíu þúsund seiði. Hrygnurnar hefðu gefið um helming þess seiðamagns. MYND/VEIÐIFÉLAGIÐ FLÚÐIR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.