Fréttablaðið - 25.09.2009, Qupperneq 26
25. september 2009 FÖSTUDAGUR2
MEISTARABALL er yfirskrift risadansleiks sem haldinn verður í
Kaplakrika í Hafnarfirði laugardaginn 26. september. Þá fagna Haukar því
að vera komnir í efstu deild karla í fótbolta. Egó og Papar spila fyrir dansi.
„Við hefjum leikinn á sunnudag-
inn klukkan 13 með Karnivali
dýranna,“ segir Pamela De Sensi,
þverflautuleikari og listrænn
stjórnandi barnatónleikaraðar, sem
tileinkuð er börnum frá fimm ára
aldri í Salnum í Kópavogi.
Pamela er ítölsk en hefur búið
á Íslandi í sex ár. „Ég var mikið
með barnatónleika á Ítalíu og hef
síðustu tvö ár séð um kennara-
tónleika í tónlistarskóla Kópavogs
þar sem ég kenni,“ segir Pamela
en þar setti hún upp verkið Pétur
og úlfurinn með blásarakvintett og
í fyrra var sett upp Karnival dýr-
anna. „Það var uppselt í hvert sinn
og eftir það fór ég að velta fyrir
mér hvernig ég gæti útvíkkað
þessa hugmynd,“ segir Pamela og
þegar Salurinn bauð henni að hafa
umsjón með barnatónleikaröð var
svarið komið.
Pamela segist hafa meira gaman
af því að setja upp slíka tónleika hér
á landi en á Ítalíu. „Hér eru mun
fleiri krakkar sem læra á hljóð-
færi en á Ítalíu og hafa því meiri
áhuga á klassískri tónlist. Þá virð-
ist almenningur hafa meiri áhuga á
slíkri tónlist og láta börn sín frek-
ar læra á hljóðfæri,“ segir hún.
Einnig þykir henni skemmtilegt
að geta ekki einungis kynnt fyrir
börnum verkin sem eru á dagskrá
heldur kenna þeim hvernig tónlist-
in er byggð upp og hvernig hljóð-
færin virka.
„Tónleikarnir eru bæði fyrir
börn og fullorðna og allir hafa jafn
gaman af þeim,“ segir Pamela.
Tónleikarnir á sunnudaginn hefj-
ast klukkan 13 en hálftíma fyrir
sýningu verður skemmtidagskrá í
anddyrinu. „Við viljum ekki að börn-
unum leiðist og þurfi að bíða í bið-
röð eftir því að komast inn í salinn,“
segir hún en félagar úr götuleik-
húsinu skemmta krökkunum með
ýmsum uppákomum. Auk þess er
boðið upp á fría andlitsmálningu.
Fyrstu tónleikarnir í röðinni
verða eins og áður sagði á sunnu-
dag. Þá er Karnival dýranna eftir
Camille Saint-Saens á dagskrá. Það
er skemmtileg svíta sem sameinar
skemmtun og nám þar sem hljóð-
færin líkja eftir alls konar dýrum
í skemmtilegri sögu.
Sögumenn eru Guðrún Ásmunds-
dóttir og Sigurþór Heimisson og
Kammerhópurinn Sheherazade spil-
ar. Þá syngja Hallveig Rúnarsdóttir
og Hulda Björk Garðarsdóttir nokk-
ur lög.
„Svo er gaman ef börnin geta
komið í búningum, þá myndast
svo skemmtileg stemning,“ segir
Pamela og er spennt fyrir vetrar-
dagskránni.
Næstu tónleikar verða 1. nóvem-
ber en þá eru sagðar Sögur draugs-
ins Tíbri. Hinn 31. janúar eru Hljóð-
in í frumskóginum og 21. febrúar
verður klassískt diskótek. Nánari
upplýsingar um dagskrána má finna
á www.salurinn.is.
solveig@frettabladid.is
Opna töfradyr að heimi
klassískrar tónlistar
Töfrahurð kallast barnatónleikar sem haldnir verða í Salnum í Kópavogi í vetur. Þar geta börn gerst virkir
þátttakendur í tónlistaruppákomum og kynnst heimi klassískrar tónlistar með óvenjulegum hætti.
Á fyrstu tónleikunum á sunnudaginn
verður flutt Karnival dýranna eftir
Camille Saint-Saëns.
Pamela De Sensi ásamt þeim Hallveigu Rúnarsdóttur og Huldu Björk Garðarsdóttur sem taka lagið á tónleikunum á sunnudaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Vestfirsk leikhús og leikfélög láta
ekki deigan síga þennan veturinn og
stefna að því
að setja upp
átta ný verk
auk þess sem
hin árlega ein-
leikjahátíð Act
Alone verður
á sínum stað.
Einnig verða
verk sem nú
þegar hafa
notið velgengni sýnd aftur í vetur.
Frá þessu er greint á fréttavefnum
www.bb.is en þar er vísað í bækling
sem út kemur á næstunni á vegum
Kómedíuleikhússins, Act Alone,
Brúðuleikhússins, Dúkkukerrunnar,
Höfrungi leikdeild, Leikfélags Hólma-
víkur og Litla leikklúbbsins.
Fjörugt leiklistarár á
Vestfjörðum
ÁTTA NÝ LEIKVERK VERÐA SETT UPP Á
VESTFJÖRÐUM Í VETUR.
Leiksýningin Dimmal-
imm verður sýnd
áfram í vetur.
Bandarískur listamaður vill fá að koma
fyrir styttu af geirfugli í fjöru á Reykja-
nesi.
Listamaðurinn Todd McGrain sækist eftir því að
koma fyrir listaverki tileinkuðu geirfuglinum
í fjörunni neðan við Valahnjúk á Reykjanesi.
Frá þessu er greint á fréttavef Víkurfrétta,
www.vf.is.
Þar segir að menningarráði Reykjanes-
bæjar hafi borist formlegt erindi um efnið og
hafi ráðið samþykkt staðsetninguna fyrir sitt
leyti.
McGrain hefur í fimm ár unnið að verk-
efni sem kallast „Lost Bird Project“ og er til-
einkað fimm útdauðum fuglategundum. Hann
hefur þannig unnið fimm skúlptúra af fuglunum.
Þeirra á meðal er geirfuglinn sem varð útdauður í
júlí 1844 þegar tveir síðustu fuglarnir í heim-
inum voru drepnir á syllu í Eldey, suðvestur
af Reykjanesi.
Geirfugl í fjöruna
V-BRA - rosa flottur fyrir
mjög flegið !! í BCD skálum á
kr. 7.385,-
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Viðurkenndar
stuðningshlífar
í úrvali