Fréttablaðið - 25.09.2009, Side 40
Stutt- og heimildamyndahátíðin Nordisk Panorama verður haldin í
Reykjavík 25.–30. september næstkomandi. Hátíð þessi hefur verið haldin
hátíðin er samstarfsverkefni Reykjavíkur, Bergen, Århus, Oulu og Malmö.
Hátíðin býður upp á einstakt tækifæri til þess að taka púlsinn á norrænni
kvikmyndagerð og vera fyrstur til að sjá nýjar myndir eftir þekkta
norrænna leikstjóra hefur þreytt frumraun sína á Nordisk Panorama og
er hátíðin mikilvægur stökkpallur fyrir unga kvikmyndagerðarmenn.
Keppnisdagskrár hátíðarinnar eru þrjár þar sem 72 nýjar stutt- og
heimildamyndir keppa um fern verðlaun: Besta norræna stuttmyndin,
Besta norræna heimildamyndin, Besta nýja norræna röddin og Canal+
verðlaunin. Jafnframt eru áhugaverðar hliðardagskrár með nýjum
alþjóðlegum myndum og málþing með þekktum fyrirlesurum. Meirihluti
mynda hátíðarinnar verða sýndar í Regnboganum að undanskildum
kvikmyndasýningum Rafskinnu í Hafnarhúsinu, kvikmyndasýningum í
Þjóðminjasafninu og málþingi í Norræna húsinu. Samhliða hátíðinni fer
fram fjármögnunarmessa í Iðnó og kvikmyndamarkaður á Hótel Borg.
KIPPIR FÓTUNUM UNDAN BERLUSCONI
Leikstjóri: Erik Gandini
26.09 kl. 20.00 / 28.09 kl. 10.00 / 28.09 kl. 22.00
Heimildamyndin Videocracy eftir hinn sænska Erik Gandini fjallar
um póltíkina í ítölsku sjónvarpi og hefur vægast sagt komið illa við
forsætisráðherrann Silvio Berlusconi. Stikla úr myndinni hefur verið
bönnuð á öllum helstu sjónvarpsstöðum á Ítalíu en í myndinni er fjallað
um ómenninguna í ítölsku sjónvarpi og hvernig það grundvallast á
því að styðja við og byggja upp draumaheim eiganda þess Silvio
Berlusconi. Ótrúleg viðbrögð hafa komið fram en myndin var valin á
bæði Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Toronto og kvikmyndahátíðina í
HVAÐ GERIR FÓLK Á BAK VIÐ LUKTAR DYR?
Leikstjóri: Jukka Kärkkäinen
27.09 kl. 22.00 / 28.09 kl. 18.00
The Living Room of the Nation er einstök heimildamynd, ljóðræn og
persónuleg. Hún opnar heimili fólks fyrir umheiminn að fylgjast með.
Myndin er líkt og mósaík mynd af hversdagsleikanum sem allir eiga
sameiginlegan. Allt frá æskuminningum til eldhússlysa, líkamsrækt til
vinaræktar og áfengisdrykkju til sjónvarpsgláps. Einstök mynd sem sýnir
við sama hversdagsleikann.
ANDSTÆÐINGAR
GRAFA STRÍÐS-
ÖXINA
Leikstjóri:
Nahid Persson Sarvestani
26.09 kl. 12.00 / 26.09 kl. 22.00
29.09 kl. 12.00
Leikstjóri The Queen and I,
Nahid Persson Sarvestani, hefur
gert fjölda mynda sem fjalla um
ástandið í heimalandi sínu Íran.
Hún tók þátt í uppreisninni árið
1979 þegar konungsvaldið var
upprætt og konungsfjölskyldan
í útlegð frá heimalandi sínu en
myndin fjallar um drottninguna
fyrrverandi og ólíklegan
vinskapinn sem myndast á
milli þessara tveggja pólitísku
andstæðinga.
SKYGGNST INN Í LOKAÐ LAND
Leikstjóri: Anders Østegård
27.09 kl. 12.00 / 29.09 kl. 10.00 / 29.09 kl. 22.00
Í BURMA VJ – Reporting from a Closed Country gefst einstakt tækifæri
til þess að fylgjast með byltingunni sem átti sér stað í Burma sumarið
2007 þegar Búdda munkar leiddu meira en 100.000 manns í friðsamri
kröfugöngu gegn því hervaldi sem haldið hefur landinu í gíslingu í fjóra
taka upp atburðarásina með földum myndavélum. Þessum myndum
fréttamannanna sem kölluðu sig The Democratic Voice of Burma, var
smyglað út úr landinu og var myndefnið það eina sem umheimurinn fékk
að sjá frá þessu hertekna landi. Þessi heimildamynd hefur farið sigurför
um heiminn og unnið til verðlauna á helstu heimildamyndahátíðum
í heiminum, IDFA, Sundance, Boulder og CPH:DOX. Þessa mynd má
enginn láta framhjá sér fara.