Fréttablaðið - 25.09.2009, Page 48

Fréttablaðið - 25.09.2009, Page 48
14 • SENDU OKKUR ÞÍNA SÍMAMYND Í SÍMA 696 7677 EÐA Á POPP@FRETTABLADID.IS OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ TVO KASSA AF DORITOS! ÞÚ GÆTIR UNNIÐ TVO KASSA AF DORITOS Belgíska plötusnúðatvíeykið 2 Many DJ’s kemur til landsins og spilar í „Party at the Top of the World“, sem er loka- hnykkur ráðstefnunnar Eve Online Fan- fest 2009. Hátíðin fer fram dagana 1-3. október, en Belgarnir stíga á svið á mið- nætti laugardagskvöldsins 3. október. 2 Many DJ‘s er víðfrægur dúett og hefur dælt út diskum undanfarin ár. Dúettinn spilar mjög partí- og dansvæna tónlist og var meðal þeirra fyrstu sem tóku upp á því að blanda saman lögum úr ólíkum áttum, frumkvöðla í svokallaðri „boot- leg“-tónlist. Strákarnir gera líka út rokk- bandið Soulwax, en rokkið hefur legið í láginni enda brjálað að gera í hinu. Miða- sala er hafin á midi.is. Það kostar 2.900 kr. í „Party at the top of the World“, en 5.000 kr. á alla dagskrá Eve Online Fan- fest, þar með talið partíið. - drg 2 MANY DJ’S KEMUR HRESSIR 2 Many DJ‘s spilar á laugardagskvöld. FANGI Í APÓTEKI Árvökull vegfarandi náði þessari mynd af þátttakanda í Fangavaktarleik Stöðv- ar 2 í Kringlunni. Taktu mynd með símanum og sendu okkur. Við birtum bestu myndirnar og höfundur langbestu myndarinnar fær tvo kassa af Doritos. Myndirnar geta verið af hverju sem er, atburði, Sveppa, Michael Jackson, Jóhönnu Guðrúnu eða bara góðu flippi. TAKTU SÍMAMYND! Myndavélasíminn í þáttunum Flight of the Conchords var gamall Nokia-sími með áfastri filmumyndavél frá tí- unda áratugnum. Sem sagt, núll megapixlar. Tónastöðin er með meiriháttar úrval magnara í öllum stærðum og gerðum frá heimsþekktum framleiðendum! Hjá okkur færðu faglega þjónustu, byggða á þekkingu og áratuga reynslu. frábært úrv al

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.