Fréttablaðið - 25.09.2009, Side 58
26 25. september 2009 FÖSTUDAGUR
Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands heldur sína fyrstu
tónleika í Háskólabíói á morgun klukkan 17 en hún er skipuð
lengra komnum hljóðfæraleikurum á aldrinum tólf til 25
ára. Sveitin ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægst-
ur og mun flytja hina magnþrungnu sinfóníu númer 5 eftir
Shostakovitsj.
„Við völdum erfitt verk til að ungmennin myndu þurfa
að reyna sig til hins ýtrasta og standa þau, af æfingum að
dæma, fyllilega undir væntingum,“ segir Rumon Gamba,
aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem
mun stjórna hljómsveitinni.
Hljómsveitina skipa níutíu tónlistarnemendur sem koma
víða að en yfir 140 umsóknir bárust Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands í vor. Nokkrir nemanna koma utan af landi og sumir
hafa tekið sér frí frá námi í erlendum tónlistarskólum til
að geta tekið þátt. Nemendurnir hafa sótt námskeið síðan
12. september og fengið að kynnast öllum hliðum þess að
leika í stórri sinfóníuhljómsveit. „Ungir tónlistarnemar
hafa hingað til ekki fengið tækifæri til að spila í jafn stórri
hljómsveit en ég held að það sé afskaplega mikilvægt fyrir
þá sem vilja leggja tónlistina fyrir sig. Ef þetta verður að
föstum lið í starfsemi Sinfóníuhljómsveitarinnar, sem vonir
standa til, er þetta auk þess eitthvað til að stefna að fyrir
ungt fólk sem er að læra á hljóðfæri.“
Rumon segir ungmennin áköf og metnaðargjörn. „Þau eru
ekki bara að þessu sér til skemmtunar heldur er þeim fúl-
asta alvara.“ Hann segir ungsveitina líkt og Sinfóníuhljóm-
sveitina leggja mikla áherslu á tónlistarsköpunina. „Mín
reynsla af íslensku tónlistarfólki er að það er ekki bara að
vinna heldur vill það skapa tónlist af bestu gerð.“
En hvers vegna var farið af stað með sveitina nú? „Okkur
hefur lengi langað til að gera eitthvað þessu líkt. Þegar Arna
Kristín Einarsdóttir, tónleikastjóri Sinfóníuhljómsveitar-
innar, tók til starfa fyrir nokkrum árum komst skriður á
málið en ungsveitin er henni mikið hjartans mál.“
Rumon segir ungsveit skipta miklu fyrir æsku landsins
en margoft hefur verið sýnt fram á að tónlistariðkun er
sterkt afl í uppeldi og menntun ungs fólks. Hann hefur tölu-
verða reynslu af því að vinna með ungliðasveitum í Evrópu
og miðlar tónlistinni til nemendanna þannig að þeir hrífast
með. vera@frettablaðið.is
UNGSVEIT SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR
ÍSLANDS: HELDUR FYRSTU TÓNLEIKANA
Stendur fyllilega
undir væntingum
ÁKÖF OG METNAÐARGJÖRN UNGMENNI Hljómsveitin ræðst ekki á
garðinn þar sem hann er lægstur og mun flytja sinfóníu númer 5 eftir
Shostakovitsj. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HEATHER LOCKLEAR ER 48
ÁRA Í DAG.
„Sem foreldri er ég
ávallt haldin samvisku-
buiti. Ég vil vera hér en
líka vera þar.“
Bandaríska leikkonan og
fyrirsætan Heather Lock-
lear er hvað þekktust fyrir
að hafa túlkað Amöndu
Woodward í sjónvarps-
þáttaröðinni Melrose
Place.
timamot@frettabladid.is
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og systur,
Ástrósar Sigurbjargar
Jónsdóttur Lingaas.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Hlévangs í Keflavík fyrir frábæra umönnun og hlýhug.
Per Snorre Lingaas og Edda Lingaas
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Rannveig Magnúsdóttir
frá Súgandafirði,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtu-
daginn 17. september sl. Jarðarförin fer fram frá
Fossvogskirkju í dag föstudaginn 25. september
kl. 13.00.
Sigríður S. Jónsdóttir
Magnús S. Jónsson Ágústa Gísladóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Valtýr Jónasson
frá Siglufirði,
lést á Elliheimilinu Grund mánudaginn 21. september.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Jónas Valtýsson Vigdís Sigríður Sverrisdóttir
Guðrún Valtýsdóttir
Baldvin Valtýsson Laufey Ása Njálsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við fráfall móður okkar, tengda-
móður, fyrrverandi eiginkonu, ömmu og
langömmu,
Ernu Guðlaugsdóttur.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Fossheima á
Selfossi fyrir einlæga umhyggju og alúð, einnig viljum
við þakka útfararþjónustunni Fylgd fyrir einstaka
þjónustu.
Óskar Jóhann Björnsson Sigríður Haraldsdóttir
Guðlaugur Gunnar Björnsson Elsa Birna Björnsdóttir
Guðmunda Rut Björnsdóttir Pétur R. Gunnarsson
Sigurður Guðni Björnsson Lilja G. Viðarsdóttir
Björn Jóhann Óskarsson
börn og barnabörn.
Elskulegur faðir minn og afi,
Jakob Valdimarsson
vélvirki, frá Hraunsholti Garðabæ,
lést á Hjúkrunarheimilinu Holtsbúð, Garðabæ, þriðju-
daginn 22. september. Útförin fer fram frá Garðakirkju
Garðabæ, þriðjudaginn 29. september kl. 15.00.
f.h. aðstandenda,
Sigurlaug Jakobsdóttir
og barnabörn.
Ástkær frændi okkar,
Úlfur Friðriksson
garðyrkjumaður og rithöfundur,
Hrafnistu, áður Austurbrún 2, Reykjavík,
lést laugardaginn 19. september. Útförin fer fram frá
Áskirkju mánudaginn 28. september kl. 15.00.
Guðrún Schmidt, Cornelie Seefeld og ættingjar.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu vegna
andláts og útfarar ástkærs sambýlismanns,
sonar, bróður, mágs og frænda,
Guðmundar Róberts
Ingólfssonar,
Garðabraut 18, Akranesi.
Sérstakar þakkir til allra þeirra sem hlúðu að honum
í veikindum hans.
Þórný Sigurjónsdóttir
Erla Hjörleifsdóttir Daði Kristjánsson
Sigrún Daðadóttir
Kristján Daðason Eygló Gunnarsdóttir
Finnbogi Rúnar og Aðalheiður Kristín Kristjánsbörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
Sigurþór Sigurðsson,
Skriðustekk 17, Reykjavík,
lést á Landakotsspítala mánudaginn 21. september.
Hallveig Ólafsdóttir
Einar Sigurþórsson Edda Runólfsdóttir
Kristín Sigurþórsdóttir Pétur Einarsson
Sigríður Sigurþórsdóttir Eyjólfur Steinn Ágústsson
Sólveig Sigurþórsdóttir Eggert Elfar Jónsson
Birgir Sigurþórsson Elva Björk Garðarsdóttir
Þór Sigurþórsson
Sigurður Gunnar Sigurðsson Arndís Guðnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Karl Karlsson
bóndi, Klaufabrekknakoti, Svarfaðardal,
lést laugardaginn 19. september á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri. Útför hans fer fram frá
Urðakirkju laugardaginn 26. september kl. 13.30.
Lilja Hallgrímsdóttir
Halla Soffía Karlsdóttir Atli Friðbjörnsson
Jónasína Dómhildur Karlsdóttir Gunnlaugur Einar
Þorsteinsson
afabörn og langafabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
Steinþór Viggó
Þorvarðarson
bifreiðastjóri, Tjarnarási 16, Stykkishólmi,
lést þriðjudaginn 22. september á hjartadeild
Landspítalans við Hringbraut.
Halldóra Jónsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.