Fréttablaðið - 25.09.2009, Síða 60
28 25. september 2009 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Tími á hring
HEYRÐU!
Palli!
Þú ert eins og
fílahjörð þegar
þú kemur niður
tröppurnar!
Nú?
Afsakið.
Er eitthvað
annað dýr sem
þú vilt að ég líki
eftir?
Veröld vöðvanna
Bank
Ekki þó
það líði
milljón ár.
Viltu vera
kærastinn
minn
Ertu að
meina í
hundaárum
Komdu
til Sollu,
Lóa!
Nei!
Komdu til
Hannesar!
Komdu
til mín!
Komdu
til mín!
Komdu
til mín!
Komdu
til mín!
Þetta væri
auðveldara
ef þú hefðir
eignast
tvíbura!
Auðveld-
ara fyrir
hvern?
Eins gott að það
er lyfta hérna.
Bank
Tími á hring
Allir ættu að kannast við Kenny Rogers, köntrípoppgoðsögnina sem heillað hefur heimsbyggðina með perlum á
borð við Coward of the County, The Gambler
og Islands in the Stream. Líklega vita færri
um svifdiskablæti söngvarans, frisbífíkn á
háu stigi sem dregið hefur dilk á eftir sér.
Áratugum saman hefur silfurrefurinn
frá Texas lokið hljómleikum sínum með því
að kasta frisbídiskum í tugatali út í salinn
til aðdáenda. Vegir Kennys eru órann-
sakanlegir og einhverra hluta vegna
þykir honum diskasvifið vera hinn
eini rétti hápunktur á æsilegum
köntrí klassíkurkvöldum. Fáir hafa
sett sig upp á móti því.
Þar til eitt afdrifaríkt kvöld í okt-
óber árið 1999. Undir lokin á tón-
leikum í Dallas vildi ekki betur
til en svo að einn af frisbídisk-
unum flaug úr hendi Kennys
og rakleiðis í risavaxna ljósakrónu sem hékk
yfir gestunum í salnum. Festingar losnuðu
og ljósakrónan datt úr nokkurri hæð niður
á Texasbúann Kevin O´Toole. Þegar Kenny
varð æsingsins í salnum áskynja heyrðist
hann muldra í míkrófóninn; „I guess I‘ve
just bought myself a lawsuit“.
Hann hafði rétt fyrir sér. O‘Toole kærði
Rogers, heimtaði tvær milljónir dollara í
skaðabætur og lét hafa eftir sér í fjölmiðlum
að óhappið hefði gert hann ófæran um að
fullnægja eiginkonu sinni. Kaldhæðni
örlaganna er slík að O‘Toole hefur örugg-
lega haft eitthvað allt annað en getuleysi í
huga þegar hann ákvað að eyða kvöldstund
í návist konungs köntríballaðanna.
Eflaust hefur lögsóknin verið útkljáð
utan dómstóla, eins og venjan er
með þá frægu. En Kenny lét sér ekki
segjast og er enn að fleygja frisbídisk-
um, tæpum áratug síðar.
Einu sinni kastað, þú getur ekki hætt
NOKKUR ORÐ
Kjartan
Guðmundsson
Helgarblaðið:
Heimili og hönnun:
Menning:
Kolbrún Halldórsdóttir í helgar-
viðtali.
Beinta Maria Didriksen og Levi
Didriksen: Levi níu ára er stoð
og stytta tvíburasystur sinnar
sem er með sjúkdóm sem
aðeins fimm manns í heiminum
þjást af.
Íslensk hönnun eins og hún
gerist best. Húsgögn, arkitek-
túr og vöruhönnun í Listasafni
Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum.
Þrjár óperufrumsýningar í maí.
Mest seldu bókmenntaverk
Evrópu í fyrra.
Íslenska ímyndin á viðreisnar-
árunum.
Allt um Listahátíðina.