Fréttablaðið - 25.09.2009, Síða 69
FÖSTUDAGUR 25. september 2009 37
Áður óútgefið lag með Michael
Jackson verður gefið út í næsta
mánuði. Lagið nefnist This Is It
og sjá bræður Jacksons um bak-
raddir. Lagið verður að finna á
nýrri tvöfaldri plötu sem hefur
meðal annars að geyma útgáfur
sem ekki hafa heyrst áður af
frægustu lögum Jacksons.
Ekki er vitað hvenær poppar-
inn sálugi tók upp nýja lagið.
Hann hafði unnið með listamönn-
um á borð við Akon og Will.i.am.
áður en hann lést í júní. „Lagið
sýnir enn og aftur það sem allur
heimurinn veit að Michael er
sannkölluð Guðsgjöf,“ sagði John
McClain, sem tók þátt í vinnslu
plötunnar.
Nýtt lag
með Jackson
MICHAEL JACKSON Nýtt lag með
Michael Jackson verður gefið út í næsta
mánuði.
Bandaríski hjúskaparmiðlarinn
Steven Ward, sem stjórnar þætt-
inum Tough Love á VH1, telur
að leikkonan Jennifer Aniston
og leikkarinn George Clooney
myndu eiga vel saman. „Þeir
menn sem Aniston hefur átt í
sambandi við síðan hún skildi við
Brad Pitt hafa allir verið tölu-
vert yngri en hún.
Ég veit ekki hvort
það yrði einhver
spenna á milli
hennar og Cloon-
eys, en ég held
hún ætti að
velja sér
mann sem
væri eins
og Cloon-
ey, ein-
hvern
sem er
aðeins
eldri
en hún
og hefur
allt sitt á
hreinu,“ sagði
Ward í við-
tali við Peoples Magazine. Hann
telur einnig að Aniston sé ánægð
karlmannslaus. „Ég held að hún
sé hamingjusöm. Hún hefur nóg
að gera og ef hún kysi að vera í
föstu sambandi þá er ég viss um
að hún gæti það. En mér sýnist
hún njóta þess að vera á lausu.“
Ánægð og
einhleyp
Söngkonan Lily Allen til-
kynnti á bloggsíðu sinni að
hún ætlaði að segja skil-
ið við tónlistina fyrir fullt
og allt. „Bara svo þið vitið
þá hef ég ekki samið um
framlengingu á útgáfu-
samningi mínum og
hef ekki hugsað mér
að gera aðra plötu.
Ég er þó enn mik-
ill aðdáandi tón-
listar. Ég mun
ljúka því sem ég
þarf að ljúka og
eftir það verð ég
tilbúin til að tak-
ast á við ný verk-
efni. Ég hef verið á
ferðinni síðustu fjögur
ár og hef látið röddina mína
finna fyrir því. Ég ætla því
að róa á önnur mið.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem Allen hefur látið slík
orð falla og stutt er síðan
hún lét hafa eftir sér að
hún ætlaði ekki að taka
upp nýja plötu í bráð.
Ástæða þessara
yfirlýsinga er talin
vera barátta henn-
ar gegn ólöglegu
niðurhali.
Hætt í tónlist
LILY ALLEN Hefur gefið út
sína síðustu plötu.
„Mér datt í hug að leggja eitt-
hvað af mörkum út af allri þess-
ari vitleysu í þjóðfélaginu,“ segir
Haukur Emil Kaaber, sem held-
ur styrktartónleika næstkomandi
þriðjudag. Allur ágóðinn rennur
til Mæðrastyrksnefndar og fram
koma Toggi, Svavar Knútur, Lára
Rúnars, pönkskvísurnar í Viður-
styggð og hljómsveitin HEK með
Hauk innanborðs. „Það er gaman
að standa í tónleikahaldi og mér
datt í hug að safna saman fólki
sem hefði áhuga og fá það til liðs
við mig,“ segir Haukur. „Það voru
allir mjög fljótir að taka við sér
og segja já.“
Haukur hefur sjálfur ekki farið
illa út úr kreppunni en vildi samt
sem áður leggja sitt af mörkum.
„Ég var svo heppinn að skulda
ekkert þegar þetta byrjaði en
hækkandi matarverð og svoleið-
is er að plaga mann,“ segir hann
og hvetur aðra til að sýna samhug
sinn í verki. „Ég held að allir sem
vettlingi geta valdið ættu að gefa
með sér. Það er greinileg þörf á
því.“
Tónleikarnir verða haldnir
á Café Rosenberg og miðaverð
er 1.000 krónur. Allur ágóðinn
rennur óskiptur til Mæðrastyrks-
nefndar. - fb
Sýnir samhug sinn í verki
HAUKUR EMIL KAABER Haukur heldur
góðgerðartónleika á Café Rosenberg
næsta þriðjudagskvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KortasalaTRYGGÐU ÞÉR SÆTI Á...
GRUMPY OLD WOMEN LIVE
ÓVISSUSÝNING
Vertu með!
Áskriftarkort er ávísun á góðan vetur. Sama verð og í fyrra!
Áskriftarkort fyrir unga fólkið og námsmenn á ótrúlegu verði!
LEIKFÉLAG AKUREYRAR / MIÐASALA: SÍMI 4600 200 / MIDASALA@LEIKFELAG.IS / WWW.LEIKFELAG.IS
MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200
...Rocky Horr
or með áskrif
tarkorti LA
lægsta verðið
á landinu, 4
sýningar á að
eins 7.900.-
Landsbankinn greiðir niður áskriftarkort fyrir ungt fólk (25 ára og yngri)
svo nú geta allir verið flottir á því og gerst fastagestir í leikhúsinu!