Fréttablaðið - 25.09.2009, Side 72
40 25. september 2009 FÖSTUDAGUR
HANDBOLTI Guðjón Valur Sigurðsson
komst í hóp tuttugu markahæstu
leikmanna þýsku úrvalsdeildar-
innar nú í upphafi tímabilsins
ytra. Hann hefur skorað þrjú
mörk í fyrstu þremur leikjum
sínum en fyrir tímabilið munaði
aðeins tveimur mörkum á honum
og Stefan Lövgren sem lék lengi
með Kiel.
„Nú, er það? Ekki hafði ég hug-
mynd um þetta,“ sagði Guðjón
Valur í léttum tón þegar Frétta-
blaðið upplýsti hann um þennan
merka áfanga.
„Eflaust er þetta ágætisárangur
en það er það sama sem gildir hjá
mér og hefur alltaf gert – maður
reynir fyrst og fremst að standa
sig vel og hjálpa sínu liði. Ef maður
skorar einhver mörk um leið er það
bara bónus.“
Guðjón Valur hefur því skor-
að alls 1.329 mörk í 264 leikjum í
þýsku úrvalsdeildinni. Hann hefur
á undanförnum átta árum leik-
ið með þremur félögum – Essen,
Gummersbach og nú Rhein-Neckar
Löwen.
Guðjón Valur hefur þó verið í
nýju hlutverki þar sem hann hefur
aðallega spilað sem leikstjórnandi.
Af þeim sökum hefur hann ekki
skorað jafn mörg mörk og hann er
vanur.
„Leikstjórnandinn okkar meidd-
ist í nóvember í fyrra og þá ákvað
þáverandi þjálfari liðsins að setja
mig í þá stöðu. Þar spilaði ég það
sem eftir lifði tímabilsins,“ sagði
Guðjón Valur.
„Í þeirri stöðu snýst mitt hlut-
verk meira um að stjórna leikn-
um og sjá til þess að boltinn flæði
vel. Ég hef því ekki verið að ein-
beita mér að því að skjóta mikið á
markið þó maður verði að gera það
endrum og eins.“
Í liði Rhein-Neckar Löwen eru
gríðarsterkar skyttur sem sjá um
að dúndra á markið. „Ég er með
Óla (Stefánsson) vinstra megin við
mig og (Pólverjann Karol) Bielecki
hægra megin. Það lítur út eins og
að ég sé að vippa að markinu þegar
ég reyni að skjóta,“ sagði Guðjón
Valur og hló.
Rhein-Neckar Löwen fékk
tvo leikstjórnendur til liðs
við sig fyrir tímabilið, þá
Snorra Stein Guðjóns-
son og Serbann Nik-
ola Manojlovic. Engu
að síður hefur Guðjón
Valur spilað mikið á
miðjunni í fyrstu leikj-
um tímabilsins.
„Það tekur alltaf sinn
tíma að koma sér inn í málin
hjá nýju félagi, sérstaklega fyrir
leikstjórnendur. Þeir þurfa að
læra inn á aðra leikmenn og
öfugt.“
Guðjón Valur segir það sig
engu máli skipta þótt hann skori
færri mörk en hann er vanur
þegar hann hefur verið að spila
sem leikstjórnandi.
„Það skiptir alls engu máli
enda snýst þetta um hvernig
maður undirbýr sig fyrir leikina.
Sem hornamaður er það ábyrgð
manns að vera fljótur fram og nýta
þau færi sem maður fær. Á miðj-
unni er maður ábyrgur fyrir spili
liðsins. Ég hef aldrei verið mikið
að skoða markalista en ég hef
þó fengið spurningar um hvern-
ig standi á því að ég hef verið að
skora minna. Þetta truflar mig þó
ekki neitt og á meðan þjálfarinn
er ánægður og mér tekst að hjálpa
liðinu skiptir það mig engu máli
hvort ég skora eitt mark eða tíu.“
Byrjunin á tímabilinu hefur
verið strembin hjá Rhein-Neckar
Löwen. Liðið hefur tapað tveimur
leikjum af þremur í deildinni og
þurfti framlengingu til að sigra
B-deildarfélagið Bittenfeld í þýsku
bikarkeppninni í vikunni.
„Við erum að byrja frá grunni
með marga nýja leikmenn og
nýjan þjálfara. Þetta tekur allt
sinn tíma þó það sé engin afsökun
fyrir frammistöðu okkar í bikar-
leiknum.“
Sem fyrr segir leika
þr í r Ís lend i nga r
með Rhein-Neck-
ar Löwen og fagnar
Guðjón Valur því.
„Við höfum allir
þekkst mjög lengi
vegna landsliðsins
en það er sérstakt
að vera með þeim í liði
og hitta þá tvisvar á dag.
En ætli börnunum finn-
ist þetta hvað skemmti-
legast enda nú allt í einu
fullt af íslenskum börn-
um í hverfinu til að leika
við.“ eirikur@frettabladid.is
sport@frettabladid.is
Skiptir engu hvort ég skori mikið
Guðjón Valur Sigurðsson, leikmaður Rhein-Neckar Löwen, er kominn í hóp tuttugu markahæstu leik-
manna þýsku úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Hann færðist upp fyrir Stefan Lövgren nú í upphafi tímabils-
GUÐJÓN VALUR
Með markahæstu leikmönn-
um í sögu þýsku úrvalsdeildar-
innar. NORDIC PHOTOS/BONGARTS
Gunnar Heiðar Þorvaldsson telur sig ekki enn hafa fengið þau
tækifæri sem hann hefur átt skilið hjá danska úrvalsdeildarfélaginu
Esbjerg. Hann hefur reyndar átt við meiðsli að stríða að undanförnu
en segir ljóst að hann muni fara frá félaginu við fyrsta tækifæri
nema eitthvað mikið breytist.
„Ég hef verið að glíma við meiðsli í nára síðustu tvo
mánuðina en er að komast í gegnum það. Ég hef spilað
þrjá leiki með varaliðinu og er allur að koma til,“
sagði Gunnar Heiðar.
Hann gekk til liðs við Esbjerg í júlí í fyrra en
hefur fá tækifæri fengið með liðinu. Hann
hefur í raun ekki fengið að spila reglulega
með sínu liði síðan hann lék með
Halmstad í Svíþjóð.
Árið 2006 var hann seldur til
Hannover 96 í Þýskalandi þar
sem hann fékk lítið að spila. Hann
var lánaður til Vålerenga í Noregi þar sem hann var
frá 2007-8 en var svo seldur til Esbjerg.
„Það munaði mjög litlu að ég hefði farið frá félaginu
í sumar en síðan meiddist ég og því varð ekkert úr því,“
sagði Gunnar Heiðar. „Ég hef fengið fyrirspurnir frá liðum á
Norður löndunum sem og frá Englandi og Skotlandi. Mér er
svo sem sama hvar ég spila – ég vil bara að fá að spila aftur.“
Hann er orðinn þreyttur á að vera þolinmóður og telur
sig ekki hafa fengið þau tækifæri sem hann hefur átt
skilið. „Það virðist engu skipta hvað ég geri. Ég mun
sjá til hvernig næstu mánuðir munu þróast en ef ekk-
ert gerist tel ég afar líklegt að ég fari annað þegar
félagaskiptaglugginn verður opnaður í janúar.“
Gunnar Heiðar hefur einnig misst sæti sitt í
landsliðinu. „Það er mjög skiljanlegt enda hef ég
lítið verið að spila. En ég er handviss um að ég fái
tækifæri til að sýna mig þar á nýjan leik.“
Esbjerg hefur gengið reyndar mjög vel það sem liðið
er af dönsku úrvalsdeildinni. Liðið er í efsta sæti deildar-
innar með 20 stig eftir níu leiki, tveimur meira en næstu lið.
Aðeins fimm stig skilja að efstu sex liðin.
GUNNAR HEIÐAR ÞORVALDSSON: HEFUR VERIÐ FRÁ HJÁ ESBJERG Í DANMÖRKU VEGNA MEIÐSLA
Munaði mjög litlu að ég hefði farið í sumar
Íslandsmeistarakeppni
í Ökuleikni
Brautin - bindindisfélag ökumanna
Á morgun, laugardaginn 26. september, verður haldin opin
Íslandsmeistarakeppni í Ökuleikni. Keppnin verður haldin við
Forvarnahúsið Kringlunni 3 og hefst kl. 13:00. Skráning og
nánari upplýsingar eru á www.brautin.is og í síma 588 9070.
FÓTBOLTI Það vakti mikla athygli
víða um heim þegar sjónvarpsupp-
taka náðist af óvenjulegu atviki
skömmu fyrir leik IFK Gauta-
borgar og Örebro í sænsku úrvals-
deildinni í fyrrakvöld. Markvörð-
ur IFK, Daninn Kim Christensen,
færði stangirnar á markinu sínu
um nokkra sentimetra til hliðar
þannig að markið minnkaði.
Dómarinn tók fyrst eftir
þessu þegar 20 mínútur voru
liðnar af leiknum og
lagaði stangirn-
ar. Sjónvarpsmyndavél-
ar náðu upptökum af öllu
þessu og gekk myndbrot um
þetta eins og eldur um sinu á
Youtube í gær.
Með Gautaborg leika þrír
Íslendingar: Hjálmar Jóns-
son, Ragnar Sigurðsson og
Theodór Elmar
Bjarnason. Allir
léku með liðinu í
þessum leik og sá
fyrstnefndi segir
að það alls ekki óhefðbundið að
markverðir reyni eitthvað slíkt í
Svíþjóð.
„Ég veit ekki hvort þetta hefur
eitthvað verið reynt heima á
Íslandi en ég tel mjög líklegt að
um 90 prósent allra markvarða
hér í Svíþjóð hafi gert þetta eða
eitthvað þessu líkt,“ sagði Hjálm-
ar í samtali við Fréttablaðið.
„Við vorum að tala um
þetta eftir æfingu í dag
[í gær] og vissum
ekki til þess að eitt-
hvað stæði um þetta
í reglunum. En það
virðist sem svo að
það eigi að gera
eitthvað mál út
úr þessu en ég
trúi því ekki að
honum verði eitthvað mikið
refsað fyrir þetta.“
Sænska knattspyrnu-
sambandið ákvað þó í
gær að skjóta málinu til
aganefndar sambands-
ins.
Håkan Mild, íþróttastjóri IFK
Gautaborgar, tók í svipaðan streng
í samtali við sænska fjölmiðla í
gær og sagðist vita til þess að fjöl-
margir markverðir hefðu stundað
þetta í gegnum tíðina.
„Þetta er kannski í fyrsta sinn
sem þetta er jafn áberandi og þetta
var í leiknum. Við vorum að spila
á gervigrasi og það var augljóst að
stangirnar voru færðar úr stað. Ég
er ekki viss um að það hefði sést
eins vel á venjulegu grasi,“ segir
Hjálmar.
„Annars fannst mér þetta bara
vera hlægilegt og þess þó síður
finnst mér þetta vera svindl.“
Liðin gerðu markalaust jafn-
tefli í leiknum, sem kom Hjálmari
og félögum ekki vel þar sem liðið
á í harðri baráttu við AIK á toppi
deildarinnar. AIK tapaði reyndar
í gærkvöldi fyrir Helsingborg, 3-2,
og eru því Gautaborg og AIK enn
efst og jöfn í deildinni með 47 stig
þegar sex umferðir eru eftir. - esá
Markvörður IFK Gautaborgar kærður fyrir að minnka markið sitt fyrir leik í sænsku úrvalsdeildinni:
Nánast allir markverðir hafi prófað þetta
HJÁLMAR
JÓNSSON
> Gunnar Már á leiðinni í FH
Fjölnismaðurinn Gunnar Már Guðmundsson er á leiðinni
til Íslandsmeistara FH samkvæmt frétt Stöðvar 2 í gær-
kvöldi. Gunnar Már á eftir eitt ár af samningi sínum við
Grafarvogsliðið, sem er fallið í 1. deild. Gunnar Már er
markahæsti leikmaður Fjölnis í efstu deild karla en hann
hefur skorað 15 mörk í 42 leikjum. Gunnar Már, sem
er kallaður „Herra Fjölnir“, hefur leikið allan sinn feril
með Fjölnisliðinu og spilaði með
liðinu í öllum deildum frá því
að liðið fór úr 3. deildinni upp
í efstu deild á árunum 2002
til 2008.
KÖRFUBOLTI Íslandsmeistarar KR
eru búnir að semja við Banda-
ríkjamanninn Semaj Inge sem er
23 ára og 195 cm leikstjórnandi
og útskrifaðist úr Temple-háskól-
anum í vor.
Semaj á sér tvíburabróður sem
spilaði með Colarado-skólanum
en sá heitir James Inge. James
er nefnilega stafað Semaj aftur á
bak og eru því þeir báðir skírðir
eftir föður sínum James.
Semaj Inge var byrjunar-
liðsmaður og fyrirliði Temple-
háskólaliðsins síðasta vetur og
var þá með 6,9 stig, 3,9 fráköst og
3,6 stoðsendingar að meðaltali á
29,0 mínútum í leik. - óój
Iceland Express karla í körfu:
Nýi KR-Kaninn
á sér tvíbura
KEMUR EKKI AFTUR Jason Dourisseau.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI Keppnistímabilið í
kvennakörfunni hefst í kvöld
þegar tveir fyrstu leikirnir í átta
liða úrslitum Powerade-bikarsins
fara fram.
Íslandsmeistarar Hauka taka
þá á móti nýliðum Njarðvík-
ur á Ásvöllum klukkan 19.15 og
á sama tíma koma Valskonur í
heimsókn til Hamars í Hvera-
gerði. Sigurvegararnir úr þess-
um leikjum mætast síðan í
undanúrslitum í næstu viku. Í
hinum tveimur leikjum átta liða
úrslitanna mætast KR og Snæfell
á morgun og Keflavík tekur síðan
á móti Grindavík á sunnudag. - óój
Powerade-bikar kvenna:
Stelpurnar fara
af stað í kvöld
ALLT AÐ BYRJA Ragna Margrét Brynjars-
dóttir í Haukum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON