Fréttablaðið - 25.09.2009, Page 74
42 25. september 2009 FÖSTUDAGUR
FÓTBOLTI Það tók Heiðar Helgu-
son ekki langan tíma að ná áttum
í endur komuleik sínum með Wat-
ford á Vicarage Road-leikvangin-
um um síðustu helgi. Heiðar kom
inn á í hálfleik og átti þátt í fyrsta
marki Watford og skoraði svo sjálf-
ur tvö mörk áður en hann varð að
yfirgefa völlinn vegna meiðsla í 3-
3 jafntefli gegn Leicester í ensku
b-deildinni. Þrátt fyrir að spila í
aðeins 36 mínútur var Heiðar val-
inn maður leiksins af stuðnings-
mönnum Watford.
„Ég vissi nú reyndar ekkert af
þessari kosningu en það er gaman
að því. Ég vona alla vega að stuðn-
ingsmennirnir séu ánægðir með að
fá mig til baka til félagsins og ég
fékk reyndar fínar móttökur frá
þeim á Vicarage Road-leikvangin-
um á laugardaginn.
Ég hefði í raun ekki getað hugs-
að mér betri innkomu en með því
að skora tvö mörk í þessum leik.
En þetta var því miður svona upp
og niður og það var mjög svekkj-
andi að meiðast,“ sagði Heiðar í
samtali við Fréttablaðið í gær.
Svekkjandi tíðindi
Heiðar fór í myndatöku í fyrra-
dag út af meiðslunum og þá kom
í ljós að meiðslin voru mun alvar-
legri en talið var í fyrstu því knatt-
spyrnustjórinn Malky Mackay hjá
Watford var að vonast til þess að
framherjinn yrði klár að nýju fyrir
leikinn gegn Reading um næstu
helgi. Það eru hins vegar engar
líkur á því.
„Ég vissi um leið og ég steig
í löppina að eitthvað var ekki í
lagi. Það var svona eins og nál
væri stungið í kálfann á mér.
Eftir myndatökuna kom í ljós að
ég hafði rifið vöðva í kálfanum á
mér og það þýðir einfaldlega að
ég verð frá næsta mánuðinn eða
svo. Þetta gætu verið svona þrjár
til fimm vikur. Það er augljóslega
mjög leiðinlegt að lenda í þessu
núna eftir að hafa verið þarna bara
í fjóra daga. Svona er fótboltinn
hins vegar stundum og það þýðir
ekkert að vera að væla yfir þessu,“
segir Heiðar.
Heiðar verður að hafa sig hægan
fyrst um sinn í endurhæfingunni
en getur vonandi byrjað að skokka
strax í næstu viku.
„Ég get ekki labbað almenni-
lega eins og staðan er núna en
var reyndar að koma úr sundi og
ég mun halda mér við með því
að synda næstu daga. Ég verð að
passa mig að setja engan þunga á
meiddu löppina en í næstu viku get
ég svo vonandi byrjað að hjóla og
svo skokka og þannig koll af kolli.
Þetta kemur smátt og smátt og
maður verður bara að vera þolin-
móður,“ segir Heiðar.
Nokkur kunnugleg andlit
Heiðar er ánægður með mót-
tökurnar sem hann hefur fengið
hjá Watford síðan hann kom en
leikmannahópurinn er vitanlega
mikið breyttur frá því hann var
hjá félaginu síðast en Heiðar lék
með Watford í fimm og hálft tíma-
bil á árunum 2000-2005.
„Það eru fjórir leikmenn enn hjá
Watford af þeim sem voru þarna
með mér áður. Þá eru Alec Cham-
berlain og Sean Dyche orðnir þjálf-
arar hjá Watford en þeir spiluðu
með mér þarna á sínum tíma og
ég myndi segja að þeir tveir hafi
haft mikið að segja með þá ákvörð-
un mína að snúa aftur til félagsins.
Þeir alla vega auðvelduðu ákvörð-
unina talsvert,“ sagði Heiðar.
Heiðar er á lánssamningi hjá
Watford frá QPR til áramóta og
þá verður farið yfir stöðu mála en
forráðamenn Watford hafa gefið
sterklega í skyn að þeir vilji halda
honum áfram hjá félaginu í það
minnsta út tímabilið. Lokaákvörð-
unin um framhaldið liggur svo
væntanlega hjá Heiðari sjálfum.
Heiðar var að leika sinn 175.
deildarleik fyrir Watford um helg-
ina en hann hefur skorað 57 mörk í
þeim leikjum.
omar@frettabladid.is
Tregablandin endurkoma Heiðars
Heiðar Helguson skoraði tvennu í endurkomuleik sínum fyrir Watford um síðustu helgi eftir fjögurra ára
fjarveru frá félaginu. Dalvíkingurinn meiddist aftur á móti í leiknum og verður frá í um það bil mánuð.
HARÐJAXL Heiðar er nánast í guðtölu hjá stuðningsmönnum Watford, er þekktur fyrir
að gefa ekki tommu eftir og það kunna stuðningsmennirnir vel að meta. Heiðar fékk
því blíðar móttökur í endurkomuleik sínum um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Ensku götublöðin News
of the World og Daily Mail hafa
beðið enska landsliðsþjálfarann
Fabio Capello formlega afsök-
unar á myndum sem birtust af
honum á dögunum.
Á myndunum sást Capello
spranga um á baðströnd ásamt
eiginkonu sinni og þótti landsliðs-
þjálfaranum þær óviðeigandi.
Enska knattspyrnusambandið
fór því í málið að beiðni Capellos
og niðurstaðan varð sú að
umrædd dagblöð báðust afsök-
unar og lofuðu að virða einkalíf
landsliðsþjálfarans í framtíðinni.
Capello fékk það jafnframt í
gegn að dagblöðin myndu borga
þær skaðabætur sem hann átti
að fá, til Sir Bobby Robson-
stofnunar innar, sem safnar pen-
ingum sem notaðir eru til ýmissa
krabbameinsrannsókna á Eng-
landi. - óþ
Landsliðsþjálfari Englands:
Afsökunarbeiðni
frá slúðurblöðum
CAPELLO Er þekktur fyrir að vera harður
í horn að taka. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Enska úrvalsdeildar-
félagið Stoke hefur formlega
beðið Jason Euell, leikmann
Blackpool, afsökunar á hegðun
stuðningsmanns Stoke. Umrædd-
ur stuðningsmaður gerði sig
sekan um kynþáttaníð í garð
Euells meðan á leik Stoke og
Blackpool stóð í enska deildabik-
arnum á þriðjudagskvöld.
„Við þurfum fyrst að bíða þess
að lögreglurannsókn ljúki áður
en við getum sjálfir refsað við-
komandi. Britannia-leikvangur-
inn er fjölskylduvænt umhverfi
og svona hegðun verður auðvitað
ekki liðin,“ segir í yfirlýsingu frá
Stoke. - óþ
Jason Euell hjá Blackpool:
Fórnarlamb
kynþáttahaturs
FÓTBOLTI Varnarmaðurinn Phil
Jagielka hjá Everton lenti í leið-
indaatviki í fyrrakvöld þegar
hann sat heima hjá sér og horfði
á leik Hull og Everton í enska
deildarbikarnum í sjónvarpinu.
Þrír grímuklæddir menn bru-
tust inn á heimili hans í Knuts-
ford í Cheshire á Englandi og
hótuðu honum með hnífi og fengu
hann til þess að afhenda þeim
skartgripi og lyklana að Range
Rover-bifreið. Ekki er vitað hvort
innbrotsþjófarnir hafi haldið að
Jagilka yrði að spila umræddan
leik með Everton en hann hefur
ekkert leikið með Everton á þessu
tímabili vegna meiðsla.
„Sem betur fer meiddist eng-
inn og bíllinn fannst mannlaus
skammt frá heimilinu,“ sagði í
yfirlýsingu frá lögreglu.
Innbrot af þessu tagi til
atvinnumanna í fótbolta
eru ansi tíð í Englandi
en Steven Gerrard
hjá Liverpool og
Robbie Keane
hjá Totten-
ham eru á
meðal þeirra
sem hafa orðið
fyrir barðinu
á óprúttnum
innbrotsþjóf-
um. - óþ
Phil Jagielka hjá Everton:
Hótað með hníf
á heimili sínu
JAGIELKA Lenti í
leiðinlegu atviki.
NORDIC PHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Körfuboltamaðurinn
Jakob Örn Sigurðarson þarf titil
að verja á nýju tímabili en þó
ekki með liði KR þar sem hann
varð Íslandsmeistari í vor held-
ur með sænsku meisturunum í
Sundsvall. Jakob og félagar spila
fyrsta deildarleik tímabilsins á
móti Gothia í kvöld.
„Ég er að verða eldri og var
að leita eftir stað þar sem ég get
spilað í lengri tíma. Mér líst mjög
vel á liðið og bæinn og það getur
alveg verið að ég verði lengur en
þetta tímabil,“ sagði Jakob í við-
tali við staðarblaðið í Sundsvall.
Þetta er sjötta landið sem Jakob
spilar körfubolta í en hann var í
fjögur ár í skóla í Bandaríkjunum
og spilaði síðan sem atvinnumað-
ur í Þýskalandi, á Spáni og í Ung-
verjalandi.
„Margir góðir leikmenn eru
í liðinu en það er erfitt að bera
þetta saman við aðrar deildir sem
ég hef spilað í. Þetta er kannski
líkast Ungverjalandi. Þýska deild-
in var betri, en ég er nú ekki búinn
að sjá öll liðin,“ segir Jakob.
Jakob segir í viðtalinu hafa
farið heim til Íslands síðasta
vetur til að vera með fjölskyldu
og vinum. „Ég vissi að ef ég kæmi
heim þá yrði ég tilbúinn að fara
aftur út og spila í Evrópu í nokkur
ár til viðbótar,“ sagði Jakob. Hann
átti mjög gott tímabil með KR síð-
asta vetur og var með 17,9 stig og
4,9 stoðsendingar að meðaltali í
Iceland Express-deildinni.
„Það er stefnan í vetur að vinna
minn fyrsta titil utan Íslands og
þegar ég lít yfir leikmannahóp-
inn hjá Sundsvall þá tel ég okkur
hafa allt til alls. Við þurfum bara
að vinna í því að verða að liði því
það er mikilvægt að hafa gott and-
rúmsloft og góðan liðsanda.“
Jakob segist vera í nýju hlut-
verki hjá sænska liðinu. „Ég er
annar elsti leikmaður
liðsins, sem er nýtt
fyrir mig. Ég ber
mikla ábyrgð í
þessu liði og hef
nokkra reynslu
frá árum mínum í
atvinnumennskunni.
Við erum með ungt lið,
það hafa allir eitthvað að skila til
liðsins og ég get miðlað af minni
reynslu,“ segir Jakob.
Jakob er ekki eini Íslendingur-
inn í sænsku deildinni því Sig-
urður Ingimundarson þjálfar
lið Solna Vikings og Helgi Már
Magnússon leikur með liðinu.
Solna leikur sinn fyrsta leik á
móti Borås á útivelli. - óój
Jakob Örn Sigurðsson í viðtali við staðarblaðið í Sundsvall fyrir fyrsta leikinn sinn í kvöld:
Ég ber mikla ábyrgð í þessu liði
FÓTBOLTI Stelpurnar í íslenska
19 ára landsliðinu eru komnar
áfram í milliriðli í undankeppni
EM 2010 eftir 5-0 sigur á Rúm-
eníu í lokaleiknum sínum í gær.
Kristín Erna Sigurlásdóttir og
Arna Sif Ásgrímsdóttir skoruðu
báðar tvennu í leiknum og Berg-
lind Björg Þorvaldsdóttir skoraði
fimmta markið.
„Þetta var mjög góður leikur.
Það skipti öllu máli að komast
áfram en við ætluðum að vinna
riðilinn og fengum fullt af færum
til þess í dag. Það fóru bara fimm
inn en það er ágætt í landsleik,“
sagði Ólafur Þór Guðbjörnsson,
þjálfari liðsins.
Sviss vann 4-1 sigur á Portú-
gal á sama tíma í hinum leik
riðilsins og tryggði sér með
því sigur í riðlinum en þar var
eins naumt og hægt var. Liðin
voru jöfn að stigum en Sviss
var með einu marki betri
markatölu. Liðin gerðu
1-1 jafntefli í innbyrðis-
leik sínum.
„Við vorum að
reyna að bæta við
mörkum allan seinni
hálfleikinn. Mörkin
hefðu getað orðið
fleiri en það er alltaf erfitt að
skora þegar pressan er mikil
á að skora mörg mörk,“ sagði
Ólafur og hann var ánægður
með liðið á mótinu.
„Þær stóðu sig geysi-
lega vel en við fengum
ekki mikinn undirbún-
ing fyrir þetta mót.
Miðað við það erum
við mjög sátt,“
segir Ólafur en
riðillinn var mjög
sterkur. „Sviss var
í undanúrslitum
í EM í sumar og
bæði Rúmenía og
Portúgal komust áfram
úr fyrsta riðlinum í fyrra.“
Þórsarinn Arna Sif Ásgríms-
dóttir innsiglaði sigurinn með
tveimur mörkum í uppbótartíma
en hún skoraði á 93. og 95. mínútu.
„Hún setti fyrra markið með skalla
eftir horn og svo komust þær tvær
í gegn og Dagný (Brynjarsdóttir)
renndi boltanum á hana þegar
markmaðurinn kom út á móti og
hún setti hann í tómt markið,“
sagði Ólafur.
Íslensku kvennalandsliðin halda
því áfram að standa sig vel á þessu
ári. „Menn eru greinilega að vinna
gott starf á Íslandi,“ sagði Ólafur
að lokum og það er hægt að taka
undir þau orð. - óój
Stelpurnar í 19 ára landsliðinu unnu 5-0 stórsigur á Rúmeníu og komust áfram í milliriðil í Evrópukeppninni:
Fengu færin til þess að vinna riðilinn
TVENNA Í UPPBÓTAR-
TÍMA Arna Sif Ásgríms-
dóttir.
LYKILMAÐUR
Jakob Örn Sig-
urðarson var
lykilmaður hjá
KR á síðasta
tímabili.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM