Fálkinn


Fálkinn - 14.12.1956, Blaðsíða 48

Fálkinn - 14.12.1956, Blaðsíða 48
44 JÓLABLAÐ FÁLKANS 1956 Else Brems og Stefán íslandi sem Carmen og Don José í „Carrnen" á kgl. leikhúsinu 1942. STEFÁN ÍSLANDI. Frh. af bls. 10. Jjessa dags, að leita hærra og liærra í fágun og fegrun sönglistarinnar. Einu sinni varð mér það á að spyrja iiann að þvi hvaða íslenskt lag lionum þætti vænst um. Svarið sem ég fékk var þetta: „Spurðu margra barna föður hvert af börnunum hans hon- um þyki vænst um! Ef hann svarar því jákvætt er hann annaðhvort ill- menni eða kjúni 1“ Ég féllst á það eftir á, að þetta sé alveg dagsatt. Skúli Skúlason. TÖFRAR JÓLANNA. Frh. af bls. 11. „Er það ekki gaman?“ sagði hann við Óla og brosti. Óli kinkaði kolli og brosti út undir eyru. Honum fannst þetta miklu meira gaman en á jólunum í fyrra. Jólasveinninn lyfti honum og lét liann hengja upp jólaskrautið yfir glugg- unum. Svo fór jólasveinninn út í bil- inn sinn aftur og sótti fleiri jóla- böggla. Hann kom með stóra körfu með alls konar góðgæti í, jólakökur og aðrar kökur. „Skelfing er þetta fallegt,“ sagði Óli og hallaði sér upp að jólasvein- inum. „0, ég veit vel liver þú ert,“ bætti hann hvíslandi við, „ég vissi það undir eins og ég sá þig.“ „Það var gaman!“ svaraði gestur- inn. „En við skulum ekki segja nokkr- um manni frá þvi!“ Og þá áttu þeir leyndarmál saman, og Óli var hreykinn af því. Daginn eftir kom ókunni maðurinn aftur og fór út með Óla og fór í snjó- kast við liann. „Ég hélt ekki að ég mundi nokkurn tíma fá að sjá þig,“ sagði Óli allt í einu. „Var það ekki? — cn ég segi það satt að ég hafði gaman af að hitta l)ig!“ sagði jólasveinninn. „Kanntu við þig að lifa alltaf uppi í fjöllum?" spurði Óli. „Nei, ég er hundleiður á því,“ svar- aði hinn. „Þar er ekkert nema snjór og klaki, og engir nágrannar, sem maður getur heimsótt. Ég finn það núna, að ég liefi farið mikils á mis i einverunni." „En hvers vegna geturðu þá ckki verið hjá okkur?“ spurði Óli og tók i höndina á manninum. „Ja, það gæti nú verið gaman,“ svaraði hinn. Nú kom mamma fram í dyrnar og bað þá að koma inn og fá kaffisopa. Óla fannst mamma hans vera svo fal- leg og glaðleg í dag. Ilminn af gæsa- steikinni lagði um allt liúsið, því að gæsin var komin í bakaraofninn, og það var hlýtt og notalegt i stofunni. Þegar þau sátu við jólaborðið nokkrum klukkutímum síðar, lék Óli á als oddi. Það var svo gaman. Gæsa- steikin var svo góð — og ábætirinn á eftir! Og á miðju borði stóð stór skál með appelsínum, eplum, vinberj- um og jólagóðgæti! Óli taldi víst, að jólasveinninn hefði haft þetta allt með sér. Nú lyfti jólasveinninn glasinu og skálaði við mömmu. Svo var það ákveðið að Óli skyldi leggja sig og livíla sig dálitla stund — hann fékk með sér leikborðið sitt og bangsann, og mamma hans lofaði að kalla á hann þegar þau færu að borða jólatertuna. Það var jólasveinn- inn sjálfur, sem kom upp og sótti hann, þegar teið var komið á borðið. Jólasveinninn setti Óla á linéð á sér og sagði: „Manstu að við vorum að tala um, að ég hætti að vera uppi á fjöllum? Þú mátt ekki segja neinum frá þvi — en ég er að hugsa um að gera það. Mér dettur í hug að þú hefðir kannske gaman af að hafa jólasveininn alltaf hjá þér?“ Jú, það líkaði Óla vel. En nú kom mamma inn með teið, og Óli fékk nóg að hugsa, því að jóla- tertan var góð. „Þú átt að óska þér einhvers þcgar þú borðar jólatertuna á jólakvöldið,“ sagði mamma hans og hló. Það var LUX heldur góðum fatnaði sem nýjum Notið ávállt LUX SPÆNI X-LX 691-814 þegar þér þvoið viðkvæman vefnað. eins og viðhorfið til lífsins væri ger- breytt. Óli tók munnfylli sína og sagði svo: „Ég er búinn að óska mér.“ Og jólasveinninn sagði: „Og ég lika“ og leit hlæjandi til Óla. Hann vissi vel, að þeir höfðu báðir óskað þess sama — að jólasveinninn færi aldrei aftur. BÆNHÚSIÐ. Framh. af bls. 15 fornu kirkjugripa lenti seinna í ræn- ir.gjaliöndum. Fjáröflun til þessarar nýju kirkju hefir hafist með samskotum og fisk- gjöfum, eins og síðar, er Landakirkja var endurreist, þó á öðrum stað, eftir að Tyrkir brenndu hana til ösku i Tyrkjaráninu 1627. Prestarnir höfðu mátt leggja fram ríflegt tillag til kirkjubyggingarinnar 1573, í eitt skipti fyrir öll, sem endur- gjald fyrir kirkjutiundina, er þeir síð- ar héldu óskertri. Nam tillag beggja prestanna 3 lestum fiskjar (harð- fisks) eða andvirði þeirra. Tíu hundruð tólfræð gerðu eina fisklest eða þrjátíu vættir. Þótti hart að prest- unum gengið, er þeir sátu í tekjurýr- um brauðum. Kirkjan hafði sem engar tekjur eftir missi kirkjutiundarinnar aðrar en þær, sem lienni bárust í frjálsum gjöfum. Hér bætti úr sam- þykktin sem Eyjamenn gerðu 1606 um greiðslu kirkjufiskjarins. Messað hefir verið i bænhúsunum á Ofanleiti og Kirkjubæ næstu 4—5 árin eftir Tyrkjaránið eða þar til reist var hin nýja Landakirkja, all- langt frá Fornu-Löndum og stóð þar sem nú kallast „Gamli kirkjugarður“ í núverandi Landakirkjugarði. í þess- um hluta kirkjugarðsins var séra Ól- afur Egilsson grafinn. Stendur leg- steinn á leiði hans með áletrun um dánardaginn 1. mars 1639. Minnisvarðar beggja prestanna í Vestmannaeyjum, sem komu við sögu í Tyrkjaráninu, liafa þannig varð- veist. Ekki þykir ólíklega tilgetið, að Eyjamenn hafi sjálfir ásamt umboðs- manni og kaupmanni, látið reisa þá i virðingarskyni við hina merku látnu klerka. Þarna getur einnig hafa átt hlut að máli, Jón Vestmann sonur séra Jóns píslarvotts. Vestmann var hertckinn sem kunnugt er og dvaldist í Algier um 20 ár, en komst síðan til Kaupmannahafnar og var búsettur þar. Frá Danmörku munu legstein- arnir hafa verið sendir til Vest- mannaeyja. * Séra Jón Þorsteinsson var langafi Jóns biskups Vídalín. (Saga Vestm. Safn t. s. ísl. V.). FÁTÆKA STÚLKAN. Frh. af bls. 27. hafði lesið tákn kærleikans á enni ■hennar. — Segðu mér, sagði prinsinn, áttu hvitan kjól? — Já, svaraði Geirþrúður, en ég timi varla að fara í liann. Mannna saumaði hann handa mér rétt áður en hún dó. — Gleymdu ekki, barnið mitt, að varðveita hinn hreina, hvíta lit sakleysisins, sagði hún, þegar lnin gaf mér kjólinn. — Þá ert þú einmitt sú, sem ég er að leita að, sagði prinsinn. Hann sagði Geirþrúði hver hann var og hvert erindi hans væri, ásamt þeim skilyrðum, sem faðir hans hafði sett i sambandi við brúði sonarins. — Ég get ekki látið afa verða hér BETLEHEM. Framhald af bls. 13. leiðin upp i aðalturn kirkjunnar, þar sem jólaklukkurnar eru. Þar sést vel yfir Betlehemsborg og vellina og þaðan berst hljómur jólaklukknanna út um allan heim á öldum Ijósvakans, þegar jólaklukkurnar i Betlehem hringja inn jólahátíðina hjá kristnu fólki um lieim allan. Það er orðið kvöldsett á Betlehems- völlum, langir skuggar Betlehems- borgar leggjast yfir vellina í roða kvöldsólarinnar. Þegar lagt er af stað til Jerúsalem eru síðustu geislar kvöldsólarinnar að hverfa af efstu bæðum Judeueyðimerkurinnar, en fæðingarstjarna frelsarans stendur uppljómuð á turni kirkjunnar, sem byggð var yfir jötunni og er þeim leiðarljós, sem koma vilja til fundar við frelsara sinn hvort heldur er á Betlehemsvöllum, þar sem fæðingar- stjarnan lýsir enn, eins og hún gerði á dögum vitringanna eða á öðrum stöðum á þessari jörð, þar sem menn biða alltaf með eftirvæntingu og fögn- uði í hjarta eftir þvi að lieyra jóla- klukkurnar frá Betlehem boða komu jólahelgarinnar. * JÓL Á IÍVISTHERBERGINU. Framh. af bls. 17 Þegar Doug kom inn varð hann liissa er hann sá að Jane og Melinda voru að tæma úr sparigrisnum á borðið. Þær hlógu og þær töldu — silfur- og koparpeninga. „Doug!“ kallaði Jane. „Nú ætlum við út og kaupa skrítnustu jólagjaf- irnar sem við finnum. Ég hefi fundið aftur trúna á framtíðina og rósrauðu gleraugun mín. Og nú ætla ég aldrei að taka þau af mér, því að þegar ég ’horfi gegnum þau, er það beinlínis gaman að vera fátæk með þér.“ Skömmu síðar heyrði Sonja að þau fóru út á vota göluna. Nú klippti hún silfurkórónuna á brúðuna, sem átti að verða tilbúin er þau kæmu aftur. Og uppi í kvistlierberginu stóð jólatréð og dreymdi um greniskóg, þyt í laufi og þögul snjóflæmi. Bjarm- inn frá ofninum speglaðist i mislitu glitinu. Það var aðeins toppurinn, sem enn var auður — hann beið eftir álfabrúðunni, sem átti að verða fal- legri en snædrotningin sjálf — i knipplingakjól og með silfurkórónu. Á meðal mannsævi slær hjartað kringum 3.000.000.000 sinnum í þeim, sem vinna hæga vinnu, en 4 milljard sinnum í þeim, sem vinna stritvinnu, einan eftir, svaraði Geirþrúður frá sér numin. — Hann á að búa i höllinni alla ævi, svo liann líður enga neyð. En viltu verða prinsessan mín? — Hvort ég vil, svaraði Geirþrúður með tárin í augunum, — ég get ekki óskað mér meiri hamingju! Daginn eftir var ljómandi heiðskýrt veður. Prinsinn var hamingjusamur er hann lagði af stað lieimleiðis. Geir- þrúður sat fyrir framan hann i hnakknum. Það er sagt, að gamli konungurinn væri mjög ánægður með val sonar síns af prinsessu. Prinsinn Góði var siðan krýndur til konungs. Og hann og drottning hans stjórnuðu ríki kærleikans og hreinleikans í fjölda mörg ár. *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.