Fálkinn - 21.03.1962, Síða 4
4
*o
Kvenfólkið hefur á undanförnum árum
Kvensótari tekið sér fyrir hendur í æ ríkari mæli
störf, sem áður voru ekki beint talin
við þeirra hæfi. Enn þá eru þó nokkrar atvinnugreinar eftir, en
þeim fækkar óðum. Stúlkan hér á myndinni er sextán ára gömul,
heitir Gun Ludvigsson og er búsett í Svíþjóð. Hún er eini kven-
sótarinn á Norðurlöndum. Þess ber þó að geta, að hún kann illa
við starfið, en er neydd til þess að stunda það af föður sínum,
sem sjálfur er sótari.
Orðið spurning er á
Spurningamerki latínu Quæstio, og þeg-
ar rithöfundar höfðu
skrifað beina spurningu í texta, skrifuðu þeir þetta
orð á eftir. Þeim sem skrifuðu handritin síðar
fannst stundum að þetta Quæstio tæki of mikið
rúm. Þess vegna létu þeir nægja að skrifa fyrsta
og síðasta stafinn í orðinu hvern ofan á öðrum.
Þessi háttur breyttist síðan smátt og smátt og loks
varð hann að hinu alkunna spurningamerki, sem
nú er víðast hvar notað: ?.
Kvikmyndagagnrýnandi stórblaðsins
iviyndir ársins New York Herald Tribune, Paul V.
Beckley, sem nýtur mikils álits, hefur
valið tíu beztu kvikmyndir ársins 1961. Listinn hljóðar svo:
1. Ljúfa líf (ítalía). 2. West Side Story (Bandaríkin). 3. Laugar-
dagskvöld og sunnudagsmorgun (England). 4. Dómurinn í Núrnberg
(Bandaríkin). 5. Tvær konur (ítalía). 6. Aska og demantar (Pól-
land). 7. Utangarðsfólk (Bandaríkin). 8. Brúin (Vestur-Þýzkaland).
9. Sannleikurinn (Frakkland). 10. Kraftaverk á hverju strái (Banda-
ríkin). — Nokkrar þessara mynda hafa þegar verið sýndar hér á
landi og hinar koma eflaust áður en langt um líður.
Kaldhæðni lífsins læt-
Kaldhæðni ur ekki að sér hæða,
eins og tvö eftirfarandi
smádæmi sýna: Föngum í ríkisfangelsi Washington
var nýlega boðið í veizlu sem laun fyrir að enginn
þeirra hafði gert tilraun til að strjúka síðastliðið
ár. Daginn eftir fundust fullgerð jarðgöng undir
múrinn, sem fangarnir höfðu unnið að í fleiri mán-
uði. — Bandaríkjamaður nokkur varð svo óttasleg-
inn vegna stöðugt vaxandi slysahættu í umferðinni
um helgar, að hann ákvað að dveljast heiman frá
laugardegi til mánudags. Samt fór svo, að hann
hafnaði á sjúkrahúsi á sunnudeginum. Flugvél, sem
flaug yfir húsið hans, missti skrúfu, og féll hún
beint í höfuðið á honum, þar sem hann var að slá
blettinn sinn í mesta sakleysi.
Þér vitið það ef
til vill, að byrjað er
að sýna kvikmyndir
í stóru bandarísku
farþegaþotunum. .—
Þetta er gert til
þess að farþegum
leiðist ekki ferðin
Þegar Bob Hope
heyrði, að ein kvikmynda hans hafði verið
sýnd í einni slíkri þotu, klappaði hann saman
lófunum af hrifningu:
— Ágætt, sagði hann, þá er engin hætta
á því lengur, að áhorfendur fari fyrr en
Hinn frægi hers-
höfðingi Frakka,
Juin marskálkur,
hefur keypt sér
nýjan bústað. Og
bess vegna er hann
nábúi þeirrar konu,
sem er að verða
frægari en hann
bæði heima fyrir og erlendis. Þessi kona er
Brigitte Bardot.
Þegar hún heyrði, að marskálkurinn væri
orðinn næsti nágranni hennar, sagði hún
hrifin: — Marskálkur sem nágranni, en hvað
það er dásamlegt. Þá hlýt ég að verða -vernd-
uð gegn plastsprengjum í framtíðinni.
Pablo Picasso sat
og rabbaði við
bandarískan her-
mann á vínbar
einum í París. —
Eftir nokkra drykki,
sagði hermaðurinn
honum, að hann
þyldi alls ekki að
sjá þessi nýtýzku
málverk. Þau nálg-
uðust hvergi raun-
veruleikann. Picas-
so svaraði ekki strax. Stuttu seinna sýndi
hermaðurinn honum mynd af vinkonu sinni.
Picasso greip myndina og bar hana upp
að ljósinu. — Hamingjan góða, sagði hann, er
hún ekki stærri í raun og veru.
★
Hinn þekkti kvikmyndaleikari, Alan Ladd
er skynsamur faðir. Davíð sonur hans hefur
þegar sýnt það, að hann er töluverðum hæfi-
leikum gæddur sem kvikmyndaleikari, en
Alan hefur skipað svo fyrir, að hann megi
aðeins leika, þegar hann ætti frí.
— Þú getur verið leikari alla ævi, en eitt
er víst, að þú getur ekki gengið í skóla'alla
ævi.
Og Davíð verður að beygja sig fyrir föður
sínum, en kvikmyndaframleiðandinn Sam
Goldwyn er ekkert ánægður með þetta. Hann
hafði nefnilega ráðið strákinn til þess að leika
í myndinni: Merry — Go — Round og hafði
þegar undirbúið myndatökuna. En nú verður
hann að bíða þangað til 1963, þegar stráksi
mun losna úr skóla.
myndinni er lokið.
4 FÁLKINN