Fálkinn


Fálkinn - 21.03.1962, Blaðsíða 27

Fálkinn - 21.03.1962, Blaðsíða 27
Jiirgen fylgdi fúslega þessum nýja vini sínum og verndara út í eldhúsið. — Hæ, Minna. Hérna er nýr lítill vinur okkar, sagði Wolfgang í léttum tón. — Viltu ekki vera svo góð og ann- ast um hann augnablik? Ég held raunar að hann sé glorsoltinn. Gefðu honum nú eitthvað gott að borða. Síðan yfirgaf hann eldhúsið og fór aftur til Dorisar, sem beið hans óþolin- móð í borðstofunni. — Jæja, kæra systir. Hvað liggur þér nú eiginlega svona óskaplega mikið á hjarta? Hún sagði honum í fáum orðum, hvað gerzt hafði. — Ef Pedro ætti í raun og veru að fara til Mexicó aftur fyrir fullt og allt, þá hlyti hann að hafa sagt mér það. Ég hef lofað að hitta hann klukkan hálf sex, en þá kemur mamma og heimt- ar að ég snæði kvöldverð með föður hans. Wolfgang glotti. — Þú hefur allt of miklar áhyggjur út af smámununum, sagði hann drýg- indalega. — En það var rétt að koma til mín, stelpa góð. Það stendur nefnilega þannig á hjá mér í kvöld, að ég vildi mjög gjarna fara út og skemmta mér. Ég hef þér að segja nýlega hitt stúlku, sem er girnilegri en allir fjársjóðir ver- aldar. Nú jæja. Þú munt sennilega fá að sjá hana. Við komum með ykkur í Bebenhausen! Doris hrópaði af gleði og kastaði sér utan um hálsinn á bróður sínum. —• Þú ert hreinasta afbragð, Wolfi. Þú ert eini maðurinn sem skilur mig. Wolfgang ýtti systur sinni frá sér. — Vertu nú ekki að ýkja, ljúfan. Ég hef alltaf verið verndari hinna fátæku og þeirra sem mega sín lítils í tilver- unni. Ég hringi þá og panta borð í Beb- enhausen. Hann leit á klukkuna. — En við verðum að hafa hraðan á. Við eigum eftir að skipta um föt og hvaðeina. Flýttu þér nú! — Og ef ég mæti mömmu, spurði Doris áhyggjufull. Wolfgang hló. — Láttu eins og ekkert hafi ískorizt. Við skulum bíða með allar útskýringar þangað til á morgun. Þegar Doris hljóp út úr herberginu, heyrði hún, að Wolfgang kallaði á eftir henni: — En í guðanna bænum farðu ekki í þennan græna kjól þinn. Grænn litur fer svo hroðalega í taugarnar á mér .. . Það leið klukkutími frá því að Doris og Wolfgang fóru, þar til Bettina upp- götvaði. að þau voru ekki í húsinu. Hún gekk upp í herbergið til Alberts, sem enn þá sat og las. — Veizt þú hvar Wolfgang og Doris eru, spurði hún. Albert hristi höfuðið. Síðan lagði hann frá sér pípuna og leit á móður sína. — Hvað er að, mamma? Þú ert eitt- hvað svo áhyggjufull á svipinn. — Er ég það? — fX’lkinn 27 Pedro? Eins og svo maergir höfðu gert í hennar aðstöðu að minnsta kosti í öll- um skáldsögunum, sem hún hafði lesið. Einhver gekk blístrandi upp stigann fyrir utan herbergi hennar. Wolfgang! Doris reif dyrnar upp á gátt og hljóp til hans. Hún tók í handlegginn á honurn. — Wolfgang! Ég þarf að tala við þig um mjög áríðandi mál. Nei, ekki hérna. Getum við ekki farið inn í borðstofuna. Ég vil ekki hitta mömmu hérna . .. Wolfgang var hinn blíðasti og kátasti. Hann tók í hönd systur sinnar og dró hana með sér. En þegar þau opnuðu dyrnar á borðstofunni, sem hafði verið ónotuð, síðan Julian kvæntist, stönzuðu þau bæði og stóðu undrandi á þröskuld- inum um stund. Við annan enda borðs- ins sat lítill drengur og horfði á þau með tárin í augunum. Fyrir framan hann lá pappírsörk og í annarri hendi hélt hann á blýantsstubb. — Hvað í ósköpunum ert þú að gera hér, sagði Wolfgang. þegar hann hafði náð sér eftir undrunina. — Og hver ert þú eiginlega? Hann dró Doris með sér inn í her- bergið. — Ég á heima í þessu húsi, sagði snáð- inn hikandi og hræddur. — Mamma mín er þarna uppi. En maðurinn sem æpir á mömmu og mig og vill að ég kalli sig pabba . . . Wolfgang brosti hvetjandi til litla drengsins. — Hvað heitir þú? — Jurgen Holthuyes ... Wolfgang gekk til hans og klappaði honum á kollinn. — Það er fallegt nafn. Ég heiti nú bara Wolfi, skal ég segja þér. Þú þarft ekki að vera hræddur við mig. Hann skoðaði það sem snáðinn hafði párað á pappírinn. — Þarna hefurðu aldeilis teiknað fínt, maður, sagði hann brosandi. Doris varð óþolinmóð. Wolfgang brosti aftur til drengsins. — Þarna sérðu, Júrgen Þú skalt læra af þessu. Kvenfólkið lætur okkur karl- mennina aldrei í friði! Hann lyfti. drengnum upp af stólnum og tók í hönd hans. — Komdu, karlinn! Við skulum fara til hennar M'innu. Þú skalt ekki sitja hérna aleinn.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.