Fálkinn - 21.03.1962, Síða 10
ff
er ósköp venjuleg í útliti
• • •
— Þá sagði ég bara „nei takk“, —
og eí' mig langaði í mat, fór ég í bió
eða leikhús í staðinn fyrir að borða.
Þetta tók eina þrjá mánuði. Ég
hreyfi mig heldur elckert í Holly-
wood, héma heima átti ég hund sem
ég þurfti að viðra, og stundum fór
ég í strætó, — en ég hef aldrei farið
í strætó í Hollywood. Þar eiga allir
bíl. . . .
— En þú hefur nóg að gera?
Já, alla daga. 1 Hollywood er
um að gera að þekkja sem flesta og
hafa sem mest sambönd. En það tek-
ur sinn tíma, og það er erfitt að vera
alltaf tilbúin að gera, hvað sem vera
skal. Ég geri allt, sem er nógu vel
borgað og mér finnst nógu gott. En
samkeppnin er ægileg, get ég sagt
þér. Stundum eru 500 umsækjendur
að sækja um það sama, og oft hef ég
verið ein af tíu eða jafnvei önnur af
tveim og ekki fengið starfið. Það tek-
ur á taugamar. Rétt áður en ég kom
núna heim, keppti ég um að fá að
auglýsa sápu. Við áttum að vera á
skautum og ég hefði orðið hlutskörp-
ust, — ef ein liefði ekki verið
skautadrottning! —■ Hef ég sagt þér,
hvernig stóð á því að ég hyrjaði að
reykja? — Það var auglýst eftir
stúlku til að auglýsa sigarettur. Ég
fór, og það vom mörg hundruð stúlk-
ur, sem sóttu um þetta. Ég plataði
svolitið í viðtalinu, — sagðist vera
alvön að reykja, — en í rauninni
hafði ég aldrei reykt ofan í mig. Mér
var sagt að koma til reynslu daginn
efth’, — og ég fór beint heim, settist
við að reykja og hætti ekki fyrr en
ég gat reykt ofan í mig. Mig sveið i
hálsinn og mér var óglatt, en ég fékk
vinnuna.... Pelsinn minn fékk ég
ódýrt af því að ég módelleraði fyrir
þá í einni finustu pelsabúðinni i
Beverley Hill og ég auglýsti cadill-
•aca....
— En elsku Sirrý min, finnst þér
þetta borga sig?
— Já, þvi ekki það? Ekki vildum
við hætta í 5. bekk í menntaskóla.
Eins vil ég ekki heldur hætta við
háfnað verk. Ég hef engan áhuga á
að gifta mig strax.
— Éinnst þér þá „stjörnurnar“
hamingjusamari en annað fólk?
— Hamingjusamari! Nei, það held
ég ekki. En það er upp og ofan....
— Nei, t.d. Tuesday Wild, hún er nú
á toppinum núna, — en ekki finnst
mér hún neitt skemmtilega glöð i
boðum. . . . En einkalífið er allt öðru-
vísi en kvikmyndirnar. . . .
— Hvers vegna ferðu ekki út í
leiklist hér lieima?
— Ég hef meiri áhuga á kvik-
myndaleik, — og ég fór nú þarna í
þannig skóla.... Auðvitað elska ég
mitt land og alla mína vini, en hvers