Fálkinn - 11.07.1962, Side 4
séð & heyrt
í Frakklandi eru barnflestu fjölskyldurnar verðlaunaðar. Haddad
fjölskyldan er ein þeirra, sem hefur orðið verðlaunanna aðnjótandi.
Verðlaunin nema hér um bil 8 þúsimd íslenzkum krónum. Á mynd-
inni sézt hin hreykna fjölskylda og heldur faðirinn á yngsta barninu.
Öll börnin, nema eitt Emile, sem er 10 ára, eru á myndinni, en hann
faldi sig, þegar hann sá ljósmyndarann.
Góður siður.
Oftast eru Ástralíunegrar álitnir vera frum-
stæðasta þjóð í víðri veröld, en samt sem áður
hafa þeir fundið upp ráð gegn böli nokkru, sem
er mjög algengt með siðmenntuðum þjóðum.
Ráð þetta er siður sá, að tengdamóðir og tengda-
sonur mega ekki tala saman. Við verðum að
þæta því hér við, svo að enginn verði nú fyrir
vonbrigðum, að það er óhemju erfitt að vera
tekinn upp í þjóðflokk Ástralíunegra.
Við taugaveiklun.
Hið bezta sem taugaveikluð kona
getur gert, er að hnoða deig, segir þýzk-
ur sálfræðingur, Maria Giwjorra, en
hún er lærð frá háskólanum í Heidel-
berg. Hún heldur því fram, að konan
geti bezt látið gremju sína og ergelsi í
ljós við deigið og er hún hafi hnoðað
það, líði henni mim betur en áður.
Eilíf æska?
Doktor einn í Wisconsin, Johan Bjorksten, hefur
tilkynnt eftir að hafa rannsakað það í fjölda mörg
ár, að möguleikinn ftil þess að finna orsök þess,
að maðurinn eldist, sé næstum því eins mikill og sá
möguleiki að finna pensilínið fyrir 50 árum.
Hjálp í nauðum.
Óttaslegin húsmóðir í Kanada hringdi til
lögreglunnar og bað um hjálp. Það hafði
nefnilega komizt þefdýr niður í kjallarann.
— Reynið, sagði lögreglan, að leggja nokkr-
ar brauðsneiðar frá kjallaradyrunum að
garðshliðinu.
En fimm mínútum síðar var lögreglan enn
hringd upp og nú virtist konan hræddari en
áður: — Ég fór að eins og þér sögðuð, hrópaði
hún. Og nú eru komin tvö þefdýr í kjallarann.
4 FÁLKINN
Bette Davis er ekki
af baki dottin, þótt
hún sé komin yfir
fimmtugt. Hún er
fjórgift og þegar hún
var spurð um, hvort
hún ætlaði að gifta
sig aftur svaraði hún:
-— Ég gifti mig
aðeins manni, sem
ætti 15 milljónir dollara og væri viljiigur til
þess að láta mér eftir helminginn og jafn-
framt því, væri tryggt, að hann lifði ekki
nema ár.
Gárungarnir segja, að þetta svar gefi
Alfred Hitchcock efni í nýja hrollvekju.
★
Olíukóngarnir eru
enn nokkurs megn-
andi. Þið ættuð bara
að líta á Saud kóng í
Suður-Arabíu. Fyrir
nokkru fór hann til
Bandaríkjanna í nauð
synlegum erindagjörð
um. Auðvitað fékk
hann sér herbergi á Sheraton Plaza hóteli í
Boston.
★
Það var samt ekki nógu glæsilegt fyrir
hans smekk, svo að hann lét breyta herbergj-
unum .Var allt saman fóðrað í gulli og hvítum
litum.
Reyndar var kóngur bara hæverskur, hann
hafði ekki nema fjórar konur með sér til
landsins, en í stað hinna var hann umkringdur
af ráðgjöfum og þjónum. Hann keypti aðeins
sex Cadillac bíla í þessari ferð, svo að menn
hans þyrftu ekki að fara með strætisvagni.
í bókinni Notes et
Maximes eru ýmsar
skemmtilegar klausur
að finna. Bók þessi er
eftir Edouard Herriots.
Eitt sinn hitti Edouard
Herriot Albert Ein-
stein í London og tóku
þessir lærðu menn tal
saman. Að sjálfsögðu
töluðu þeir um háfleyg efni og í miðjum sam-
ræðum segir Einstein brosandi: — Kæri vin-
ur, við skulum ekki gleyma, að jafnvel guð
almáttugur, getur stundum komið fram á
smoking.
★
Þegar menn eru
spurðir um álit sitt
á Frakklandsfor-
seta, de Gaulle hers-
höfðingja, eiga
spyrjendur í erfið-
leikum með að
greina hvort svarið
er gaman eða al-
vara.
Þannig var til dæmis Paul Reynaud, hinn
gamli íhaldssami stjórnmálamaður, spurður:
— Við hvaða mann sögunnar vilduð þér líkja
de Gaulle?
Svarið kom leiftursnöggt:
— Við hann sjálfan.