Fálkinn - 11.07.1962, Page 7
Langt nef.
Kæri Fálki. — Ég er í
alveg hræðilegum vandræð-
um. Þannig er mál með vexti,
að ég er með svo stórt og
rautt nef, að allir, sem mæta
mér, glápa svo á mig, að ég
dauðskammast mín. Geturðu
ekki gefið mér eitthvað gott
ráð, svo að beri ekki svona
mikið á þessu. Með fyrirfram
þakklæti fyrir gott svar.
Einn nefstór.
Svar:
ÞaS er engin shömm aö hafa
stórt og rautt nef, ef menn vita
jafnlangt nefi sínu.
Athugasemd.
í 23. tbl. þessa árgangs
birtið þið myndir og grein
um stúlkur og erlenda sjóliða.
Vegna þess að landanum
þykir ætíð skömm að því að
íslenzkar stúlkur séu með
erlendum dátum, langar mig
til þess að taka fram eftir-
farandi. Stúlku þeirri, sem
myndin er af á forsíðu, var
bjargað af mér undan þessiun
frönsku sjóliðum, og enn-
fremur stúlku þeirri, sem
myndin er af á bls. 18. Ég
tók þær upp í fyrir framan
Trésmiðjuna Víði og ók þeim
heim til sín. Þessar stúlkur
hafa því síður en svo verið
með frönskum sjóliðum þetta
kvöld, sem þeir voru í landi.
Virðingarfyllst,
A.
Gamansögur.
—Fyrir nokkru birtist hér
í pósthólfinu bréf, þar sem
óskað var eftir fleiri gaman-
sögum. Síðan þá hef ég reynt
að finna gamansögu, en enga
fundið enn þá, því miður. Ég
tek því undir með þessum
bréfritara og óska eftir
gamansögum.------------
Jói.
Svar:
Við höfum birt oft gaman-
sögur og nolclcrum sinnum eftir
aö fietta bréf birtist. Þaö viröist
sem svo, aö Jói hafi ekki nóga
kýmnigáfu.
Úrklippusafnið.
-----Um daginn sendi ég
ykkur úrklippu og skömmu
seinna birtist hún í blaðinu
en ekki undir mínu nafni. Ég
fékk auðvitað ekki blaðið sent
heim, en nú sendi ég ykkur
aðra og vonast til þess að fá
ykkar blað sent heim, þegar
hún birtist.
Með þakklæti,
L.
Svar:
Viö höfum þaö fyrir venju,
aö senda þeim manni blaöið,
sem sendir okkur fyrstu úrklipp-
'Soíia. ÞaÖ er oft, sem tugir af
sömu úrklippunni berast og
veröur því aö hafa þessa reglu.
Fimm mínútur um furðuleg
fyrirbæri.
Heiðruðu herrar. — Fyrir
nokkru keypti ég ykkur ágæta
blað. Tók ég þá eftir nýjum
þætti í blaðinu. Fjallaði hann
um furðuleg fyrirbæri. Veitti
ég því athygli, að allar frá-
sagnirnar voru erlendar. Mér
datt svona í hug, hvort þið
vilduð ekki íslenzkar frásagn-
ir um þetta efni?
L.
Svar:
ViS tökum á móti sliku efni
með þökkum og grei&um 100
krónur fyrir vélritaða síðu.
Við viljum ennfremur benda
fólki á að senda okkur frá-
sagnir af dulrœnum atburðum.
Samvizkusamir dyraverðir.
---------Það var hérna unt
kvöldið, að ég brá mér á eitt
vínveitingahúsið hér í bæ. Ég
hef oft farið á slíka staði og
fengið mér einn, en aldrei hef
ég verið móðgaður eins og á
þessum stað. Þegar ég ætlaði
inn, var heimtað af mér ald-
ursskírteini og hef ég þó full-
an rétt til að sækja þessi hús,
bæði sökum aldurs og þroska.
Ég veit ekki betur en mönn-
um, sem orðnir eru 16 ára sé
heimill aðgangur að þessum
húsum, enda þótt þeir megi
ekki víns neyta inni á þessum
stöðum. Mér finnst, að þjón-
arnir eigi að ganga úr skugga
um aldur gests, áður en þeir
selja honum vín, en ekki
dyravörðurinn. Það eru
margir, sem ekki eru orðnir
21 árs og sækja þessi hús
með félögum sínum, er eldri
eru og það er helvíti hart, ef
húsin taka upp á því að meina
þessum mönnum aðgang, af
því að þau geta ekki selt
þeim vín.
T. G.
Viö erum sama sinnis.
FALKINN
7