Fálkinn - 11.07.1962, Side 17
Hún hefur í ýmsum hlutum veraldarinnar aðstoðað fimm
hershöfðingja, meðal annars sem einkaritari og bílstjóri.
í Marokko kenndi hún flug. Seinna útbjó hún flugvél, sem
var búin skíðum í stað hjóla og gat þess vegna lent á snjó,
is eða sandi. Hún hefur samanlagt ferðast umhverfis jörðina
oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. I Ameríku ferðaðist
hún á tveimur árum 130.000 kílómetra ■— eða um það bil
200 kílómetra á dag — og skipti stöðugt um farartæki.
Það er næsta ótrúlegt, að kona skuli hafa getað gert allt
þetta á stuttri mannsævi. Og ekki verður undrunin minni,
þegar það kemur í ljós, að þrátt fyrir allar þær framkvæmdir
og hetjudáðir, sem getið hefur verið stuttlega hér að framan,
hefur Marie Marvingt unnizt tími til að þroska og mennta
sjálfa sig stöðugt. Hún hefur lagt stund á eftirfarandi náms-
greinar: læknisfræði, sálfræði, stjörnufræði, leiklist, ballett,
höggmyndalist, málaralist ásamt matreiðslu, rithandarfræði
og lófalestri. Auk þess talar hún fjögur tungumál og espe-
rantó að auki, hefur skrifað ótalmargar greinar og ritgerðir
um flug og síðast en ekki sízt verðlaunasmásögur og Ijóð.
Nú er Marie Marvingt orðin rúmlega áttræð, en samt er
hún enn þá ung í anda og full af ævintýraþrá. Rithönd henn-
ar er enn örugg og þráðbein, og enda þótt hún -—- ekki sízt
eftir að hafa gefið út hinar vinsælu bækur sínar --- hefði
með góðu móti ráð á að eiga lúxusbifreið, ekur hún enn þá á
reiðhjólinu sínu, þegar hún þarf að bregða sér eitthvað frá
gistihúsinu þar sem hún býr. Hún varð fyrir barðinu á hinni
hættulegu umferð Parísarborgar eitt sinn og var þá ætlun
manna, að hún mundi láta hjólhestinn liggja óhreyfðan um
skeið. En slíkt lét Marie Marvingt ekki henda sig. Jafnskjótt
sem hún var alheil orðin var það hennar fyrsta verk að
stíga á hjólhestinn sinn!
Á lúxushótelinu hefur hún komið sér vel fyrir og hefur
í hyggju að dveljast þar, þar til hún yfirgefur þennan heim
og verður grafin á kostnað ríkisins — eins og allir aðrir
riddarar af heiðursfylkingunni.
Það er gistihúsinu að sjálfsögðu hinn mesti heiður, að þessi
heimsfræga kona skuli vilja eyða síðustu dögum ævi sinnar
undir þess þaki. En Marie Marvingt er engan veginn auðveld-
ur gestur. Hún fer allt í einu í ferðalög án þess að láta
nokkurn vita af, og kemur aftur án þess að gera boð á undan
sér. Stundum á hún það til að taka sjálf til höndunum og'
fleygja á dyr óæskilegum gestum niður teppalagðar tröppur
gistihússins. Og stundum á hún það til að bregða sér í líki
10 ára gamals prakkara og taka að erta og spila með dyra-
vörðinn eða einhvern annan starfsmann. Þessu hefur gamla
konan mikla ánægju af.
Eftir þær upplýsingar sem skráðar voru um Marie
Marvingt í möppunni í háborg heiðursfylkingarinnar frönsku
og öðrum heimildum, fer ekki á milli mála að hér er á
ferðinni ótrúlegur persónuleiki. Menn hljóta að spyrja sjálfan
sig eftir þessa stuttu lýsingu á Marie Marvingt, hvernig ein
manneskja geti í rauninni komið öllu þessu í verk og hvernig
hún geti öðlast slíka reynslu og þekkingu.
Það má láta sér detta ýmislegt í hug í þessu sambandi.
Faðir hennar átti sér til dæmis þá ósk heitasta að eignast
son, og þess vegna kenndi hann einkadóttur sinni íþróttir,
sem yfirleitt eru karlmönnum einum ætlaðar. Og Marie
Marvingt hefur aldrei gifzt, aldrei haft um mann og börn
að hugsa. Þetta hefur gert það að verkum, að hún hefur
fundið hjá sér þörf til þess að gefa lífi sínu fyllingu á annan
hátt en konur gera yfirleitt. Og síðast en ekki sízt hefur
henni auðnast að lifa svo ævintýralegu og viðburðaríku lífi,
af því að hún hefur alla tíð verið óvenjulega hraust bæði
andlega og líkamlega.
Þegar í barnæsku gerði hún þetta að einkunnarorðum
sínum:
— Ég get gert, það sem ég vil!
Með lífi sínu hefur hún fært sönnur á réttmæti þessarar
setningar. Þess vegna er hún í lifanda lífi orðin að þjóðsagna-
persónu. Þess vegna hefur hún verið nefnd Hrói Höttur
eða Tarzan nútímans — í gervi konu.
Grete Gravsen.
FALKINN