Fálkinn - 11.07.1962, Qupperneq 24
og virti fyrir sér með aðdáun brúnt
og fíngert andlit hennar undir appel-
sínurauðum túrbaninum. Nokkrir svita-
dropar voru eins og perlufesti á hálsi
hennar.
Suzu mætti augnaráði hennar og varð
undrandi. Katrín fann, að nú hafði hún
gert eitthvað sem ekki átti við og flýtti
sér að spyrja um nýja kjólinn, sem
hún hafði fengið skömmu áður en þau
lögðu af stað til Parísar.
— Við ætlum í leikhúsið, sagði hún
eins þurrlega og hún gat.
í fyrsta skipti hafði sir Richard lát-
ið að ósk Katrínar og gefið henni blá-
an kjól, sem hún fór nú í.
— Ó, mademoiselle Catherine, lítið
bara á yður í speglinum!
Katrín horfði á eigin spegilmynd. Það .
var satt, hún var dásamleg, enda var gj
þetta sá fegursti kjóll, sem hún hafði
augum litið.
Suzu virti hana fyrir sér frá öllum
hliðum. Þessi stúlka er meistaraverk
skaparans, hugsaði hún full aðdáunar.
En allt í einu fann hún til stolts og hlýju
yfir því að fá að vera þjónustustúlka
hennar og einhvern veginn fann hún
á sét, að Katrín mundi þurfa á aðstoð
hennar og hjálp að halda í framtíðinni.
Hún var glöð yfir hlutskipti sínu.
— Ég vorkenni leikurunum sem eiga |
að leika í kvöld. Allir munu aðeins 1
horfa á yður, mademoiselle, sagði Suzu i
og brosti.
í fyrsta skipti hafði sir Richard ekk- H
ert við útlit Katrínar að athuga. Hann I
stóð niðri í forstofunni og ræddi við
madame Rocher, þegar Katrín birtist í
stiganum. Hún gekk hægt og virðulega,
af því að hún var ekki vön að ganga í
svo viðamiklum klæðnaði. Þegar hann
kom auga á hana, hætti hann í miðri
setningu. Henni hafði næstum tekizt
að gera hann orðlausan af undrun.
— Ekki svo slæmt, alls ekki svo
slæmt, tautaði hann.
Madame Rocher hneigði sig virðulega
fyrir Katrínu og sir Richard hélt áfram:
— Erfiði mitt er farið að bera ávöxt,
Catherine. Væri ég tuttugu árum yngri
hefði ég gripið andann á lofti af að-
dáun. Nú læt ég mér nægja gleði lista-
mannsins, þegar hann sér að sköpunar-
verk hans er brátt fullunnið.
Katrín leit tortryggin á hann. Bros
hans var þurrt og hún vissi ekki hvort
honum var alvara eða ekki. Hún fór
að velta fyrir sér, hvernig sir Richard
hefði verið, þegar hann var ungur. Eða
hafði hann aldrei verið ungur?
Það var eins og hann hefði lesið hugs-
anir hennar. Hann sagði:
— Sumt fólk er fætt til þess að lifa
lífinu, Catherine. Annað til þess að
skoða það. Ég er í hópi hinna síðar-
nefndu.
Að svo mæltu gekk hann á undan
henni að vagni, sem beið þeirra fyrir
utan. Hún gekk þegjandi á eftir hon-
um. Hann var glæsilega klæddur, það
vantaði ekki. Hann var í fjólubláum
silkafrakka og kremlituðum þröngum
Frh. bls. 32
000 kr. gólfteppi
V
N
hlýtur sá, sem ræður fimm krossgátur rétt í röð. Eftir vin-
sældum krossgátunnar að dæma og öllum þeim fjölda af rétt-
um lausnum, sem okkur berast vikulega, er ekki að efa, að
þátttakan í þessari nýju verðlaunakeppni verður mikil, og
það verður að draga á milli þess stóra hóps, sem ræður kross-
gáturnar fimm rétt. — Keppnin hófst í síðasta blaði og hér
birtist því annar hluti hennar. Þátttakendur eiga að safna
gátunum fimm og senda okkur þær allar í einu, þegar keppn-
inni lýkur. Takið þátt í skemmtilegri dægradvöl og freistið
gæfunnar! Þetta eru myndarlegustu krossgátuverðlaun, sem
í boði eru. Vinnið glæsilegt AXMINSTER-teppi!
24 FÁLKINN