Fálkinn - 11.07.1962, Síða 31
Bifreið hennar ók hægar og hægar.
Geymirinn var að tæmast.
En þá, einmitt er hún hélt, að geymir-
inn væri þurrausinn. tók bifreiðin við
sér. Hún var komin þangað, sem vegin-
um hallaði niður á við. Aftur reyndi
hún að aka í hlykkjum, til þess að reyna
að sýna, að eitthvað væri að. En hún
fékk ekki betri undirtektir en gremju-
leg hljóðmerki frá næstu bifreiðum.
Enginn stanzaði. Brátt væri hallinn á
enda, og þá væri henni dauðinn einn vís.
Skyndilega kom hún auga á gráu bif-
reiðina, sem lagt hafði verið við hægri
vegarbrún. Hún var nú á talsverðri ferð,
ef hún næmi staðar, myndu næstu bif-
reiðar fyrir aftan hana grípa tækifærið
og komast fram úr. Hún vissi aðeins
um eitt, sem gat fengið ökumenn til
þess að nema staðar. Aðeins eitt.
Gráa bifreiðin var rétt við bifreið
hennar. Hún beygði til vinstri og beindi
síðan bifreið sinni beint að gráu bif-
reiðinni. Hávaðinn var ærandi. Hvín-
andi hemlar og skarkali heyrðist utan
úr myrkrinu umhverfis hana. Bifreiða-
stjórar komu hlaupandi, til þess að
bjarga henni úr flakinu. Bifreið kom
þjótandi hinum megin graseyjarinnar,
ók upp á eynna og nam þar staðar.
Loksins var komin lögreglubifreið.
Martröðin var á enda.
Stuttu síðar hélt Tom henni í örmum
sér. Hann greip svo fast um hana, að
hún leit upp og horfði framan í hann.
Hann var náfölur og skelfdur. Hann
fann það núna, sem hún hafði fundið
skömmu áður. Hann átti bágt með að
ná andanum. Hún fann, að hann skalf
og kom ekki upp einu einasta orði.
Kæri Astró.
Ég les alltaf þættina þína
með athygli og skaltu hafa
þökk fyrir. Ef ég tryði ekki
á sannleiksgildi spánna,
mundi ég ekki nú skrifa þess-
ar línur og biðja þig að at-
huga hvað stjörnurnar segja
um framtíð mína.
Ég er fædd kl. 16 og eftir
því, sem ég hef lesið um per-
sónuleika fólks, sem fætt er
undir sama stjörnumerki,
skilst mér að þetta séu ótta-
legir vandræðagemlingar,
þótt úr rætist kannske með
suma. Það er að minnsta
kosti mín skoðun, að það sé
yfirleitt mesta ergelsi að vera
„Ég“. Ég er ákaflega áhrifa-
gjörn og það kemur fyrir að
ég skipti um skoðun jafn oft
og auðveldlega eins og ég
skipti um föt. Sama er að
segja um skapið, ýmist þung-
lynd eða ofsaglöð. Mundi ég
mikið vilja gefa fyrir að mega
dóla í friði milliveginn. Eigin-
lega finnst mér ég ekki vera
hæf til neins sérstaks og hef
áhuga á öllu en engu sérstöku,
nema vera skyldi helzt því,
sem ég get ekki stundað. Ég
hef ferðast mikið og leitar
hugurinn oft til heitari landa,
þó Frónið eigi mikið í mér og
að maður tali nú ekki um
„þarfasta þjóninn“. Kærast-
inn minn er fæddur ... og
logar vel í á milli okkar.
Viltu vera svo góður að segja
mér hvað stjörnurnar telja að
mér sé fyrir beztu, svo ég geti
verið góð manneskja, sjálfri
mér og öðrum til ánægju.
Þín Ugla.
Svar til Uglu:
Það er mjög algengt með
fólk, sem hefur Mánann rís-
andi eins og það er orðað í
stjörnuspekinni, að skipta títt
um skap. Það er ekki ósvip-
að Mánanum sem fer himin-
tungla skjótast gegn um
stjörnumerkin og er ýmist
vaxandi eða minnkandi. Ég
mundi ráðleggja þér, ef þú
átt stjörnumerkjabók, að
kynna þér hvað sagt er um
merki Krabbans eða fólk, sem
fætt er á tímabilinu 21. júní
til 21. júlí. Þar muntu finna
margt, sem kemur heim við
ýmislegt í fari þínu.
Já, þið eigið vel saman að
því leytinu að þið bætið hvort
annað upp. Það sem þig vant-
ar, það hefur hann og öfugt.
Þið getið því lært margt í
samvist hvors annars.
Það er talsvert erfitt fyrir
þá, sem á annað borð eru á-
hrifagjarnir eða næmir fyrir
áhrifum frá öðrum, að stilla
sig af í nútíma þjóðfélagi,
auglýsinga, fjöldasefjunar og
dáleiðslu. Annars eru margar
stofnanir erlendis, sem leitast
við að bæta úr ástandinu og
koma vitinu fyrir fólk, svo
sem ýmsar trúarstefnur, yoga-
skólar og heimspekiskólar.
Þú minnist á það í bréfi
þínu, að það sé hið mesta
„ergelsi að vera Ég“. Þetta
minnir mig á goðsögnina um
gyðinginn gangandi, sem er
alltaf ungur og rápar um ver-
öldina í leit að hamingju og
endurlausn. Þessi stutta saga
er talsvert táknræn, því í
henni má sjá leit mannkyns-
ins að hamingjunni um allan
heim, erlendis, hérlen,dis og
yfirleitt alls staðar annars
staðar en á hinum rétta stað.
Nefnilega í sjálfri „ÞÉR“.
Þessi orð mín muntu aldrei
skilja fyrr en þú snýrð leit
þinni að hamingjvmni inn á
við í fylgsni hugans og hjart-
ans. Bak við þær dyr. sem
enginn annar hefur aðgang
að til að trufla, ef dyranna
er gætt. Á þessar dyr benda
trúarbrögðin, yogarnir, heim-
spekin og lífið, ef aðeins er
staldrað við og gáð.
En svo við víkjum aftur að
kortum ykkar þá er kort kær-
asta þíns sérlega fínt og ég
held hann hafi allar aðstæð-
ur til að verða mjög efnaður
maður þegar frammí sækir.
Eins og þú ef til vill veizt er
hann fæddur þegar sól var í
Hrútsmerkinu og þar eru einn-
ig fleiri plánetur ásamt mörg-
um plánetum í merki Ljóns-
ins og væri því ekki að undra
þó hann síðar meir á ævinni
og jafnvel nú væri mjög
framstandandi á sínu sviði.
Að minnsta kosti held ég að
hann muni njóta mikillar
virðingar síðar meir fyrir vel
unnin störf. Ég sé ekkert í
stjörnukortum ykkar sem
mælir gegn því að þið náið
saman.
Eitt það athyglisverðasta,
sem ég sé í korti þínu er hve
margar plánetur eru í áttunda
húsi eða áttunda geira hrings-
ins. Þessi hluti himinsins á
þessari stund hefur áhrif á
dulargáfur fólks og það er sér-
staklega hrifið af því sem er
dulrænt og leyndardómsfullt.
Því er sérstaklega ráðlagt að
kynna sér drauma og merk-
ingu þeirra, því þeir hafa oft
djúpa merkingu og vara fólk
oft við hættum. En það er nú
þannig með sálarlífið eins og
annað, að ef ekki er lögð rækt
við það, þá hefur maður ekk-
ert gagn af því. Einnig er al-
gengt um fólk með þessar af-
stöður að lesa mikið um sviðin
handan grafar, þar sem sagt
er að enn meira vitundarlíf
ríki heldur en hér á jarðsvið-
inu, sem sé að því er talið er
hin eiginlega gröf.
Um fjármál þín er það að
segja, að ég mundi ekki ráð-
leggja þér að stunda mikið af
happadrættum, veðmálum eða
þátttöku í getraunum, þar
sem fé er lagt undir, því hætt
er við að þú vinnir aldrei þar
sem heppnin þarf að vera
annars vegar. Einnig ættirðu
aldrei að undirrita kaup-
greiðsluskilmála til langs
tíma án þess að kynna þér vel
öll ákvæði og hvort þú getur
staðið við allt. Þú ættir frek-
ar að fela öðrum að standa í
slíku fyrir þig, sem þú hefur
fulla ástæðu til að treysta. Ég
hygg að þú verðir fyrir ein-
hverjum vonbrigðum með
fjármál maka þíns til að
byrja með að minnsta kosti.
Láttu þér að minnsta kosti
ekki bregða, þó eitthvað verði
öðruvísi heldur en ætlað var.
Þú ættir heldur aldrei að vera
í atvinnu eða verzlunarfélagi
með öðrum. það mun ekki gef-
ast þér vel, heldur skaltu
reyna að standa á eigin fót-
um í þeim efnum, ef þú skyld-
ir reyna að starfa sjálfstætt.
Ég álít að þú eigir eftir að
sigla út enn, en einhverjar
ferðirnar verða í sambandi
við heilsufarið hjá þér.
Þér mun ekki verða margra
barna auðið.
* ★ ☆
FÁLKINN
31