Fálkinn - 11.07.1962, Blaðsíða 33
Böðnllimn
Frh. af bls. 28.
kvikmynd, hlýtur að berjast fyrir því
með hnúum og hnefum, að konur séu
ekki dæmdar til hengingar, og yfirleitt
alls ekki dæmdar til dauða. Enda er
öll myndin í sjálfu sér áróður fyrir
því. En vitnisburður Pierrepoints um
hugrekki kvenna á síðustu ævistund-
unum studdi enn sterklegar sjónarmið
þeirra, er hölluðust að dauðarefsingu,
heldur en kvikmyndin náði að kveða
þau niður.
Skoðun Pierrepoints á hengingu sem
aftökudómi er sú, að það sé „mannúð-
leg, fljótvirk og örugg aðferð.“ Frá
tæknifræðilegu sjónarmiði var því lýst
yfir við nefndina, að dauði við heng-
ingu „væri að öllum líkindum eins
skjótvk'k orsök til bana og hver önnur.“
Aftaka í gasklefum, með innspýting-
um eða í rafmagnsstólnum, er hvorki
álitin betri né verri aðferð til lífláts en
henging.Hins vegar telja enskir sérfræð-
ingar, að vansæmd sú, er ,,reipið“ hefur
í för með sér, veki meiri ótta hjá viss-
um tegundum glæpamanna en „stóll-
inn“.
Þeir menn eru til á Englandi, sem
halda því fram, að ef á annað borð sé
framvegis haldið fast við hengingar-
dóma, beri einnig að taka aftur upp
hinn upphaflega sið og fullnægja þeim
við opinbera athöfn. Sennilega myndi
það líka falla hinum vanaföstu Eng-
lendingum vel í geð. En svo er mál með
vexti, að eftir uppþot mikið við aftöku
hinn 26. maí 1866, varð að nema þann
gamla sið úr gildi.
Fram til þess tíma mátti heita, að
opinberar hengingar væru alþýðu-
skemmtanir. Bæði böðull og glæpa-
maður nutu mikillar lýðhylli. Komu
þeir báðir fram sem hreinir skopleik-
arar og tóku kveðjum áhorfenda, er
þeir gengu upp á aftökupallinn. í þann
tíð var böðullinn tíðum glæpamann-
inum engu betri. Átti sjálfur langt og
myndarlegt syndaregistur og endaði
ósjaldan ævi sína í gálganum.
En þegar síðasta opinbera aftakan
fór fram, hafði almenningsálitið snúist
algjörlega við. Það var árið 1866. Um
langt skeið áður hafði þróast almenn-
ingsálit, sem var andvígt dauðarefs-
ingu, og iðulega heyrðist mannfjöld-
inn hrópa til böðulsins skammaryrði
eins og „morðingi“. Samúð fólksins var
yfirleitt með morðingjanum.
Þetta var oi’ðið breytt við aftökuna
árið 1866. Glæpamaðurinn var 25 ára
gamall námumaður, Róbert Kó að nafni.
Hafði hann myrt vinnufélaga sinn, John
Davis, sem var átján ára, til þess að
stela vikukaupi hans, sem var átján
krónur. Síðan hafði hann hlutað líkið
sundur, grafið það — og síðan tekið
þátt í leit að hinum myrta, sem talinn
var brotthlaupinn.
En kvöld eitt hafði hann tekið sér
duglega neðan í því, og talaði af sér.
Hann var dæmdur til dauða fyrir
morðið, og hengingin fór fram í Swan-
see.
í sambandi við slíkar aftökur voru
ævinlega frídagar og hátíðisdagar.
Menn þyrptust því til Swansee kvöld-
ið áður, til þess að komast í beztu staði á
torginu. Þar drukku menn öl og döns-
uðu, slóust og sungu sálma eins og
venja var til, en þegar leið á nóttu sofn-
uðu flestir. Þá er þeir vöknuðu um
dagmálabil, sáust aftökupallurinn og
gálginn bera svartir við bláan morg-
unhimin.'
Það var ekki fyrr en glæpamaðurinn
kom og gekk upp á aftökupallinn, að
yfirvöldunum varð ljóst, að múgurinn
sauð af hatri til morðingjans. Fanginn
gerði sér þó ekki grein fyrir því enn.
Hann steig upp á pallinn, brosandi og
rólegur, hopaði nokkrum sinnum á fall-
hleranum og kallaði til böðulsins:
„Heyrðu mér, — er þessi útbúnaður
ekki lífshættuleg'ur?" Hann bjóst við
háværum hrifningarópum, því sjálfur
hafði hann heyrt öðrum glæpamönnum
klappað lof í lófa undir sömu kringum-
stæðum.
En nú heyrðist enginn hrópa. Harm
leit vonsvikinn kringum sig. Samkvæmt
venju hafði kirkjuklukkum verið
hringt um alla borgina, meðan hann
var færður til aftökustaðarins, og hróp-
ið kvað við: „Takið ofan!“ Nú sá hann
að enginn hafði hreyft við höfuðfati
sínu, og heyrði að öskrið, sem nú hóíst
umhverfis hann, var ekki fagnaðar-
læti, heldur logandi hatur.
Þá rak hann tunguna út úr sér fram-
an í fólksfjöldann og glotti. Ung
stúlka, sem var systir hins myrta manns,
stökk upp á pallinn og ætlaði að ráðast
á morðingjann, en verðirnir slógu hana
niður. Því næst reyndu þrjár konur,
vopnaðar hnífum, að komast til hans,
en lögreglan hrakti þær til baka. Því-
líkt ofsahatur gegn afbrotamanni hafði
aldrei sést þarna fyrr. Grjóti, úldnum
Framhald á bls. 38.
KODAK VELOX
pappírinn tryggir yður góðar og fallegar
myndir.
Við afgreiðum í yfirstærð — t. d. 6x6 cm.
filmu skilum við yður á 9x9 cm. mynd.
Störar myndSr-
i afgreidsla
FÁLKINN 33