Fálkinn - 11.07.1962, Blaðsíða 38
I
Böðullinit
Frh. af bls. 33.
ávöxtum og rusli rigndi yfir hann — en
þegar snaran var lögð um háls honum
og maðurinn hvarf snöglega niður um
íallhlerann, varð dauðaþögn.
EFTIR að þessar heiftugu og haturs-
fullu óeirðir höfðu komið fyrir, var á-
kveðið að menn skyldi ekki teknir op-
inberlega af lífi framar. Enskur al-
menningur skiptist í tvo hópa eftir
skoðunum um það, hvort halda skuli
áfram dauðarefsingum, eða leggja þær
niður. En í báðum flokkum eru menn,
sem deila um, hvort framkvæma skuli
aftökur opinberlega, séu þær annars í
lögum leyfðar. Leiðir þessi skoðana-
munur öðru hvoru til hatrammrar deilu,
sem fer eins og flóðbylgja um landið.
Telja sumir, að varnaðaráhrif dauða-
refsingar yrðu langtum víðtækari, ef
athöfnin færi opinberlega fram, en and-
stæðingar þeirra álíta, að opinber af-
taka myndi skapa þjóðarandúð gegn
dauðarefsingu, þar sem almenningi yrði
þá enn ljósara, hversu ósamboðin hún
er menningarsamfélagi.
— En einn maður þegir við þessum
deilum: Pierrepoint.
Hann hefur tekið að sér verk til að
vinna — og leysir það af hendi. Og ekki
mun hann skorta arftaka. Svo margir
sækja um stöðuna eftir hans dag, svo
og aðstoðarstarf, að utanríkisráðuneyt-
ið hefur látið prenta sérstök svarbréf
við umsóknunum.
Oft og tíðum eru það lærðir og mennt-
aðir menn, er bjóða þjónustu sína í
þessu skyni, venjulega frá 21 til 32
ára að aldri. Og ef minnsti kvittur
kemst á loft um það, að Pierrepoint sé
að láta af störfum, berast óðar þúsund-
ir umsókna til innanríkisráðuneytisins,
frá ótal löndum. Og þetta gerir fólk
ekki fyrst og fremst vegna teknanna,
þvert á móti skrifa flestir, að þeir kæri
sig ekki um gjald fyrir böðulsstarfið.
Meira að segja má lesa milli linanna hjá
sumum, að þeir líti á það sem föndur,
að hengja. Þeir eru ekki svo fáir, er
segjast hafa komið upp gálgum heima
hjá sér, og að þeir hafi hvað eftir
annað framkvæmt eftirlíkingar af ,,af-
tökum“ á tilbúnum tuskubrúðum.
En komist yfirvöldin á snoðir um, að
minnsti vottur af spilltum hvötum eða
óeðlilegum, liggi að baki orða hins af-
tökufúsa umsækjanda, endursenda þau
umsóknina þegar í stað.
Ekkert bendir til þess, enn sem kom-
ið er, að Pierrepoint muni draga sig í
hlé um sinn. Hann leggur alltaf öðru
hvoru af stað í leyniferðir sínar til
Lundúna, og er fjarri knæpu sinni í
nokkra daga. Þegar hann mætir svo
aftur í „Rósinni og krónunni“, gengur
hann um garða rólegur og raulandi, ber
gestum sínum öl og segir sem svo, að
venju: „Ég vil ekki hafa, að þið hangið
svona fyrir framan afgreiðsluborðið!“
Og forvitnir gestir gefa hvor öðrum
olnbogaskot og hvísla út 1 annað munn-
38 FÁLKINN
vikið: „Það er hann!“
Það eru nokkur ár síðan hann tók
við rekstrinum á „Rósinni og og krón-
unni“, en sú veitingastofa er í Much
Hoole, nálægt Preston í Lancashire.
Áður rak hann knæpu í Oldham í Man-
chester. Hún bar nafn, er betur hæfði
böðli að gestgjafa en „Rósin og krón-
an.“ Knæpan hét sem sé „Help the poor
struggler". En það mætti gjarna þýða
„Hjálpið voluðum vesalingum“.
I 15ACiSmTí§! ÍíiWV
Frh. af bls. 29.
— Lifið þið eðlilegu lífi hér um borð?
spurði fréttamaður útvarpsins. Ég
meina fáið þið nógan svefn?
— Sýnist þér ég vera syfjulegur?
spurði aðmírállinn.
— Heldur er hann nú þynnkulegur,
hvíslaði Tímamaðurinn að mér.
— Er þetta vetnissprengja? spurði
Moggamaðurinn og benti á tundur-
skeyti.
— Af hverju buðuð þið ekki Þjóð-
viljanum? spurði Mánudagsmaðurinn.
— Heyrðu, þú gengur niður stigann
þarna og inn um dyrnar til vinstri, þá
finnur þú barinn, svaraði aðmírállinn.
Nú sáum við, að það skreið maður
upp á þilfarið.
— Hvað vilt þú? spurði aðmírállinn.
— Ég er frá Myndinni, svaraði mað-
urinn eymdarlega.
— Það er fyrsta skilyrðið til þess að
hægt sé að bjóða blaðamönnum hingað,
að blöðin þeirra séu til, svaraði aðmír-
állinn.
Það gripu nokkrir sjóliðar piltinn og
hentu honum útbyrðis.
— Sagði ég ekki, strákar, hrópaði
Moggamaðurinn, amerískir sjóliðar eru
þeir hraustustu í heimi.
Dagur Anns.
Trúlofunarhringar
Fljót afgreiðsla.
Guðm. Þorsteinsson
gullsmiður
Bankastræti 12
Sími 14007
Sendum gegn póstkröfu.
EJ lcnEllcjlEUEiiEnicilBlfEnEHcilEHcnEllglEHcnElBlEl
Öílýrar
utanferðir
10.900.00
k r ó n u r
17.650.00
k r ó n u r
16.950.00
k r ó n u r
16.500.00
k r ó n u r
18.500.00
k r ó n u r
Helsinki á Heimsmót æskunnar
og 1900 krónur í viðbót ef þú vilt
heimsækja hina fornfrægu LENIN-
GRAD 24. júlí—8. ágúst eða 24. júlí
—13. ágúst.
Alpalönd og Ungverjaland
um Hamborg—Vínarborg og Kaup-
mannahöfn 28. júlí—15. ágúst.
Afríkuferð til Marokko
um Gíbraltar—Spán og Frakkland
til Parísar og London 24. ágúst—11.
september.
Belgrad á EM í frjálsíþróttum
og suður til ADRÍAHAFS og FEN-
EYJA 9.—29. september.
Bússlandsferð
um Norðurlönd til Kákasus og Úkra-
ínu 3.—23. september.
Landsýn leiðbeinir yður með hverskonar ferða-
þjónustu og farmiðasölu hvort sem leiðin liggur
innanlands eða utan.
LAN P SVN I
FERDASKRIFSTOFA LAUGAVEG118 SIMI 22690