Fálkinn - 07.11.1962, Side 11
farið neðar en í annað sætið utan núna
í ár og 1956 þegar Valur öllum að ó-
vörum vann mótið. Það var alltaf við-
kvæðið heima, að þegar við, þessir eldri,
mundum hætta yrði ekkert úr liðinu.
1960 vann í. A. íslandsmótið, og þá voru
margir hættir. Þórður Þórðar og ég
vorum ekki með heldur, en mótið vannst
samt.Ég er ekki hræddur um að þaðverði
ekki nægur mannskapur til að taka við.
Þriðji flokkur hjá okkur núna t. d. er
mjög efnilegur, og þar eru mörg mjög
góð efni á leiðinni. Ef tekst að halda
þessum strákum saman er ég ekki í
neinum vafa um, að það verður stólpa-
lið. — Á þessum ellefu árum síðan f. A.
vann fslandsmótið í fyrsta sinn, held
ég að ekki hafi leikið eins margir ein-
staklingar með neinu liði eins og okkur.
Ef reiknaður er út landsleikjafjöldi
hvers félags, þannig að ef félagið á þrjá
menn í landsliði gildi það þrem lands-
leikjum, er f. A. efst á blaði. Við höfum
flestir verið átta í liði, og í tilrauna
landsliði vorum við einu sinni níu. Þeg-
ar farið var til Bandaríkjanna 1956 fóru
10 frá Akranesi. Við höfum fyllt allar
stöður landsliðsins nema hægri bak-
varðar stöðuna. Bakvörður hefur aldrei
verið valinn frá okkur í landsliðið. en
framvörður hefur verið settur sem bak-
vörður. Þetta er nokkuð merkilegt.
— Ef ég spyr þig um minnisstæða
leiki hverja mundir þú tiltaka?
— Það eru margir leikir minnisstæð-
ir, en mér koma sérlega tveir í hug.
Það er nú fyrst leikurinn við Svía hér
í Reykjavík 1951. Áður en ég fór að
heiman sagði mamma við mig: Mig hef-
ur dreymt að þið vinnið þennan leik
5:3. Þessum leik lauk svo sem mönnum
er kunnugt 4:3, en mörkin urðu fimm,
því eitt var dæmt ógilt. Þeir sögðu að
ég hefði verið rangstæður, en ég hef nú
stundum efast um það vegna þessa
draums. — 1953 kom hér þýzkt lið.
Rínarúrval. Þjálfari þessa liðs hét
Harst Sturze. Ég hafði kynnzt honum
í Koplenz, og síðan höfum við
alltaf sent hvor öðrum línu. Leik.
ur Akraness við þetta Rínarúrval
varð nokkuð sögulegur, og sjaldan hef
ég vitað eins mikil læti á vellinum. Við
lékum alveg stólpaleik, sennilega einn
okkar bezta, og úrslitin urðu 5:0 okkur
í vil. En það voru skoruð fleiri mörk
en þessi fimm, tvö voru dæmd ógild.
Annað þessara marka var þannig, að
markmaðurinn var kominn langt út á
teiginn, og boltinn stefndi í mannlaust
markið, þegar þessi þýzki vinur minn
og þjálfari gerði sér lítið fyrir. hljóp
inná völlinn og bjargaði á línu. Það leið
nokkuð langur tími þar til ég fékk kort
frá honum eftir þessa Islandsferð. —
Annars er ég hrifinn af Þjóðverjunum,
þeir hafa svo gott skipulag á öllum hlut-
Framhald á bls. 30.